Læknablaðið - 01.02.1970, Blaðsíða 53
LÆKNABLAÐIÐ
23
Rannsóknastofa — Lyfjabúr
Hugsanlegt er, að ritari annist afgreiðslu lyfja undir eftirliti
læknisins, og er þá hægt að hafa lyfjabúr næst ritaraherbergi.
Ef hjúkrunarkona gegnir ritarastörfum, á hún greiðan aðgang að
S2 og Sj. Má því nota hvora stofuna sem er fyrir skiptingar, inn-
dælingar o. s. frv. (Mynd 6 og 7).
En fleira þarf að vera í lækningastöð en húsnæði fyrir viðtöl
og skoðanir. Góð læknisþjónusta er komin undir góðri rannsókn-
araðstöðu, og er þá komið að rannsóknastofunni. Henni má koma
fyrir í næsta nágrenni við ritaraherhergi, og á hina hlið hennar
komi vinnurými hjúkrunarkonu eða, eins og gert er á mynd
8, að sameina í eitt aðstöðu hjúkrunarkonu og rannsókna-
stofu og þessi eining sé sett næst ritaraherbergi. 1 sömu einingu
kemur skol og sótthreinsun. Inn á þennan uppdrátt hefur ekki
verið færð sérstök ge>nnsla, enda eðlilegt að slíkt sé í lyfjabúri.
Hér á undan hefur verið rakið, hvernig hæta má við einstökum
þáttum í lækningastarfsemi og húsnæði fyrir þá.
Níunda mynd er af sænskri lækningastöð (1-lákarstation) og
hefur verið bætt við lyfjabúri og inngangi hreytt, en að öðru leyti
er grunnmyndin eins og hún er í nefndul riti. 11. mynd er úr sama
riti og birt hér með leyfi Centrala Sjukvárdsberedningen.