Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.02.1970, Side 36

Læknablaðið - 01.02.1970, Side 36
14 LÆKNABLAÐIÐ útskilnaði deyfilyfja, einkum barbiturata. Hér er um að ræða þvagleysandi meðferð (forced alkaline diuresis), peritoneal dia- lysis og hemodialysis. Einkum eiga þessar aðferðir við gegn alvar- legum eitrunum, sem eru innan við 10%. Þvagleysandi meðferð má t. d. framkvæma þannig, að gefinn er hálfur lítri af Mannitol ogsamtímis hálfur lítri af glukosu, NaHC03 og NaCl á víxl. Fyrstu klukkustundina eru gefnir 3/1 af vökva, en síðan tiyggt þvag- magn 400—500 ml á klst. Ph þvags er haldið um 7.5.7 Deilt hefur verið um gagnsemi örvandi lyfja (analeptika), t. d. Bemegrids. Lyfið er vandmeðfarið og hefur oft i för með sér hjartsláttartrul'lanir og krampa. Það bætir því líklega ekki horf- ur. Sumir telja árangur meðferðar hafa batnað að mun, er þeir hættu notkun Bemegrids.2 Á síðari árum hefur athygli beinzt meira að Metylphenidat (Bitalin), og skal ekki fullyrt um gagn- semi þess. Dánartalan er tveir af 116 með hráða lyfjaeitrun. Á Bispe- hjerg-sjúkrahúsinu i Kaupmannahöfn hafa dauðsföll vei’ið milli 1—2%, á Boyal Infirmary í Edinhorg jafnvel innan við 1%,8 en víða annars staðar er dánartalan miklu hærri eða allt að 20%. 88 sjúklingar voru sendir heim eftir meðferð á deildinni. ! hópi Kessels í Edinborg hlutu 2/3 geðlæknismeðferð eftir út- skrift, ýmist á sjúkrahúsi (26% ) eða göngudeild þess (38% ).5 Ef þarfir hinna íslenzku sjúklinga eru ámóta, þarf greiðari aðgang að geðsjúkrahúsum eftir útskrift af lyfjadeild. Sumir geðlæknar telja, að aldrei beri að kalla bráða lyfjaeitrun tilraun til sjálfsmorðs.5 Fólk fremur verknaðinn oftast í örvænt- ingu, af því að öll sund eru lokuð í bili. Hins vegar er ómeðvitað- ur tilgangur oft sá að vekja athygli á vandamálum sínum eða hræra nákomna ættingja til meðaumkunar. Menn vona innst inni, að verknaðurinn mistakist. Þjóðfélagið á að geta veitt þessum sjúklingum ódýrari og hættuminni meðferð í formi vel skipu- lagðrar geðverndar og félagsráðgjafar. HBIMILDIR 1. Aitken, R. B. C. and Proudfoot, A. T. (1969): Barbiturate Automat- ism — Myth or Malady? Postgrad. Med. J. 45, 612. 2. Hadden, John et al. (1969): Acute Barbiturate Intoxication. J.A.M.A. 209, 893. 3. Heilbrigðisskýrslur 1960—66. 4. Janssen, B. (1961): Drug Automatism as a Cause of Pseudosuicide. Postgrad. Med. J. 30, A. 34.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.