Læknablaðið - 01.02.1970, Síða 82
Góður svefn
nótt eftir
nótt,
ef tekið er
MOGADON
Nýjasta og öruggasta aSferðin við svefntruflunum
1. NÝTT. MOGADON verkar á
nýjan hátt. Áhrif þess koma
fram sem æskileg minnkun á
starfsemi „limbiska" kerfisins án
þess að hafa veruleg áhrif á
aðra hluti heilans. Það hefur
verndandi áhirf á þann lífeðlis-
fræðilega þátt, sem sér um, að
eðlilegur svcfn fáist, þrátt fyrir
ýmiss konar ytri eða tilfinninga-
lega truflandi áhrif. Árangurinn
verður þægilegur svefn. Venjuleg
svefnlyf íþyngja öllu miðtauga-
kerfinu og leggjast því á tiltölu-
lega handahófskenndan hátt á öll
svæði heilans. Þannig leiða þau
eiginlega til nokkurs konar djúp-
svæfingar (anesthesia).
2. VERKUN. Tvíprófanir (double-
blind tests) hafa staðfest, að
MOGADON reynist vera annað
hvort jafngott eða betra en beztu
nútíma svefnlyf, hvað snertir
skjóta byrjun, lengd og dýpt
svefnsins og einnig hvað viðvíkur
líðan sjúklings, þegar hann
vaknar. Hann sofnar fljótt, en
eðlilega. Sjúklingurinn sefur vel,
en á auðvelt með að vakna.
Hann vaknar endurnærður án
nokkurra eftirkasta.
MOGADON er skrásett vörumerki
S.ÖRYGGI. MOGADON þolist sér-
staklega vel, og það inniheldur
aðeins minnsta skammt af eitur-
efnum. Öryggissviðið er því sér-
staklega vítt. Séu tekin inn 100
til 300 mg af MOGADON (þ. e.
20 til 60 sinnum meira en venju-
legur skammtur), þá leiðir það
til djúps svefns í nokkuð lengri
tíma, en jafnframt slaknar á
vöðvum, öndun verður róleg og
blóðrás helzt eðlileg. Við samsvar-
andi yfirskammt af öðrum al-
mennum svefnlyfjum er yfirleitt
mikil hætta á djúpum dásvefni
eða dauða. Ef notað er hins veg-
ar MOGADON er hætta á eitrun af
slysni eða ásettu j-áði mjög lítil.
54134