Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.1980, Blaðsíða 16

Læknablaðið - 15.05.1980, Blaðsíða 16
110 LÆKNABLAÐIÐ Pórður Eydal Magnússon* MEÐALALDUR ÍSLENSKRA STÚLKNA VIÐ FYRSTU TÍÐIR ÚTDRÁTTUR Tilgangurinn með pessari rannsókn var að leiða í ljós meðalaldur íslenskra stúlkna við upphaf fyrstu tíða (menarche) og að bera pær saman við niðurstöður frá hinum Norðurlanda- pjóðunum og annars staðar frá. Rannsóknin var framkvæmd veturinn 1972-1973, með 682 stúlkur sem efnivið á aldrinum 8.5 til yfir 17 ára, 9.5 % af stúlkunum í priðja til ellefta bekk í barna- og gagnfræðaskólum Reykvavíkur. Meðalaldurinn samkvæmt »status quo« aðferð- inni reyndist vera 13.06 ±0.10 ár (S.E. ±0.10 ár) S.D. 1.17 ár. Samkvæmt upplýsingum peirra 235 stúlkna, er tíðir höfðu haft, er pær voru spurðar, reyndist sú yngsta 9.83 ára, en sú elsta var 15.17 ára. A peim aldri voru allar stúlkurnar að einni undanskildri farnar að hafa tíðir. INNGANGUR Upphaf fyrstu tíða (menarche) er mikilvæg vísbending um líkamsproska hverrar stúlku. Pví hefur meðalaldur við fyrstu tíðir verið ítarlega kannaður og sýnt breytileika milli ólíkra samfélaga (14, 23, 30) og milli ættflokka er búa á sama stað (12). Meðalaldurinn við fyrstu tíðir hefur reynst lækka (a secular trend) um 3-5 mánuði á tíu ára tímabili hjá mörgum pjóðum síðustu 100 árin (10, 14. 23, 29, 30), en stöðnun á pessari stefnu hefur mátt greina víða um heim síðustu 20 árin (4, 6, 29, 30). Ýmsir pættir hafa verið taldir seinka fyrstu tíðum, svo sem lágur tekjuflokkur (25) mikil fjölskyldustærð (16, 23, 25, 28) innkirtlasjúk- dómar (31), lítill andlegur proski (5) og ípróttir (22). Á hinn bóginn hefur pað reynst flýta fyrir kynproska að vera úr efnaðri hópi pjóðfélags- * Tannlæknadeild Háskóli Islands Áöur birt í AMERICAN JOURNAL OG PHYSICAL ANTHROPOLOGY 48: 511-514: 1978 undir titlinum AGE AT MENARCHE IN ICELAND. Greinin hér örlítið breytt. ins (2, 18, 27, 29), nema hjá fransk-kanadiskum stúlkum (15). Veðurfar eitt sér hefur sýnt lítil sem engin áhrif á aldur við fyrstu tíðir (34), en árstíða- bundinna sveiflna og landfræðilegra áhrifa gætir (32). Sú tilgáta, að upphaf fyrstu tíða eigi sér stað við nákvæman meðallíkamspunga (3, 9, 24), hefur orðið fyrir mikilli ádeilu, vegna mismun- ar á pyngd einstaklinga við upphaf fyrstu tíða (17). Mikill pyngdarmunur hefur einnig fundist við kynproska hjá öðrum spendýrum, p.e.a.s. í Clun Forest sauðfé (7). Tilgangurinn með pessari pversneiðar — »status quo«-könnun var að finna, hver meðal- aldur íslenskra stúlkna er, pegar pær ná kynproska. Niðurstöður pessarar rannsóknar hafa áður birst (20) og eru páttur í rannsókn- um höfundar á proska íslenskra barna auk rannsókna á tannproska (komutíma fullorðins- tanna) (19) og beinproska peirra (21). EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Rannsókn pessi á upphafi fyrstu tíða meðal íslenskra stúlkna var framkvæmd ásamt rann- sókn á faraldsfræði tannskekkju, sem fram fór frá byrjun september 1972 til maíloka 1973. Þessi pverskurðarrannsókn byggðist á viðtölum við 682 stúlkur, sem valdar voru af handahófi og voru um 9.5 % allra stúlkna í 3- 11 bekk að báðum meðtöldum (á aldrinum frá 8.5 til yfir 17 ára) í öllum barna- og gagnfræða- skólum Reykjavíkur. Af pessum stúlkum höfðu 235 haft fyrstu tíðir. Fyrir efniviðnum hefur áður verið gerð nákvæm grein annars staðar (19). Sérhver stúlknanna var spurð af höfundi, hvort hún hefði pegar haft tíðir (wstatus quo«-aðferðin), og ef svo var, pá jafnframt hvenær pær hefðu fyrst átt sér stað (recall aðferðin). Margar stúlknanna mundu nákvæmlega fyrsta daginn, en hjá öðrum höfðu mæður peirra skráð hann. Þær sem eftir voru, voru

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.