Læknablaðið - 15.05.1980, Page 17
NOVO
DRÞÍCIMO*®
AMOXICIILIN
\lfvj
Breiðvirkandi penicillin gegn sýkingu í
• öndunarfærum
• þvagrás
Draximox er hálfsamtengt breiðvirkt sýkialyf til inntöku við meðferð á
vissum smitsjúkdómum, einkum staðbundið við öndunarfæri og þvag-
rás.
Hið virka efni, amoxicillin, þolir magasýrur og frásogast næstum
fullkomlega í þörmum.
Meðal hámarks blóðvatnsstyrkleiki er venjulega helmingi hærri en eftir
jafn stóran skammt af ampicillini.
Ábendingar
Bent er á Draximox vegna hins breiða verkunarsviðs lyfsins
fyrst og fremst í þeim tilfellum þar sem sýklafræðileg
greining er óviss, við framkomu blöndunarsýkingar af
næmum sýklum og í tilfelium þar sem Hemophilus inflúensa
er tið eins og t.d. við öndunarfærasýkingar.
Vegna hins háa sýkladreps-styrks í þvaginu er einnig bent á
Draximox gegn þvagrásarsýkingu og sérstaklega nýrnabólgu
(pyelonefritis) sem er afleiðing af næmum bakteríum (E.
coli, Proteus mirabilis og Streptococcus faecalis).
Einnig er bent á. Draximox gegn vægum tilfellum af
lekanda, annaðhvort gefið eitt sér eða með probenecid.
Frábendingar
Varað er við að gefa Draximox sjúklingum með ofnæmis-
viðbrögð fyrir penicillini. Einnig er varað við að gefa
Draximox sjúklingum sem eru með mononucleosis-smit
ásamt sjúklingum með lymfatisk leukæmi, sjá einnig kafla
um: Aukaverkanir.
Milliverkanir
Hin sýkladrepandi áhrif amoxicillins minnka við samtímis
inngjöf sýklalyfja eins og tetracyklini og chloramphenicol,
en ekki súlfonamíðum. Probenecid, fenylbutazon og acetyl-
salicylsýra draga úr nýrnagangna-útskilnaði af amoxicillini,
þar sem blóðvatnsstyrkurinn eykst af amoxicillini.
Aukaverkanir
í rannsóknum med amoxicillin hafa aukaverkanir verið
litlar. Hinar algengustu skráðu aukaverkanir eru væg
meltingaróþægindi svo sem ógleði og niðurgangur, exan-
them og urticaria.
Eins og með önnur fúkalyf verður að taka tillit til að
möguleikar eru á ofnæmi fyrir lyfinu. Sjúklingar með
mononucleosissmit og/eða lymfatisk leukæmi fá gjarnan
exanthem við meðhöndlun með amoxicillin.
Varúðarreglur
Gefa skal Draximox með varúð ofnæmissjúklingum og/eða
asthmasjúklingum. NB: Draximox ber ekki að gefa sjúkling-
um sem hafa ofnæmi fyrir penicillini. Of mikil og langvinn
notkun lyfsins getur orsakað hættu á auknu varnarafli
örvera, að meðtöldum sveppum.
Skammtastærðir og inntaka
Draximox er inntökulyf í töfluformi ýmist 250 mg og 500
mg eða sem skammtar med 125 mg og 500 mg.
Venjulegur skammtur handa fullorðnum og börnum yfir 20
kg að líkamsþyngd við einföldum sýkingum er 250 mg 3svar
á dag. Við meðferð á meiriháttar sýkingum eins og t.d.
bráða exacerbationer af langvinnu bronchitis og nýrnabólgu
(pyelonefritis) er gefið 500 mg 3svar á dag. Við meðferð á
lekanda er venjulegur skammtur 1-2 g, og aftur 1 g gefið
u.þ.b. 5 klukkustundum seinna.
Börnum undir 20 kg að líkamsþyngd er gefið 20/mg/kg/á
sólarhring skipt niður í 3 jafn stóra skammta við minnihátt-
ar sýkingu. Við meiriháttar sýkingu eykst skammturinn í
u.þ.b. 40 mg/kg/á sólarhring skipt niður í 3 jafn stóra
skammta.
Pökkun
Draximox töflur 250 mg Draximox töflur 500 mg
18 stk. 18 stk.
30 stk. 30 stk.
5 x 100 stk. 5 x 100 stk.
Draximox skammtar 125 mg Draximox skammtar 500 mg
18 stk. 18 stk.
30 stk. 30 stk.
NDVO INDUSTRI A S
Hillerödgade 31,2200 Köbenhavn N.
Tlf.: (01) 34 21 11, lokal 256
Einkaumboð á íslandi
Pharmaco h/f
Skipholt 27
Sími: 26377
!aa
B313 September 1979