Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.1980, Síða 24

Læknablaðið - 15.05.1980, Síða 24
114 LÆKNABLADIÐ Ólafur Ólafsson, Sigmundur Sigfússon og Almar Grímsson UM EFTIRRITUNARSKYLD LYF, SKRÁNINGU OG EFTIRLITII Ávísanir og sala lyfja, sem hafa ávanahættu í för með sér INNGANGUR í pessari grein er skýrt frá aðgerðum heilbrigð- isyfirvalda til að draga úr notkun lyfja, sem ávanahætta stafar af. Ennfremur er skýrt frá breytingum á ávísuðu magni eftirritunar- skyldra lyfja og á sölu benzódíazepínlyfja á Islandi síðustu prjú árin. Áður hafa verið birtar greinar um sölu og ávísað magn róandi lyfja (tranquillizers, seda- tiva), svefnlyfja (hypnotica) og örvandi lyfja (amfetamíns og skyldra lyfja) á árunum 1971- 1976 (1, 2, 3, 4, 8). Niðurstöður voru byggðar m.a. á könnunum á lyfseðlum og lyfjasölu. í ljós kom að selt magn pessara lyfja var tiltölulega mikið hér á landi. Voru t.d. seldir um 100 dagskammtar af róandi lyfjum og svefnlyfjum á 1000 íbúa á dag árið 1972, og var ísland pá orðið annað 1 röðinni meðal Norður- landa, næst á eftir Danmörku. Aðalhluti pessa magns voru benzódíazepínlyfin díazepam (Va- lium, Stesolid) og nítrazepam (Mogadon, Paci- syn, Dumolid). Ávísað amfetamín var einnig margfalt meira að vöxtum hér en á öðrum Norðurlöndum, par sem ávísun pess var háð strangari takmörkunum en hérlendis (1, 7, 8). Heilbrigðisyfirvöldum fannst ástæða til að auka viðleitni í pá átt að takmarka notkun pessara lyfja í lækningaskyni, m.a. með pví að bæta og auka eftirlitið með eftirritunarskyld- um lyfseðlum. Aðgerðir til að hamla gegn óhæfilegum ávísunum á eftirritunarskyld lyf, róandi lyf og svefnlyf Til að draga úr rangri notkun lyfja er mikil- vægt, að gagnkvæmt upplýsingaflæði sé milli heilbrigðisyfirvalda, rannsóknarstofnana og lækna um ábendingar (indicationes) lyfja, og að tryggt sé, að læknar hafi upplýsingar um heildarmagn lyfja, sem hver sjúklingur peirra fær ávísað. Landlæknisembættið hefur.eftirlit með lyfja- Frá landlæknisembættinu. Barst ritstjórn 10/01/1980. Sent í prentsmiðju 21/01/1980. ávísunum lækna. Lyfjaeftirlit ríkisins annast framkvæmd lyfseðlaeftirlits og er embættinu til aðstoðar í pessu efni. Hér skulu rifjaðar upp nokkrar helstu aðgerð- ir á pessu sviði á síðustu fimm árum: 1. Á árunum 1973-1974 var barbítúrlyfjum, mepróbamati, glútetímíði (Doriden) og am- fetamínskyldum lyfjum s.s. fentermíni (Mi- rapront), pemólíni (Hyton) o.fl., bætt í flokk eftirritunarskyldra lyfja. 2. Leiðbeiningar um mánaðarhámarks- skammta svefnlyfja og róandi lyfja voru sendar til lækna árið 1975 (6). 3. Eftir útgáfu auglýsingar nr. 230/1976 eru ávísanir á örvandi lyf: Amfetamín, dexam- fetamín, metamfetamín, metýlfenídat (Rita- lin) og pemolín, háðar sérstöku leyfi land- læknis. (10). Fentermín er pó enn undanpeg- ið slíku leyfi. Aðrar pjóðir, s.s. Norðmenn, Svíar og Finnar, hafa farið pessa leið. Landlæknir lagði á árinu 1974 fram tillögur í pessa átt á fundi í Læknafélagi Reykjavík- ur, en allflestir fundarmenn voru peim mótfallnir. Var pað ein ástæða pess, að auglýsingin var ekki gefin út fyrr. 4. Frá árinu 1976 hefur læknum verið sent tölvuskráð yfirlit (datajournal) yfir ávísanir peirra á eftirritunarskyld lyf, eins og skýrt var frá í fyrri grein. (9). 5. Frá árinu 1977 hafa læknanemar á 6. ári fengið ítarlega fræðslu í félagslæknisfræði- kennslunni um ávísanavenjur lækna. 6. Díazepamtöflur á 10 mg voru teknar af skrá árið 1977, par eð niðurstöður lyfjakann- ana bentu eindregið til pess, að einmitt pessi töflustærð væri eftirsótt af tiltölulega stórum hópi sjúklinga. Frá pessum niður- stöðum hafði verið skýrt á fundi landlækna Norðurlanda í Ósló 1973, og voru pær sendar paðan til Alpjóðaheilbrigðisstofnun- arinnar (W. H. O.) sem ábending um ávana- hættu af benzódiazepinlyfjum. Til pessa hafa aðgerðir aðallega beinst að ávísunum vanabindandi lyfja utan sjúkrahúsa.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.