Læknablaðið - 15.05.1980, Qupperneq 38
124
LÆKNABLADIÐ
viö í þessum tilfellum alltaf reynt aö nema
burtu æxlið, ef þess hefur verið kostur.
Horfur
Um horfur er rætt á öðrum stað hér í blaðinu
og er skemmst frá því að segja, að um 30-
40 % af þeim sem leita læknis vegna krabba-
meins í ristli, eru á lífi eftir 5 ár. í einstaka
skrifum virðast vissir höfundar ná betri ár-
angri og eru um helmingur sjúklinga þeirra á
lífi eftir 5 ár. Hvað viðvíkur krabbameini í
endaþarmi er árangur svipaður, kannske nokk-
uð betri.
Lokaorð
Nokkrar spurningar hljóta að vakna, þegar
þessi mál eru athuguð og þá fyrst hvers vegna
tíðni þessa sjúkdóms virðist vera helmingi
Meiri í Svíþjóð og víðast hvar á Vesturlöndum
en raun er á, á íslandi. Að vísu virðist
sjúkdómurinn aukast þar, en í öðrum vestræn-
um löndum standa nokkuð í stað. Má vera, að
forsendur sjúkdómsins séu að líkjast því sem
gerist annars staðar og kannske eru mataræði
og umhverfismál á íslandi að aðlagast því sem
gerist hér ytra.
Pað gildir einnig um krabbamein í ristli og
endaþarmi, að því fyrr sem sjúkdómurinn
uþpgötvast, því stærri líkur eru til gagngerra
bóta og sú spurning hlýtur því vakna, hvað
hægt sé að gera til að finna sjúklingana fyrr en
raun er á með tilliti til einkennaleysis sjúk-
dómsins. Það er kannske fulldjarft að leggja
það til málanna, að allir íslendingar yfir 50 ára
aldri gangist undir ristilmyndatöka og recto-
scopiu, til þess er kannske sjúkdómurinn ekki
nógu algengur og vandræðavaldandi og sjálf-
sagt allt of stórt fyrirtæki frá röntgentækni-
legu og fjárhagslegu sjónarmiði. Hins vegar
má eflaust gera þá kröfu á hendur læknum, að
þeir séu hér vel á verði, fyrst og fremst
minnugir þess, að sjúkdómurinn er til, og í
öðru lagi hvers þeir séu megnugir með vísi-
fingri handar sinnar og rectoscopi, sem liggur
kannske of oft ónotað.
SUMMARY
This article is a review of colo-rectal cancer with
particular reference to lceland and Sweden. Appro-
ximately one fourth of all deaths in Sweden are due
to malignant disease. Thereof 12 % are from colo-
rectal cancers. The incidence is 40-50 new cases per
100000 inhabitants per year. It seems to be twice as
much as in lceland. Between sexes the incidence is
about the same. The connection to familiar polypo-
sis, colitis ulcerosa and villose papilloma are stres-
sed. The etiology is still unknown but environmental
factors such as food are important, so is the
heritage. Early diagnosis is essential for the progno-
sis which is good if initial symptoms are dealt with
thoroughly. Therapy is almost exclusively surgical. It
is essential that doctors have a high index of
suspicion for the disease and make frequent use of
the rectoscope and index finger!
HEIMILDIR
1. Berge, T„ Ekelund, G„ Mellner, C„ Pihl, B„
Wenckert, A.: Carcinoma of the colon and
rectum in a defined population. Acta Chir.
Scand. suppl. 438, 1973.
2. Bjarnason, Hlöður: Krabbamein í ristli og
endaparmi. Örebro: Samanburður lækninga-
arangurs við önnur sjúkrahús. Læknablaðið,
1980. 66, 2. tbl.
3. Coffrey, R. C.: The major procedure first in the
two-stage operation for relief of cancer of the
rectunt. Annual Surgery 1961.
4. Copeland, E. M„ Miller, L. D„ jones, R. S.:
Prognostic factors in carcinoma of colon and
rectum. American Journal of Surgery 116-875,
1968.
5. Eisenberg, H„ Sullivan, P. D„ Foote, F. M.:
Trends in survival of digestive system cancer
patients in Connecticut 1935-1962. Gastroenter-
ologi 53-528, 1967.
6. Goligher, J. C.: Surgery of the anus rectum and
colon. Ballíere-Tindall 1975.
7. Hallgrímsson, Snorri: Krabbamein í colon og
rectum. Læknablaðið 54, 135-167, 1968.
8. Modan, B.: Low-fiber intake as an etiologic
factor in cancer of the colon. Journal of the
National Cancer Institute 55-15, 1975.
9. Papillon, J.: Endocavity Irradiation of early
rectal cancer for cure. Proc. Royal Soc. Med. 66,
1179, 1973.
10. Polk, H. C. Ahmad W. Knutsson C. O.: Carcino-
ma of the colon and rectum, current problem of
surgery. January 1973.
11. Tuiinius, Hrafn: Tíðni og útbreiðsla krabba-
meina. (Ráðstefna um neysluvenjur og heilsufar
29. apríl 1977).
12. Þórarinsson, Hjalti: Krabbamein í ristli og enda-
parmi. Læknablaðið 62, 185-195, 1976.
13. UICC: Clinical oncologi. Springer Verlag 1973.