Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.05.1980, Page 41

Læknablaðið - 15.05.1980, Page 41
LÆKNABLAÐID 125 Geir Gunnlaugsson NRYL-mótið í Oslo 1979 Frá Félagi ungra lækna. Dagana 30. nóv.-2. des. 1979 var 18. mót norrænu unglæknasamtakanna haldið í Osló í boði norska unglæknafélagsins. Sóttu mótið 13 unglæknar, en að auki komu Svíar og Norðmenn með skrifstofustjóra sína. Fyrir hönd Félags ungra lækna sóttu Geir Gunn- laugsson og Ragnar Danielsen mótið. Þessi norrænu ping standa yfir í 2 daga. Er fyrri dagurinn vanalega notaður 1 almennt yfirlit yfir pað, sem gerst hefur hjá hverju svæðisfélagi fyrir sig frá síðasta móti. Seinni dagurinn er notaður til umræðna um eitthvert ákveðið efni, sem gestgjafinn fær yfirleitt að ráða hvað er. Völdu Norðmenn að ræða um »professions ansvar«. HVAD HAR HENDT SIDEN SIST? Finnland. Félagar í peirra FUL (NUORTEN LÁÁKÁ- RIEN YHDISYS, NLY) eru allir peir, sem vilja vera með og borga peir á ári 50 finnsk mörk fyrir pátttökuna (rúmar 5.000 ísl.kr.). Er námi lýkur er kandidatsárið 1 ár á sjúkrahúsi, en síðan er 1 árs héraðsskylda. Héraðsskylduna purfa peir eingöngu að taka, sem ætla 1 sérnám, en hún er ekki nauðsynleg til að fá lækningaleyfi. Eitt af markmiðum NLY er, að framhalds- menntun eftir læknapróf leggi aukna áherzlu á stjórnun samhliða læknisfræðilegri menntun, og að pessi kennsla fari fram á dagvinnutíma. Ef pessi kennsla er aftur á móti óhjákvæmileg utan vinnutímans, pá berst félagið fyrir pví, að unglæknar fái pá tíma greidda með fríum. Vaktakerfi unglækna í Finnlandi er mjög svipað okkar, dagvinna til kl. 14.00 og síðan vaktir, en tilraun er nú gerð með eftirfarandi vaktakerfi: 3 dagar dagvakt (8-14), 3 dagar kvöldvakt (14-22), 3 næturvakt (22-8), 3 dagar frí. Finnst finnskum unglæknum sem vinnuálag peirra sé heldur mikið og stefna að minnkun pess. Föst laun peirra eru um 450.000 ísl. krónur, eða samsvarandi pví sem gerist hér á landi. Danmörk. Danska læknafélagið er myndað af PLO (praktiserende lægers organisation), sérfræð- ingafélaginu og unglæknasamtökunum. Greiða unglæknar 700 d.kr. ársfjórðungslega til félags síns, svo að fjárhagslega er félag peirra sterkt og telur um 6000 félaga. Danmörku er skipt í 15 ömt. í hverju amti eru ákveðin unglæknasamtök og kjósa pau fulltrúa á 72 manna ping, sem síðan kýs hina eiginlegu stjórn unglæknasamtakanna. Sl. vor urðu mikil átök innan hinna dönsku samtaka, sem leiddu til pess, að algerlega var skipt um stjórn í félaginu. Var víst talað um að róttækl- ingar hefðu komist til valda. Ástandið á danska læknavinnumarkaðinum er ákaflega erfitt. Um 700-800 danskir læknar eru í Svípjóð og um 230 eru atvinnulausir. Fullyrtu félagar okkar, að um raunverulegt atvinnuleysi væri að ræða. Læknir, sem hefur lokið embættisprófi, en er án starfsreynslu, fær 4.800 d.kr. 1 atvinnuleysisstyrk á mánuði, en sá sem hefur einhverja reynslu fær 6.800 d.kr. á mánuði. Er atvinnulaus læknir ekki skyldugur til að taka vinnu, sem honum býðst, ef hann parf að ferðast meira en 1 klst. frá heimili sínu. Helzta baráttumál dönsku unglæknasamtak- anna er að reyna að fá 40 klst. vinnuviku. Telja samtökin pað óhæft, að sumir félagarnir vinni allt að 60-70 klst. á viku á meðan aðrir ganga um atvinnulausir. í dag fá danskir læknar 50 % álag á hverja klukkustund í dagvinnu, sem unnin er utan dagvinnumarka, en ríkisvaldið býður peim nú 15 % álag, ef 40 klst. vinnuvika verður að veruleika. Önnur krafa er sú, að 50 % af vöktunum verði unnar á dagvinnu- tíma. Svípjód. Sænsku unglæknasamtökin eru geysiöflug og gefa mánaðarlega út blað, Sylf-nytt. Eru með- limirnir nálægt 8000 og borga peir 250 s.kr. á ári til félagsins, en 800 s.kr. til sænska læknafél- agsins. Rekur félagið skrifstofu með skrifstofu- stjóra. Hefur sá maður mætt á öll ung-

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.