Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.1981, Blaðsíða 22

Læknablaðið - 15.03.1981, Blaðsíða 22
78 LÆK.NABLADID mæla í blóði með PRIST prófi, en oftast er það aukið við bráðaofnæmi. IgE mótefni hafa sérstaka tilhneigingu til að bindast mast- frumum. Mikið er af mastfrumum í húð og slímhúð öndunarfæra og meltingarvega. Pess vegna eru einkenni um bráðaofnæmi algeng- ust frá þessum líffærum. Komi mótefnavaki í snertingu við IgE mótefni á yfirborði mast- frumu eiga ofnæmisviðbrögð sér stað. Sjúk- dómseinkennin stafa af því, að mastfrumur gefa frá sér ýmis efni, sem valda útvíkkun á æðum og bjúg; vöðvasamdrætti í sléttum vöðvum; slímútskilnaði úr slímkirtlum og frumuíferð með eosinofilfrumum (fig. 1). Ofnæmiseinkenn- in koma vanalega 10—20 mínútum eftir að sjúklingurinn hefur verið í snertingu við ofnæmisvaldinn (10). Stundum fá astmasjúklingar með bráðaof- næmi einkenni tvisvar, eftir að þeir koma í návist ofnæmisvaldsins. í fyrra sinnið koma einkennin eftir 10—20 mínútur og hverfa aftur eftir 1—2 klukkutíma, en koma að nýju eftir 6—12 klukkutíma. t>á er talað um tvöföld ofnæmisviðbrögð (dual reaction). Komi of- næmiseinkennin fyrst í ljós eftir 6—12 klukku- stundir, er hins vegar talað um sein ofnæmis- viðbrögð (late reaction). Eðli tvöfaldra ofnæm- missvarana og seinna ofnæmissvarana eru ekki þekkt til fulls, en mótefnin sem taka þátt í Table II. Occupational respiratory diseases: Type III Allergy Diseases Antigen Bagassosis Thermoactinomyces sachari Bird breeder’s lung Serum dropping proteins Cheese washer’s lung Penicillium caseii Farmer’s lung Thermophylic actinomy- cetes Humidifier fever Thermophylic actinomy- cetes, bacterial endo- toxins Malt worker’s lung Aspergillus fumigatus or clavatus Subserosis Penicillium Wheat weevil disease Sitophilus granarius Wood pulp worker’s lung Alternaria Wood trimmer’s lung Rhizopus, paecilomyces, mucor, alternaria þessum ofnæmissvörunum, eru af IgG flokki (22). Ofnæmisflokkur III (Arthus-reaction) myndar svokölluð immuncomplex við tengingu mót- efnavakans og mótefnisins sem er immuno- globulin G (IgG) (Fig. 2). Stærð immuncom- plexa fer eftir hlutfallinu milli magns mótefna- vaka og mótefna. Ef immuncomplexin eru lítil geta þau haldist fljótandi í æðakerfinu og valda þar litlum skaða, en séu þau stærri, geta þau setið föst í háræðakerfi hinna ýmsu líffæra. Þegar immuncomplex festast í æðum„ ræsa þau complimentkerfið og valda á þann hátt bólgusjúkdómum, t.d. nýrnabólgum (glo- merulonephritis) eða lungnasótt (alveolitis). Ofnæmisviðbrögð með æðaskemmdum og bólgumyndunum vegna keðjuáhrifa frá com- plimentkerfinu eru kölluð Arthus viðbrögð og valda þau varanlegum vefjaskemmdum (24). Ýmislegt bendir þó til þess, að lungnasótt og tilsvarandi sjúkdómar í öðrum líffærum geti átt sér flóknari orsakir en þetta, t.d. að ofnæmi IV (frumumiðlað ofnæmi) eigi þar hlut að máli (28). Complimentkerfið getur einnig farið í gang án þess að um immuncomplex sé að ræða (alternate pathway), t.d. fyrir áhrif frá endotoxinum en klínisk einkenni eru þá hin sömu og við Arthus viðbrögð. Table III. Occupational respiratory diseases: Irri- tants Occupation Exposure Petroleum and chemical industries Ammonia, sulphur dioxide, clorine Silo fillers Nitrogen dioxide Welding workers Ozone Metal foundries, medical workers, textile and leather Formaldehyde Wood, paper and printing industries Wood dust and formaldehyde Chemical, petroleum, rubber and plastic industries Isocyanates, epoxyresins, hardeners Meat wrappers Pyrolysis products of PVC Metal product and machine manufacturing Salts of chromium, nickel and platinum. Colophony resins

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.