Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.03.1981, Page 29

Læknablaðið - 15.03.1981, Page 29
LÆKNABLADID 81 því næstum öll í nefslímhúðinni. Frjókorn lauftrjáa eru nokkru minni eða um 20 micron, en einnig þau festast fyrst og fremst í nefslím- húðinni. Ryk frá þurrkuðum þlöntuhlutum getur einnig valdið ofnæmi, þótt ekki sé það eins sterkur ofnæmisvaki og frjókornin. Húsdýr eru næst algengustu ofnæmisvaldar á eftir frjókornum. Ofnæmiseinkennin koma frá ryki úr feldum dýranna. Hestar valda einna sterkustu ofnæmi, og þar á eftir koma kettir, nautgripir, hundar eða sauðfé. Ofnæmi fyrir hundum er áberandi veikara en fyrir köttum, en auk þess hafa einstakar tegundir hunda mismunandi sterka tilhneigingu til ofnæmis- myndunar. Fuglar geta einnig orsakað of- næmi, en þá er oftast um að ræða Arthus viðbrögð gagnstætt því, að önnur húsdýr valda bráðaofnæmi. Nagdýr, sem notuð eru sem gæludýr í heimahúsum eða tilraunadýr á rannsóknastofum, valda einnig oft ofnæmi og Fig. 4. Dreifing rykagna í öndunarvegum. Frjókorn 25 mikron og stærri (•) festast í efri hluta öndunar- veganna, myglugró 5 mikron að stærð ( —) valda astma, en M. faeni (1 mikron að stærð) (•) veldur heysótt. nýlegar rannsóknir benda til þess, að mótefna- vakann sé einkum að finna í þvagi þessara dýra (22). Mygla og bakteríur valda alloft ofnæmi og einkum astma eða Arthus viðbrögðum í lung- um. Myglusveppir eru algengir utan húss og innan. Peir þrífast best í miklum raka, þ.e.a.s. við rakastig yfir 75 %, en mynda spora við lægra rakastig. Flestir myglusveppir vaxa best við hitastig milli 20 — 40°, en sumir geta þó vaxið við lægra hitastig, eins og cladosporium, sem jafnvel vex í kæliskápum, og aðrir myglu- sveppir, eins og aspergillur, vaxa ágætlega við hærra hitastig. Myglusveppirnir þrífast best á lífrænum úrgangsefnum úr jurta- og dýrarí-k inu, t.d. illa verkuðu heyi, moði og morknuð- um laufblöðum. Heyhlöður, gróðurhús og rök íveruhús eru gróðrarstíur fyrir myglu. Myglusveppir gefa frá sér mikið magn af gróum (spores), sem flest eru frá 3—10 micron að stærð og komast því oft niður í lungna- blöðrurnar og valda þar sjúkdómum (9, 19). Þær bakteríur, sem hér verða nefndar, eru thermophilic actinomycetes (hitaelskir sýklar), sem áður fyrr voru taldar tii sveppa, en eru nú taldar tilheyra bakteríum vegna þess, að þær vantar kjarnahimnu og eru næmar fyrir sýkla- eyðandi lyfjum. Þessar bakteríur mynda gró líkt og sveppirnir og þær vaxa við svipaðar aðstæður og sveppir. Þær vaxa sérstaklega vel við hátt hitastig, milli 50—60°C, t.d. þegar hitnar í heyi, en rakamagn heysins þarf þá að vera yfir 28 %. Fjöldi þessara baktería er talinn í hámarki 4 — 7 dögum eftir að hitnar í heyinu. Thermophilic actinomycetes eru ekki einungis bundnar við illa verkuð hey, því þær koma víða við sögu atvinnusjúkdóma, eins og síðar verður vikið að. Algengustu bakteríurnar eru micropolyspora faeni og thermoactinomy- ces vulgaris (8, 15, 31). Rykmaurar eiga verulegan þátt í ofnæmissjúk- dómum í nefi, augum og lungum. Astma vegna rykmaura var fyrst lýst í Þýskalandi 1928, en síðan féllu þeir í gleymsku þar til í byrjun sjötta áratugsins. Til eru mjög margar tegund- ir rykmaura, en þrátt fyrir það eru það fyrst og fremst tvær tegundir, sem taldar eru valda ofnæmi, en það er Dermatophagoitis farinae og Dermatophagoitis pteronyssinus. í Evrópu virðist D. pteronyssinus þýðingarmeiri fyrir ofnæmissjúkdóma, en í Bandaríkjunum er D. farinae þýðingarmeiri (30). Þau þrjú ár, sem

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.