Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.03.1981, Qupperneq 35

Læknablaðið - 15.03.1981, Qupperneq 35
LÆKNABLADID 87 mæði. Oft hafa sjúklingar einnig einkenni í nefi. Orsakir geta verið vandfundnar, því að einkennin koma oft með löngu millibili og standa fremur stutt. Mest er hættan á einkenn- um, þegar sjúklingurinn hefur verið fjarver- andi um nokkurt skeið frá þeim stað, þar sem rakatækið er, eða langt er síðan tækið var hreinsað. Ekki er alveg ljóst, hvaða gróður í vatninu veldur einkennunum. Preciþitinpróf með mótefnavökum úr rakatækjum eru oft jákvæð. í einu tilviki var gert precipitinpróf með mótefnavökum frá íslandi, Skotlandi og Svíþjóð á serumi frá íslenskum sjúklingi, sem grunaður var um þennan sjúkdóm. Prófið var jákvætt í öllum tilvikum, sem bendir til þess, að um sama mótefnavaka sé að ræða í löndunum þremur. Oftast er talið, að thermop- hilic actinomycetes sé orsök þessa sjúkdóms, en í einu tilviki hefur tekist að framkalla greinilega sjúkdómsmynd með ofnæmisþol- prófi, þar sem annar bakteríugróður úr raka- tæki var notaður. Einkenni við humidifier fever líkjast einna mest bird fancier’s disease og koma því heim við Arthus viðbrögð, en ekki er víst, að alltaf sé um ofnæmi að ræða, því toxin frá bakteríum og sveppum geta ræst kompliment kerfið eftir hinni leiðinni (alterna- te pathway) og valdið sjúkdómum á þann hátt (8, 11, 18, 26, 29). 37 ára gamall prentari, sem starfað hefur í 20 ár í sömu prentsmiðju. Árið fyrir skoðun var hann fluttur í nýjan prentsal, par sem prentaðar voru litmyndir. Til að halda uppi nægilegu rakastigi í salnum, var notað rakatæki, sem var fest á vegg u.þ.b. 3 metra frá höfði hans. Rakatækið bætti sjálft á sig vatni, og það var hreinsað u.þ.b. á tveggja mánaða fresti, þegar það stöðvaðist vegna óhreininda. Pegar tækið var í gangi beindi það rakastraum beint að prentvélinni þar sem hann vann. Er hann hafði unnið 5 mánuði á þessum vinnustað, tók að bera á hitaköstum, sem byrjuðu vanalega um fimm leytið á daginn og höfðu að mestu lagast næsta morgun. Samfara þessu var hósti, mæði og surgur fyrir brjósti og beinverkir. Hiti var u.þ.b. 38,8°C. Við athugun á rakatækinu fannst, að það var fullt af slímkenndu gruggi og við athuganir fundust bakteríur, þörungar og myglu- sveppir. Gerð var ofnæmislausn úr því, sem rækt- aðist úr rakatækinu og húðpróf fyrir því voru vægt jákvæð eftir 20 mín, 6 tíma og 24 tíma. Precipitin- rannsóknir fyrir candida aibicans, pullularia, M. faeni og mótefnavökum úr sænskum rakatækjum voru sterkt jákvæð og einnig var precipitinpróf fyrir mótefnavaka úr rakatækinu, sem hann vann við, jákvætt. Eftir að rakatækið var hreinsað hefur hann ekki fengið nein hitaköst. Petta var fyrsta tilfellið af humidifier fever sjúkdómi á íslandi, en síðan hefur a.m.k. eitt tilfelii fundist. Aðrir lungnasóttarsjúkdómar: Fjöldi sjúk- dómsheita hafa orðiö til í sambandi við Arthus viðbrögð í lungum gegn ýmsum myglutengud- um. Wood trimmer’s lung var lýst fyrir fáein- um árum í Svíþjóð hjá verkamönnum, sem fengust við að flokka trjáboli í sögunarverk- smiðjum. Einkenni voru svipuð og við heysótt og jákvæð precipitinpróf fundust hjá 75 % verkamannanna eða hjá miklu fleirum en þeim sem veiktust. Algengustu myglutegundir voru rhizopus, paecilomyces og mucor. Veikindi komu yfirleitt ekki í ljós fyrr en eftir nokkur ár í starfi. (2). Wood pulp worker’s lung er sjúkdómur hjá þeim, sem vinna við að fram- leiða viðarflísar til eldunar. Einkenni koma því aðeins, að viðurinn sé myglaður. í skógarlönd- um, þar sem viður er notaður til upphitunar á vetrum, er talsverð hætta á þessum sjúkdómi. Aitenaria er sú myglutegund, sem oftast ræk- tast frá viðarflísunum. Subserosis er sjúkdóm- ur, sem verkamenn við korkframleiðslu fá, ef korkurinn myglar. Oftast finnst peniciilium við ræktun. (1). Cheese washer’s lung kemur fyrir hjá þeim verkamönnum, sem vinna við að þvo myglaða osta. Mygiutegundin heitir penicilii- um caseii. Aspergillus fumigatus veldur stund- um myglu á maltkorni og orsakar á þann hátt malt worker’s lung. Thermoactinomyces sac- chari í ryki frá sykurreyr veldur bagassosis við sykuruppskeruna. (14). Mushroom worker’s pneumonitis kemur fyrir hjá þeim sem fást við ræktun á ætisveppum. Ýmsar myglutegundir og thermophilic actinomycetes eru taldar valda sjúkdómnum. Þessi sjúkdómur gæti hæglega komið upp hér á landi í sambandi við gróðurhúsaræktun. Nefna mætti fleiri sjúkdóma af svipuðum toga, sem stafa af Arthus viðbrögðum í lungum vegna mygluofnæmis eða vegna of- næmis fyrir thermophilic actinomycetes. Pað skiptir þó ekki mestu máli að muna nöfnin á þessum sjúkdómum, heldur að gera sér grein fyrir, hvaða aðstæður eru líklegar til að valda þeim. Byssinosis: Byssinosis er sjúkdómur, sem or- sakast af bómullarryki. Mest hætta virðist á byssinosis á fyrstu stigum bómullarvinnslunn- ar, þegar rykið er mest. Einkenni koma yfirleitt ekki fram fyrr en eftir nokkurra ára starf í bómullarverksmiðju og lýsa sér með

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.