Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.03.1981, Page 44

Læknablaðið - 15.03.1981, Page 44
94 LÆKNABLADID pess að metta markaðinn. Nefndin hefur áætlað, að í næstu framtíð verði læknaþörfin 230 héraðsstöður, 170 sjúkrahússtöður fyrir sérfræðinám og 30 stöður í stjórnunar-, kennslu- og rannsóknavinnu. Þetta þýðir 3 % aukningu fyrir sjúkrahúsin. Samkvæmt þessu ættu sérfræðimenntunarstöður ekki að vera fleiri en 1360 á næstu árum. 160-170 yrðu þá teknir inn í sérnám á ári. Endanleg niðurstaða nefndarinnar mun liggja fyrir í síðasta lagi í lok árs 1980. ísland. Frá síðasta fundi NYLF í nóv. 1979 hefur þetta helzt gerzt í Félagi ungra lækna á íslandi (F.U.L.). Atvinnumál: Eins og áður sér félagið um að skipa í allar kandidatsstöður. í framhalds- menntunarstöður (superkandidatsstöður) sjá yfirlæknar deildanna um ráðningar og eru þær auglýstar. Samkomulag tókst við landlækni og ráðherra um að stytta aftur héraðsskyldu í 4 mánuði, og stefna að niðurfellingu hennar í framtíðinni. í þessu samkomulagi var gert ráð fyrir að bæta vinnuaðstöðu í héruðum. Hófst þar með á ný samvinna okkar við landlækni um ráðningu í héraðstöður. Utanríkismál: Svör hafa borist frá mörgum löndum varðandi fyrirspurnir okkar um mögu- leika íslenzkra lækna til sérfræðimenntunar. Hafa svörin verið vinsamleg, en heldur þröngt virðist vera á atvinnumarkaði unglækna í flestum löndum, og fer ástandið fremur versn- andi en hitt. Kjaramál: Kjarasamningar íslenzkra lækna eru runnir út fyrir u.þ.b. hálfu ári og enn hefur ekkert gerzt í þeim málum. Almennt eru kjarasamningar lausir í landinu og segjast stjórnvöld ekki veita neinar grunnkaupshækk- anir. Munu samningar því væntanlega fremur snúast um bætt kjör, svo sem frí fyrir vaktir, tryggingamál o.fl. Fræðslumál: Almennt stefnum við að fjölg- un á framhaldsmenntunarstöðum á sjúkrahús- um og bættum menntunarskilyrðum, svo sem auknum fræðslufundum. Einnig er stefna okk- ar að litið sér vinnu kandidata sem nám, en taka má fram, að á íslandi er lítil skipulögð fræðsla fyrir unglækna í kandidatsstöðum. Umræður hafa verið um breytingu á veitingu sérfræðileyfa. Vilja læknafélögin taka þessi mál, sem nú eru í höndum deildarráðs lækna- deildar, í sínar hendur. Komið hefur fram tillaga um, að sérstök nefnd verði skipuð fulltrúum frá heilbrigðismálaráðuneytinu, Læknafélagi íslands og læknadeild. Danmörk. í Danmörku er erfitt að fá eldri unglækna til starfa fyrir félagið. Vandamálið er talið felast í vaxandi vinnuálagi lækna. Höfuðvandamál félagsins er sívaxandi fjöldi nýútskrifaðra lækna, sem stöðugt erfiðara er að fá vinnu fyrir og læknar eru ráðnir til skemmri tíma og mikið í afleysingarstöður. Ýmis vandamál eru við veitingu í lokastöður og er nú búið að skipa nefnd til að vinna í því máli. í Danmörku ríkir nú einhvers konar jöfnunartímabil, sem gerir það að verkum, að erfitt er fyrir sérfræðinga að hefja einka — »praksis«, sem hingað til hefur verið mögulegt a.m.k. í sex sérgreinum. Erfitt er að gera sér í hugarlund, hvað muni leysa þetta tímabil af hólmi, en menn eru hræddir um, að komið verði í veg fyrir fjölgun í slíkum »praksis«, en aðeins nauðsynleg endurnýjun verði. Annars hefur vaxandi hluti af vinnu félagsins beinst að sparnaðarmálum, þ.á.m. barátta félagsins á sviði landsmála. Sú almenna skoðun er ríkjandi, að umfram allt verði að minnka útgjöld til heilbrigðismála. Nú er stefnt að fastri upphæð á fjárlögum til þessara mála, sem ekki hækki milli ára, og þýðir þetta í verðbólgunni beinlínis minnkað framlag. Undanfarið hefur 12.8% af þjóðar- tekjum verið varið til heilbrigðismála, en með þessari aðferð til minnkunar, fer hlutfallið niður í 10.8 % af þjóðartekjum. Þetta dregur mjög úr möguleikum meðferðar og rannsókna innan heilbrigðiskerfisins og mun valda mikl- um atvinnuörðugleikum hjá unglæknum þar. Almennt virðist vilji fyrir að fækka stöðugild- um í heilbrigðiskerfinu, sem teljast verður algerlega óviðunandi, bæði frá sjónarhóli lækna og sjúklinga. Svípjóð. A þinginu voru sex sænskir unglækn- ar og auk þess skrifstofustjóri þeirra, eins og á undanförnum þingum. Það sem er efst á baugi hjá sænskum unglæknum nú, er í höfuð- atriðum það sama og í desember 1979, þ.e.a.s. kjaramál, atvinnumál og sérfræðimenntun. Kjaramál: Almennir kjarasamningar og þar með sænsku læknasamtakanna runnu út í október 1979, en ekki var fyrir alvöru farið að fjalla um kjaramálin fyrr en í apríl 1980. í maí brutust svo út stærstu verkföll, sem orðið hafa í Svíþjóð, en »Akademikers Centralorganisati-

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.