Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.1982, Blaðsíða 20

Læknablaðið - 15.10.1982, Blaðsíða 20
238 LÆKNABLADID legudeildum og göngudeildum barnadeilda. Æskilegast væri, að barnadeildir önnuðust bæði greiningu á líkamlegum vandamálum og geðlæknisfræðilegum og meðferð hæfist á hvoru tveggja innan veggja barnadeilda. Á barnadeildum er jafnframt gott tækifæri til að gefa foreldrum leiðbeiningar og ráð varðandi uppeldi og meðferð á ungum börnum sem eldri. Þeirri staðreynd, að börn dagsins í dag verða peir fullorðnu morgundagsins verður ekki breytt. Því er pað mikið velferðarmál að innleiða tilfinningalega vellíðan í meðferð barna á barnadeildum. Til að fyrirbyggja frekari áföll og veikindi í lífi barns þarf oft á tíðum að veita sállækningameðferð til að stuðla að vellíðan. Þannig er ekki nóg að greina vandamálið eða sjúkdóminn, heldur einnig að veita samtímis meðferð. Rannsóknir hafa sýnt fram á, að geðlæknis- fræðileg ráðgjöf innan veggja barnadeilda auðveldar foreldrum að leita til barnageð- deilda, foreldrar njóti þjónustunnar á barna- deildum. Rannsóknir hafa jafnframt sýnt fram á, að líkamleg einkenni barna s.s. höfuðverkur og kvartanir frá meltingarfærum er hægt að uppræta fyrr með geðlæknisfræðilegri ráðgjöf og þannig koma í veg fyrir, að barnið verði veikt til langframa. Algengt er, að tilfinninga- legt áiag hjá börnum lýsi sér sem líkamleg ein- kenni. Með því að kanna, hvað veldur álagi hjá barninu má draga úr því og við það hverfa einkenni. Samstarf vid skóla og sálfræðideildir. Námsgeta barna er fyrst og fremst komin undir því, hversu vel barninu líður að greindar- fari undanskildu. Prátt fyrir, að skólinn sé staður þar sem börnum er ætlað fyrst og fremst að læra, umgangast aðra og taka aga frá öðrum en foreldrum, er þetta allt komið undir sjálfsáliti barnsins og tilfinningum þess í eigin garð. Þau börn sem hafa vanist á óæskilega hegðun heima fyrir haga sér vana- lega líkt í skóla. Á fyrstu skólaárum læra börn vanalega að lesa og skrifa og grundvallast áframhaldandi námsgeta þeirra á þessu. Náms- erfiðleikar hvers barns hafa mikil áhrif á líðan þess og það ætti að vera skylda allra lækna, sem annast börn að vera ráðgefandi og leiðbeinandi við skóla um slík mál. Barn sem getur ekki lært að lesa á réttum aldri fær síðar önnur einkenni sem getur breytt námserfiðleik- um í alvarlegri geðræn vandamál. Hjá mörg- um börnum sem hafa námserfiðleika er oft á tíðum aðalvandamálið tilfinningalegs eðlis, en skólavandamálið er í 2. og 3. sæti. Þannig getur geðlæknisfræðileg sjúkdómsgreining og tengsl hennar við námserfiðleika stuðlað að nauðsynlegri námsáætlun og aukið á skilning kennara og þar með verður bæði tekið tillit til sálfræðilegra orsakavalda og námslegra. Húsnæðisvandamál barnageðdeildar. Að barnadeild gat tekið til starfa var því að þakka, að leiguhúsnæði á vegum Reykjavíkurborgar að Dalbraut 12 stóð til boða. Um aðra valkostí í húsnæðismálum var ekki að ræða nema að bíða með stofnun geðdeildar barna um ófyrir- sjáanlegan tíma. Engin reynsla var fyrir hendi hérlendis á rekstri geðdeildar fyrir börn af öllu landinu og með innlagningaraðstöðu heldur einungis af göngudeildarstarfsemi. Því var heldur ekki ljóst hvernig ætti að reka þess háttar deild við íslenskar aðstæður. En ljóst var að á leigutímabilinu mætti fá mikilsverðar hugmyndir um hvernig barnageðdeild þyrfti að reka hérlendis og hvernig starfsramma þyrfti að skapa henni. Ekki þarf að fjölyrða um að húsnæðið að Dalbraut 12 varð brátt alltof þröngt fyrir starfsemina. Nefna má sem dæmi að í dag eru engin sérhönnuð meðferðarherbergi í sam- ræmi við kröfur tímans fyrir hendi innan deildarinnar, hvorki fyrir einstaklinga né hóp- meðferð. Líkja mætti aðstöðunni við hand- lækningadeild án skurðstofu. Sömuleiðis hefur engin aðstaða verið fyrir kennslu eða til innlagninga unglinga, sem oft eru meðhönd- laðir á göngudeild vegna bráðrar geðveiki. Leigusamningur ríkisspítala við Reykjavík- urborg um húsnæðið við Dalbraut rennur út árið 1985. Páll Ásgeirsson skrifaði bréf til stjórnarnefndar ríkisspítalanna í febrúar 1981 um húsnæðisaðstöðu barnageðdeildar og lagði áherslu á að GBH hefur búið við alvarlegan húsnæðisskort um langan tíma og engar úr- bætur hafa fengist í húsnæðismálum deildar- innar frá upphafi. Árið 1981 var málið rætt í stjórnarnefnd ríkisspítalanna og vísað til yfirstjórnar mann- virkjagerðar á Landspítalalóð. Enn hafa engar áætlanir borist eða svör, hvorki frá stjórnar- nefnd né yfirstjórn mannvirkjagerðar. Hvað verður því um starfsemi barnageðdeildar þeg- ar leigusamningur ríkisspítala við Reykjavík- urborg um húsnæðið við Dalbraut 12 rennur út árið 1985 er óljóst. F.h. stjórnar Félags Barnageðlækna, Helga Hannesdóttir Halldór Hansen

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.