Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.10.1982, Qupperneq 23

Læknablaðið - 15.10.1982, Qupperneq 23
LÆKNABLADID 239 Pedro Ólafsson Riba ÆÐARANNSÓKN Á ÚTLIMUM Samanburður á Metrizamid og Angiografin með Lidocain INNGANGUR Skoöun á útlimaæðum er snar páttur í dag- legri vinnu á röntgendeildum og algengust allra slagæðarannsókna. Notkun pessara rann- sókna fer vaxandi og er ekki annað séð en að hún verði um sinn helsta rannsókn til að kortleggja sjúklegar breytingar á útlimaæðum. Ný greiningartækni er að ryðja sér til rúms, sem mun leysa þessar áverkavaldandi skoðan- ir af hólmi, en varla verður hennar að vænta hér á landi næstu árin. (1) Það er alkunna, að samfara innspýtingu skuggaefnis í æð fá sjúklingar oft talsverð ópægindi, hitakennd, verki og jafnvel kvalir. Þetta á ekki síst við um inndælingar vegna rannsókna á ganglimum, aortofemoral angio- grafiu, eða skoðun á ósæðar-, lenda-, lær- og hnésbótaæðum. Við slíka æðarannsókn er miklu magni af skuggagjafa dælt inn í blóð- rásina á 2-3 sek. undir verulegum prýstingi. Öll nútíma skuggaefni, sem notuð eru til innspýtingar í æð, eru jónuð vatnsleysanleg prí-joðuð sölt af benzoesýru. Þau hafa fremur lága viðloðun, er auðvelt að dæla þeim, gefa góða þéttni í æðum og útskiljast fljótt um nýrun. Þó er sá galli á gjöf Njarðar, að þessi efnasambönd eru hyperton gagnvart blóði, osmolalitet þeirra er 5-8 sinnum hærra en blóðs og annarra líkamsvessa og eru þau því ertandi á innanþekju æðaveggjanna og valda unt leið sársauka. (2) Það er því ekki að ófyrirsynju, að framleið- endur skuggagjafa hafi á undanförnum árum og með ærnum kostnaði (meðalkostnaður á þróun nýs skuggaefnis eða lyfs er 20.000.000 pund) leitast við að finna skuggagjafa með lægra osmolalitet og færri aukaverkanir. Fyrir hér um bil 12 árum reið fyrirtækið Nyegaard A/S & Co, Oslo, á vaðið með efnið Metriza- mid (Amipaque), vatnsleysanlegt joðsamband, sem ekki jónast í upplausn og með aðeins helmingi hærra osmolalitet en blóðvökvi. Þetta efni reyndist ótrúlega lítið eitrað og mark- Barst ritstjórn 19/05/82. Sampykkt og sent í prentsmiðju 10/06/82. aði tímamót í rannsóknum á skúmholi (myelo- grafiur) og heilahólfum (ventriculografiur). (3) Upp úr 1975 var svo byrjað að nota efnið í tilraunaskyni við útlimaæðaskoðanir og hefur það þegar sannað ágæti sitt við slíkar skoðanir vegna lítilla óþæginda fyrir sjúklingana. (4, 5, 6). Á hinn bóginn er Metrizamid 15- 20 sinnum dýrara en jónuð skuggaefni. Önnur kynslóð lítt eitraðra efnasambanda með lágt osmolalitet hefur þegar hafið innreið sína á sviði röntgen- rannsókna á æðum. Má í því santbandi nefna lopamidol frá Bracco (Milan), Iohexol frá Nyegaard, Oslo og Hexabrix frá Guerbet (Frakkland) og lofa þau öllu góðu og eru mun ódýrari en Metrizamid, en samt 5-8 sinnum dýrari en önnur skuggaefni. Tilurð og þróun þessara efnasambanda verður ekki gerð frek- ari skil hér, en bent er á heimildir (7, 8, 9,10,11). Síðan 1978 hefur það tíðkast á Röntgen- deild Landspítalans, að Angiografin 65 % (Meglumine Diatrizoate, 306 mg Jodine/ml, Schering) er blandað Lidocaini. (12, 13, 14). Hefur það gefið mun betri raun en þegar skuggaefnið er notað eitt sér og engar auka- verkanir hafa komið á daginn. Þessi blanda er mjög ódýr, kostar um 50 krónur fyrir hverja innspýtingu við fullkomna neðri útlimaæða- skoðun, en ein gjöf af Metrizamid við sams konar skoðun kostar um 1.185.— EFNIVIÐUR OG RANNSÓKNARAÐFERÐ Ákveðið var að kanna með klíniskri saman- burðaraðferð (cross-over study), hvort þessi mikli verðmunur væri réttlætanlegur. Gerðar voru 30 æðaskoðanir á 28 sjúklingum. Konur voru 11 (41-78 ára) og karlar 17 (26-76 ára). Tvær skuggaefnisinnspýtingar voru gerðar á öllum sjúklingunum, önnur með Metrizamid, hin með Angiografin með Lidocaini. Hjá 12 sjúklingum var notaður 1 ml 1 % Lidocain, en hjá 16 sjúklingum var notaður 1 ml 2 % Lidocain fyrir hverja 10 ml af Angio- grafin eða 5 ml af annarri hvorri upplausninni á móti 50 ml Angiografin. Metrizamid voru notaðir í styrkleika 280 mg I/ml. Ef um aortofemoral angiografiu var að ræða, var

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.