Læknablaðið - 15.10.1982, Qupperneq 31
LÆKNABLADID
243
mörku í október 1982. Á þessum ráðstefnum
hafa verið fyrirlesarar frá öllurn Norðurlönd-
um og Bandaríkjum og voru fyrirlestrarnir á
ráðstefnunni í Gautaborg 1979 gefnir út í
bókarformi á vegum Norðurlandaráðs (Sjuka
barns behov NUA 1980: 7).
í Svíþjóð, Noregi og Danmörku hafa verið
gerðar athyglisverðar kvikmyndir á undanförn-
um árum til þess að undirbúa börn og foreldra
fyrir sjúkrahúsdvöl. Börnum og foreldrum eru
sýndar þessar myndir um líkt leyti og þau eru
innkölluð og stefnt er að því að nota þær í
leikskólum, dagheimilum og skólum almennt
til Uþþlýsingar fyrir börn, í fræðsluskyni og til
að draga úr ótta þeirra og ranghugmyndum í
sambandi við sjúkrahúsdvöl.
Stjórn samtakanna skipa 2 þátttakendur frá
hverju Norðurlanda auk formanns. Formaður
er prófessor Lennart Köhler, rektor við Nord-
iska Hálsovárdshögskolan í Gautaborg. Frá
Danmörku: Bengt Zachau-Christiansen og
Lisa Giodesen. Frá Finnlandi: Káthe Zilliacus
og Ulla Blumberg. Frá íslandi: Helga Hannes-
dóttir og Guðmundur Jónmundsson. Frá Nor-
egi: Tove Lindemann og Ivar Borsheim. Frá
Svíþjóð: Ivonne Lindquist og Sara Stronge.
Stofnuð hefur verið íslandsdeild þessara
norrænu samtaka og er Guðmundur Jón-
mundsson læknir formaður íslandsdeildarinn-
ar, en meðstjórnendur eru Árni Þórsson lækn-
ir og Herta Jónsdóttir hjúkrunarstjóri á Barna-
spítala Hringsins. Ráðgert er að halda hér á
landi ráðstefnu á vegum samtakanna í október
1983.
AÐALFUNDUR LÆKNAFÉLAGS
REYKJAVÍKUR - FUNDARGERÐ
Aðalfundur Læknafélags Reykjavíkurvar hald-
inn miðvikudaginn 10. marz 1982 kl. 20.30 í
Domus Medica.
Fráfarandi formaður L.R., Örn Smári Arn-
aldsson, setti fundinn og skipaði Sigurð Þ.
Guðmundsson fundarstjóra.
Fundarefni:
1. Formaður minntist 6 félaga L.R., er létust á
starfsárinu og rakti æviferil þeirra. Fundar-
menn vottuðu hinum látnu virðingu sína
með því að rísa úr sætum.
2. Formaður rakti helztu atriði ársskýrslu L.R.
M.a. kynnti hann stöðuna í samningamálum,
en allir eða nær allir kjarasamningar Iækna
eru nú lausir og barátta framundan á öllum
vígstöðvum. Athugasemdir við skýrsluna
komu ekki fram.
3. Gjaldkeri las og skýrði reikninga félagsins.
Ein fyrirspurn var gerð af Sigmundi Magn-
ússyni og svaraði gjaldkeri. Reikningarnir
voru síðan bornir upp og samþykktir
samhljóða.
4. Sigmundur Magnússon las og skýrði reikn-
inga Domus Medica. Hagnaður af rekstri
gerði gott betur en halda I við verðbólgu,
og fékk Friðrik Karlsson, framkvæmda-
stjóri, klapp fundarmanna fyrir frammistöð-
una. Sigurður Hektorsson spurði, hvernig
hagnaði væri varið og Atli Árnason spurði,
hvort áætlanir væru til um byggingu bóka-
safns og lesstofu. Sigmundur sagði svo ekki
vera, en hugmyndin væri að sínu mati góð
og e.t.v. væri unnt að verja rekstrarhagnaði
einmitt til slíkra framkvæmda.
5. Engin tillaga um lagabreytingar lá fyrir.
6. Kosningar. Kjósa þurfti nýja aðalstjórn
L.R., 3 meðstjórnendur til 2ja ára, 2 til eins
árs og 3 varamenn til 2ja ára. Einnig 7
fulltrúa á aðalfund L.í. og jafnmarga vara-
menn. Fyrir lágu tillögur fráfarandi stjórn-
ar, en að auki hafði borizt listi borinn fram
af 19 læknum. Á fundinum var lesin upp
yfirlýsing 3ja af 19-menningunum, allt með-
lima F.U.L., þar sem þau draga til baka fyrri
stuðning, en lýsa stuðningi við framboð frá-
farandi stjórnar.
a. Tillaga stjórnar:
Ólafur Steingrímsson, formaður,
Stefán B. Matthíasson, ritari,
Guðmundur I. Eyjólfsson, gjaldkeri.
Meðstjórn til 2ja ára:
Halldór Jóhannsson, Hörður Alfreðsson
og Lúðvík Ólafsson.
Meðstjórn til 1 árs:
Atli Árnason og Edda Björnsdóttir.