Læknablaðið - 15.10.1982, Qupperneq 35
LÆKNABLAÐID
245
Guðný Bjarnadóttir, Gunnlaugur Snædal
LEGHVERFING (INVERSIO UTERI)
INNGANGUR
Skilgreining: Með heitinu leghverfing (inver-
sio uteri) er átt við að leg hverfist út, pannig
að innveggir pess snúi út og efri hlutinn snúi
niður. Greint er á milli leghverfingar, sem
verður eftir fæðingu, og leghverfingar sem er
án tengsla við fæðingu. Þær síðarnefndu eru
yfirleitt ófullkomnar (incompleta) og koma
oftast fyrir í sambandi við æxli í legi. Leghverf-
ingar eftir fæðingu skiptast í bráðar, langvar-
andi og endurteknar leghverfingar. Þá hafa
leghverfingar verið flokkaðar í prjú stig eftir
pví hversu mikil hverfingin er. Fyrsta stigs
leghverfing nefnist pegar botn legsins bungar
aðeins inn í sjálft legið. Annars stigs ieghverf-
ing er pað nefnt pegar legbotninn bungar
alveg niður í leghálsopið. Þriðja stigs leghverf-
ing er pað að legbotninn nær niður fyrir ytra
op leghálsins (inversio uteri completa) eða
pegar ekki aðeins legið heldur einnig leggöng-
in hverfast út, en pað kallast fullkomin leg-
hverfing (totalis). Við priðja stigs leghverfingu
herðir ytra op leghálsins að hinum úthverfu
vefjum og veldur æðaprengingu í peim.
Tíðnitölur eru umdeildar vegna pess hversu
sjaldgæf leghverfing er. Á einum stað (4) er tal-
að um að tíðnin sé á milli 1/17000 og 1/200000
fæðingum á Vesturlöndum. Flestir læknar sjá
petta pví aldrei.
Orsakir: Eins og áður sagði eru leghverfing-
ar án tengsla við fæðingar yfirleitt samfara
æxli í legi. Æxlin eru gjarnan vöðvahnútar
(myoma) og leghverfingin gerist hægt á löng-
um tíma, annaðhvort vegna pess að legið
reynir að losa sig við æxlið, eins og um væri að
ræða aðskotahlut, eða vegna pess að stilkaður
vöðvahnútur togar í legbotninn niður á við.
Hins vegar er umdeilt hvað valdi leghverfingu
eftir fæðingu. Þessi fylgikvilli er tíðastur hjá
frumbyrjum (9) eða 52-58,9 %. Staðsetning
fylgju í botni legsins (sem er sjaldgæft) og
afmörkuð svæði með illa samandregnu legi
hafa verið talin orsakandi pættir (9). Þessi gerð
Barst ritstjórn 01/03/82 Sampykkt til birtingar og sent í
prentsmiðju 10/06/82.
leghverfingar getur stafað af eftirfarandi prem
páttum: 1) Skyndilegri tæmingu á leginu; 2)
Þynningu á legvegg par sem smám saman
myndast gúll eða hnútur inn í legið; 3) Einnig
útvíkkun á leghálsi. Margir aðrir pættir koma
til greina sem tengdir eða meðverkandi í
leghverfingu: a) Ótímabær prýstingur fyrir
ofan lífbeinið til að hraða fylgjulosun; b) Tog í
naflastrenginn; c) Slappir kviðvöðvar; d) Af-
brigðileg fylgja; e) Vansköpun á legi; f) Tog í
fasta belgi; g) Vanskapað fóstur; h) Þættir sem
valda gjarnan óeðlilegu pani á legvegg, svo
sem mikið legvatn, fleirburar, einnig langdreg-
in fæðing (inertia uteri); i) Notkun svæfingar-
lyfja, sem valda slökun á leginu.
Greining: Sjúklingur með bráða leghverf-
ingu kvartar oft undan sárum verkjum í
grindarholinu og við skoðun, sem er eina
leiðin til að greina petta, má sjá fyrirferð í
leggöngunum og stundum er fylgjan enn föst
par við. Eitt höfuðatriði við greiningu er að
legbotninn finnst ekki við preifingu á kviðnum.
Það er ekki margt sem kemur til greina við
mismunagreiningu, helst framfall á stilkuðum
vöðvahnút gegnum útvíkkaðan legháls.
Bráð leghverfing hefur í för með sér lost-
hættu (55 % tilfella fá lost) og blæðingu. Ef
petta verður ekki greint fljótlega, deyr u.p.b.
priðji hluti sjúklinganna innan fáeinna klukku-
stunda. í sumum tilfellum er lostið miklu
alvarlegra en blæðingin segir til um (neurogen
shock).
Medferd: Reyna skal viðsnúningu neðan frá
(repositio manualis) strax, helst í djúpri svæf-
ingu. Mælt er með pví að losa ekki fylgjuna, sé
hún enn föst við legbotninn, heldur ýta henni
með upp. Þetta auðveldar viðsnúninguna og
minnkar hættuna á frekari áverka. Ef petta
tekst ekki, verður að skera konuna upp og
rétta legið við pá leiðina eða jafnvel fjarlægja
pað. Það er óalgengt að leghverfing komi aftur
fyrir eftir fyrstnefnda meðferð nerna í sam-
bandi við síðari fæðingar; pá eru auknar líkur
til pess að legið hverfist aftur út. Gömul ráð
við leghverfingu voru m.a. að hella olíu eða
öðrum vökva á legið sem gerði pað auðveld-