Læknablaðið - 15.10.1982, Page 36
246
LÆKNABLADID
ara að snúa f>ví aftur við, eða að láta konurnar
ganga með belti sem hélt leginu inni, eða
binda band um legið og láta það síðan rotna í
burtu. í einni grein (9) er sagt frá ljósmóður
sem skar legið burt med rakhníf og stöðvaði
síðan blæðinguna með ís.
Leghverfing á íslandi: Árið 1980 gerðist pað
á Kvennadeild Landspítalans að kona varð
fyrir leghverfingu á priðja stigi fæðingarinnar.
Petta varð til pess að áhugi vaknaði á pví að
kanna pau tilfelli af leghverfingu sem orðið
hafa á íslandi. Leitað hefur verið í gömlum
heilbrigðisskýrslum, einnig í skýrslum Land-
spítalans frá upphafi, og skrifað hefur verið til
lækna úti á landi. Læknar hafa líka verið
spurðir persónulega og beðnir um að leita í
huga sér. Sá sem einu sinni hefur séð leghver-
fingu gleymir henni seint aftur. Hér á eftir fara
íslensku tilfellin sem fundust í réttri tímaröð:
1) í skýrslu um heilbrigði manna á íslandi árið
1899 saminni af páverandi landlækni, dr. med.
J. Jónassen, stendur svo á bls. 228: »Páll
Blöndal getur um eitt fátítt tilfelli, sem var á
áttræðri konu, sem gekk með prolapsus uteri
chronic. Hann segir svo frá: »Allt legið fallið
fram og fremri veggur vagina og vesica
spennt niður í framfallinu, sem náði 10-12
pumlunga niður fyrir labia og neðst á honum
var stórt sár. Ofan til var slímhimnan breytt í
hart skinn. Konan átti bágt með að kasta af
sjer pvagi; og var vön, er hún settist niður, að
sitja á tveim kistlum og hafa barnslegið niður
á milli peirra. Pannig hafði hún verið í 40 ár og
sinnt húsmóðurstörfum á stóru heimili eins og
ekkert væri um að vera. Orsökina taldi hún
mundi vera, að pegar hún ól síðasta barnið,
kom ekki fylgjan, og var pá nágrannakona
hennar fengin til að ná henni; ljet hún sængur-
konuna spyrna fast í, en náði sjálf í fylgjuna og
togaði svo ósleitilega, að hún datt aptur á bak
með fylgjuna í lúkunum. Prem dögum síðar fór
sængurkonan á fætur til að pvo ull, og stóð við
pað allan daginn, pví kaupstaðarferð var fyrir
höndum og ullarperrir pann dag. Aldrei hafði
hún sýnt sig lækni fyrr.«
2) í skýrslu Landspítalans frá 1931 er talað
um eitt tilfelli af inversio uteri chronica, en
sjúkraskýrsla hefur ekki fundist prátt fyrir leit.
3) í júní 1965 fæddi S.G., 27 ára frumbyrja, á
Akureyri. Fæðingin gekk vel, en konan fékk
geysilega mikla kviðverki u.p.b. hálfri klukku-
stund eftir fæðinguna og smáblæðingu. Við
skoðun upp í leggöngin fannst að um ófull-
komna leghverfingu var að ræða. Konan var
svæfð og gekk auðveldlega að snúa pessu við
neðan frá.
4) í nóvember 1968 kom E.B.H., 16 ára
frumbyrja, á Kvennadeild Landspítalans, en
hún hafði fætt skömmu áður á Fæðingar-
heimili Reykjavíkur og var fæðingin eðlileg.
Konunni fór að blæða mikið eftir fæðingu
fylgjunnar og varð ástand hennar nálægt losti.
Hún var pá flutt á Kvennadeild Landspítalans.
Við skoðun sást að legið var hverft vel niður í
leggöngin. Gerður var viðsnúningur í svæf-
ingu. Ástand konunnar snarbatnaði eftir að
leginu hafði verið snúið við og heilsaðist henni
vel eftir pað.
5) í ágúst 1973 kom K.S.H., 34 ára fjölbyrja,
á Kvennadeild Landspítalans frá Hornafirði,
en par hafði hún fætt sitt tíunda barn nokkrum
klukkustundum áður. Fylgjan var föst og var
sótt með hendi vegna blæðingar hálfri annarri
klukkustund eftir fæðingu barnsins. Varð við
pá aðgerð leghverfing sem gekk vel að snúa
við neðan frá. Konan var í lostástandi og var
send til Reykjavíkur svo fljótt sem unnt var.
Tæpum tveim sólarhringum eftir fæðinguna
fer ástand konunnar að versna aftur og kom í
ljós að fullkomin leghverfing hafði átt sér stað.
Fyrst var reyndur viðsnúningur neðan frá í
svæfingu, en tókst ekki. Var konan pá skorin
upp og reyndur viðsnúningur pá leiðina án
árangurs, og var pá legið tekið að mestu leyti.
Konunni heilsaðist vel eftir petta.
6) í janúar 1974 fæddi B.K.S., 21 árs
fjölbyrja, á Akureyri. Þetta var hröð fæðing og
strax og barnið var fætt féll fylgjan fram og
legið með og var um annars stigs leghverfingu
að ræða. Eftir að fylgjan var losuð frá var
leginu snúið við neðan frá; petta var gert í
svæfingu og gekk auðveldlega. Konunni heils-
aðist vel eftir petta.
7) í mars 1975 fæddi G.J., 20 ára fjölbyrja, í
Borgarnesi. Hún var síðan send hið bráðasta
til Akraness pví fylgjan var föst og var konan í
lostástandi við komuna til Akraness og fylgjan
hálf úti, auk pess sem talsvert blæddi. Við
skoðun kom í Ijós að petta var priðja stigs
leghverfing. Þegar »systolan« var komin upp í
90 mm Hg var konan svæfð og gerður viðsnún-
ingur á leginu neðan frá. Konan var fljót að ná
sér eftir petta.
8) í júní 1980 fæddi R.K., 19 ára frumbyrja, á
Kvennadeild Landspítalans. Annað stig fæð-
ingarinnar var án framgangs og verkir lélegir
orðnir, var pví lögð sogklukka. Barnið var í
»occipito posterior« stöðu og ekki fullsnúið og