Læknablaðið - 15.10.1982, Page 37
LÆKNABLAÐID
247
þurfti að ýta kröftuglega á legbotninn í tveim
síðustu hríðunum. Eftir fæðinguna var sam-
dráttur í leginu ekki góður, en lítil blæðing.
Fylgjan fæddist til hálfs, en kom ekki lengra út.
Var hún þá sótt með hendi, en við það varð
leghverfing og var efri röndin á fylgjunni og
belgir fastir við legbotninn. Leginu var strax
snúið við neðan frá og gekk það auðveldlega.
Töluvert blæddi á meðan á þessu stóð, en það
hætti fljótlega eftir að sett var upp syntoci-
nondripp. Konan stóð sig vel í og eftir aðgerð.
9) í janúar 1981 fæddi A.L.W., 19 ára
fjölbyrja, á Egilsstöðum. Annað stig fæðingar-
innar tók tíu mínútur. Tíu mínútum eftir það
fæddist fylgjan með þrýstingi á legbotninn, fór
þá strax að blæða mikið. Við skoðun fannst leg-
botninn ekki við þreifingu á kviðnum og í
introitus sást úthverft legið. Konan fór í lost af
hröðu blóðtapi og verkjum. Settur var upp
vökvi og gefin lyf til að fá nægilega slökun til
að hægt væri að snúa leginu við neðan frá, en
leghálsinn var þétt samandreginn. Þetta tókst
og batnaði strax almennt ástand konunnar.
Leghálsinn var heill og blæðingin hætti. Áætl-
að blóðtap var 1,5 1. Konunni leið vel eftir
þetta og útskrifaðist 8 dögum síðar.
UMRÆÐUR
Það er augljóst að tölfræðilegir útreikningar
eiga ekki við þegar um svo fá tilfelli er að
ræða. Tvö af þessum níu tilfellum sem höfund-
ar fundu eru þar að auki úr leik strax, því
ekkert fannst skráð um tilfelli nr. 2, og tilfelli
nr. 1 er tekið með til fróðleiks, því ekki er víst
að þetta hafi verið leghverfing þótt ýmislegt í
lýsingunni bendi til þess. Læknirinn hefur þó
talið þetta vera legsig. Á árunum 1965 til 1981
fundust því samtals sjö leghverfingar. Hér
hlýtur að vera um vanskráningu að ræða þar
til á síðustu árum að betri skráning á ýmsum
atvikum varðandi fæðingu á sér stað. Fæðing-
ar á þessu 17 ára tímabili voru u.þ.b. 75000 og
því tíðni leghverfinga 1/10700. Þetta er hærra
hlutfall en um getur í erlendum athugunum (4,
9). Aldur þessara 7 kvenna var 16, 19, 19, 20,
21, 27 og 34 ár. Fjórar þeirra eru fjölbyrjur og
þrjár frumbyrjur. í þrem tilfellum má kenna
fastri fylgju um og í einu of hraðri fæðingu. Ef
til vill stafar eitt tilfelli af ótímabærum þrýst-
ingi á legbotninn á þriðja stigi fæðingarinnar.
Tvö tilfelli virðast hafa gerst sjálfkrafa. í öllum
tilfellunum var brugðist skjótt við og lyktaði
málinu farsællega hjá öllum þótt ein kona
missti legið. Að lokum er rétt að geta þess að
ekki er þess að vænta að höfundar hafi fundið
öll tilfelli af leghverfingum eftir fæðingu sem
átt hafi sér stað á íslandi. Gott væri ef læknar
og ljósmæður sem þetta lesa og vita um fleiri
létu höfunda vita, og væri þá sjálfsagt að birta
þær upplýsingar með tilvísun til þeirra sem
þær hefðu látið í té.
Þeir Iæknar sem aðstoðuðu sérstaklega í
þessari leit að leghverfingum á íslandi voru
Árni Ársælsson, Bjarni Rafnar, Árni Ingólfs-
son og Stefán Þórarinsson og ber að þakka
þeim skjót og góð svör.
SUMMARY
Inversio Uterí, Cases in Iceland from 1881-1981.
Public Health Reports have been registered in
Iceland from 1881 onwards. These have been
investigated considering cases of inversio uteri
postpartum. Eleven cases were found from 1881 till
1981. The first one is from 1899 and is called in the
Report »prolapsus uteri chronica«, but the descrip-
tion rather indicates chronic inversio uteri. The
second registered case is from 1931, but no journal
could be found about it. The third case is registered
in 1965 and from that year until 1981 (incl.) these are
7 reports of postpartum inversio uteri. The reason
for this uneven distribution must be that in the Iast
years registration of different obstetrical complica-
tions has improved very much. In the article all the
last 7 cases of inversio uteri are described, how it
happened and what treatment the patients got. All
these patients recovered without complications
except for one woman (a grand multipara) who
consequently had to go through hysterectomy.
HEIMILDIR
1. Heilbrigðisskýrslur 1881-1974.
2. Skýrslur Landspítala 1931-1964.
3. Fæðingar á fslandi. Fylgirit við heilbrigðis-
skýrslu 1972. Gunnlaugur Snædal, Gunnar
Biering, Helgi Sigvaldason.
4. Lee, Baggish, Lashgari: Acute Inversion of the
Uterus. Obstet. Gynecol. 51: 144-147, 1977.
5. Kitchin, Thiagarajah, May, Thornton: Puerperal
Inversion of the Uterus. Am. J. Obstet. Gynecol.
123: 51-58, 1975.
6. Cumming, Taylor: Puerperal Uterine Inversion:
Report of Nine Cases. C M A Journal 118:1268-
1270, 1978.
7. O’Connor: Recurrent Postpartum Uterine In-
version. Br J. Obstet. Gynecol. 10: 789-790, 1978.
8. Hofmeister, Bunke, Halverson: Inversion of the
Uterus. í Sciarra, McElin: Gynecology and
Obstetrics. Vol. 2. Kafli 81. Harper & Row 1980.
9. Björo, Molne: Propedeutisk Obstetrikk, bls. 324.
Universitetsforlaget, 1977.
10. Garrey, Govan, Hodge, Callander: Obstetrics
Illustrated, bls. 320. Churchill Livingstone 1974.
11. Eden, Holland: Manual of Obstetrics, bls. 496.
Churchill 1948.