Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.10.1982, Side 44

Læknablaðið - 15.10.1982, Side 44
252 LÆKNABLADID skólalæknisskipti í Hafnarfirði. 1 ljós kom, að aðilar höfðu misskillið hvorn annan í umræðum, áður en læknaskiptin fóru fram. Sátt var gerð I málinu, þar sem aðilar hörmuðu þann misskilning, sem orðið hafði milli þeirra. Síðara erindið var frá Vinnuveitendasambandi íslands, sem sendi nefndinni bréf, sem gengið höfðu milli þess og læknis vegna læknisvottorðs, sem læknirinn hafði gefið út. Nefndin sá ekki ástæðu til frekari aðgerða, eftir að skýring læknisins og yfir- lýsing frá sjúklingnum lágu fyrir. Voru Vinnuveit- endasambandinu send afrit af hvoru tveggja, sem þeir sættu sig við. í febrúar sl. barst Siðanefnd erindi, þar sem talsímakona hjá Pósti og Síma setti fram umkvart- anir vegna framferðis trúnaðarlæknis fyrirtækisins. Óskað var eftir, að Siðanefndi »gefi máli þessu gaum og taki það til viðeigandi meðferðar«. Nefndin af- greiddi málið 20. apríl sl. með bréfi til konunnar, þar sem segir: »að eins og mál þetta liggi fyrir, hefur hvorki verið sýnt fram á, að læknirinn hafi brotið siðareglur L.í. né með öðrum hætti gerzt sekur um ámælisverða hegðun«. Ýmis mál 1. Fram kemur í síðustu ársskýrslu, að stjórnin leitaði á sl. ári eftir upplýsingum um göngudeildar- starfsemi á spítölunum I Reykjavík og óskaði eftir því, að svæðafélögin hjálpuðu til að leita upplýsinga um slíka starfsemi. Nokkur svör hafa borizt og skipaði stjórnin því í janúar sl. þá Guðmund Oddsson, Magnús Karl Pétursson og Ólaf Örn Arnarson í nefnd til að vinna úr svörunum og er hinn síðastnefndi formaður nefndarinnar. Gerð verð- ur grein fyrir störfum nefndarinnar á aðalfundinum í júní n.k. 2. Þrátt fyrir margendurteknar tilraunir stjórnar hefur enn ekki tekizt að mynda nefnd til að vinna að heildarendurskoðun á tryggingamálum lækna. Marg- ir læknar hafa lýst miklum áhuga á þessu máli og talið það brýnt, en engu að síður virðist erfiðleikum háð að fá menn til starfa. Eins hefur gengið illa að fá tryggingafræðing til að taka málið að sér, en nú er áætlað, að fulltrúar stjórnarinnar hefji viðræður við Guðjón Hansen í byrjun júní. 3. Á sl. ári lét stjórnin gera athugun á hagkvæmni þess að tölvuvæða bókhald skrifstofu og sjóða. Niðurstaðan úr þeirri athugun var sú, að talið var ráðlegt, að Iífeyrissjóður yrði tölvuvæddur. Stjórn sjóðsins ákvað að fylgja ráðgjöfinni, og hefur verið samið við fyrirtækið Tölvubankann s.f. um að sjá um færslur til að byrja með, en hugmyndin er, að þetta geti orðið upphaf að tölvufærslu alls bókhalds læknafélaganna, þó að ekki sé ástæða til að taka það allt inn nú. Byrjað verður á að setja eldri upplýsing- ar um iðgjöld og réttindi sjóðsfélaga í tölvuna, þannig að áður en langt um líður ætti að verða hægt að senda öllum sjóðsfélögum upplýsingar um líf- eyrisrétt þeirra. Iðgjöld þeirra, sem greiða beint til sjóðsins, verður hægt að innheimta a.m.k. ársfjórð- ungslega. 4. í síðustu ársskýrslu var gerð grein fyrir afskiptum þeim, sem stjórn Læknafélags íslands hafði af deilumálum lækna á Selfossi, þar sem deilt var um í fyrsta lagi, hver eigi að sinna slösuðu fólki, sem leitar til Selfoss og í öðru lagi, hvort yfirlæknir Sjúkrahúss Selfoss skyldi flytjast yfir til hins nýja Sjúkrahúss Suðurlands, þegar það opnaði. Á síðasta ári lagði stjórnin mikla vinnu í að reyna að koma á sam- komulagi, og fóru formaður og framkvæmdastjóri þrjár ferðir austur á Selfoss vegna þessa máls. Samkomulag tókst um, að yfirlæknirinn flyttist yfir á nýja sjúkrahúsið og að heilsugæzlulæknar yrðu ráðnir að hluta til að sama sjúkrahúsi, enda sinntu þeir slysaþjónustu á vegum þess. 5. Á undanförnum aðalfundum hefur ítrekað verið ályktað um miðbókasafn í læknisfræði. Stjórnin hefur rætt þetta mál á fundum sínum, og í framhaldi af því var haldinn fundur 26. marz sl., þar sem sátu fulltrúar stjórnar L.Í., svo og fulltrúar læknabóka- safna spítalalanna í Reykjavík og háskólabókavörð- ur, og var þar einkum rædd sú hugmynd, að læknis- fræðilegt miðbókasafn fengi til bráðabirgða hús- næði í þjóðarbókhlöðunni, sem nú er í byggingu. Ekki fékkst nein endanleg niðurstaða á fundinum, en ákveðið var að halda annan fund um málið. 6. Stjórnin fékk bréf frá læknaráði Landspítala, dags. 21. des. 1981, þar sem greint er frá því, að læknaráðinu hafi borizt til umsagnar frá stjórnar- nefnd ríkisspítalanna tillögur að breytingum á stöðum sérfræðinga í yfirlæknisstöður. í bréfinu var farið fram á, að stjórn, L.í. tæki afstöðu til eftirtal- inna atriða: a. Hvort hægt sé að gera ákveðinn sérfræðing að yfirlækni og þá einnig, hvaða reglur ætti að setja um slíka stöðuhækkun, — b. Hvort hægt sé að búa til yfirlæknisstöðu við ákveðna deild og aðeins sérfræðingar viðkomandi deildar komi til greina sem umsækjendur. Stjórnin ræddi þetta mál vandlega og komst að þeirri niðurstöðu, að þröng túlkun á lögum félagsins gæti hindrað eðlilega þróun sjúkrahúsa og leitt til einhliða ákvarðana ráðherra. Gerð var eftirfarandi bókun um framkvæmd: »Telji stjórn stofnunar, vegna breyttra starfshátta deildar, þörf á að skipa nýjan yfirlækni, án þess að fyrirhugað sé að fjölga stöðum sérfræðinga við deildina, er hægt að breyta sérfræðingsstöðu á deildinni í yfirlæknisstöðu. Áður en sú breyting verður, skal leggja málið fyrir læknaráð stofnunarinnar til samþykktar eða synjun- ar og tilkynna stjórn L.í. Sé læknaráðið samþykkt breytingunni, er staðan auglýst með venj i'-jgum fjögurra vikna fyrirvara fyrir sérfræðinga þá, er starfa á viðkomandi deild. Umsóknargögn skal senda Stöðunefnd (sbr. lög nr. 57/1978), sem metur umsækjendur og raðar þeim, skv. reglum nefndar- innar. Ráðning yfirlæknis fer síðan fram á þann hátt, sem gildir um ráðningu yfirlæknis við viðkomandi stofnun. Nýjar yfirlæknisstöður og yfirlæknisstöður,

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.