Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.10.1982, Qupperneq 47

Læknablaðið - 15.10.1982, Qupperneq 47
LÆKNABLADID 253 sem kunna að losna, skulu pó eftir sem áður auglýstar, svo að allir laeknar geti sótt um þær.« Þessi bókun var kynnt með bréfi Félagi yfirlækna, Sérfræðingafélagi íslenzkra lækna, Félagi ungra lækna, Félagi íslenzkra heimilislækna, læknaráði Borgarspítalans, læknaráði Kleppsspítala, læknaráði Vífilsstaðaspítala og læknaráði Landspítala, svo og öllum svæðafélögum L.í. Engar athugasemdir bár- ust. Málið var síðan tekið fyrir á formannaráðstefnu L.í. og var bókun stjórnarinnar sampykkt einróma. 7. Stjórn Vinnueftirlits ríkisins auglýsti í febrúar 1981 Iausa stöðu yfirlæknis við stofnunina og sóttu prír um starfið. Stöðunefnd mat aðeins einn um- sækjanda hæfan til að gegna stöðunni. Stjórn Vinnu- eftirlitsins neitaði að ráða pann lækni, en vildi aftur á móti annan umsækjanda, sem Stöðunefnd hafði talið óhæfan. Stjórn L.Í. sætti sig ekki við pessi vinnubrögð og gerði bókun á fundi sínum pann 24. nóv. 1981, þar sem segir m.a., að stjórnin sjái sig »knúna til að krefjast pess af félagsmönnum sínum, að peir starfi ekki fyrir Vinnueftirlitið. Með vísan til 18. gr. laga L.Í. varar stjórn félagsins menn alvarlega við pví að taka við stöðu eða starfi hjá framan- greindum aðila, fyrr en viðunandi afgreiðsla er fengin á umsókn læknisins að mati félagsstjórnar.« Bókun pessi var ásamt greinargerð send stjórn Vinnueftirlits ríkisins og ákvörðunin tillkynnt öllum læknum, sem unnu eða stjórnin taldi líklegt, að ætluðu að vinna hjá Vinnueftirlitinu á næstunni. Samkomulag hefur náðst, pannig að læknirinn, sem dæmdur var hæfur til að hljóta stöðuna, hefur tekið að sér afmarkað verkefni fyrir Vinnueftirlitið í hlutastarfi á yfirlæknislaunum. Yfirlæknisstaðan verður auglýst aftur og vilyrði er fyrir pví, að aðeins verði ráðinn í hana læknir, sem telst hæfur að áliti Stöðunefndar. Samkvæmt pessu samkomulagi hefur stjórnin afturkallað bókun sína frá 24. nóv. 1981, sem bannar læknum að vinna hjá Vinnueftirlitinu. 8. Með bréfi, dags. 29. okt. 1981, bauð læknadeild Háskóla íslands L.Í. að skipa fulltrúa í nefnd, sem gera skal frumathuganir á gögnum umsækjenda um sérfræðiviðurkenningu hér á landi og skila formlegri niðurstöðu til deildarráðs um hæfni umsækenda til að hljóta sérfræðiviðurkenningu. Ákveðið var að ganga að pessu boði, og hefur Viðar Hjartarson, ritari L.Í., tekið sæti í nefndinni, en Ólafur P. Jónsson er varamaður hans. Fulltrúi læknadeildar I nefndinni er Árni Kristinsson. Jafnframt er leitað umsagnar prófessors í viðkomandi grein eða kennara I grein- inni, sé enginn prófessor. Endanlega ákvörðun tekur síðan deildarráð læknadeildar að fengnum pessum umsögnum. 9. Á sl. hausti tók stjórnin pátt í umræðum um túlkun samnings um sameiginlegan norrænan vinnu- markað lækna. Þar tókst að samræma skoðun heilbrigðisyfirvalda, læknadeildar og Læknafélags íslands um, að ekki skuli lengur krafizt skyldupjón- ustu í héraði af þeim, sem hlotið hafa Iækningaleyfi í einhverju hinna Norðurlandanna og að samkvæmt samningnum sé ekki hægt að krefjast sérfræðirit- gerðar af peim, sem hlotið hafa sérfræðileyfi í einhverju hinna Norðurlandanna. í samræmi við pað hefur verið gerð breyting á reglum um veitingu sérfræðileyfa á pann hátt, að ekki er iengur krafizt ritgerðar af peim, er sækja um sérfræðileyfi og hafa fullgilt sérfræðileyfi á Norðurlöndum eða tilsvarandi próf frá peim löndum, sem læknadeild viðurkennir. (Sjá Læknablaðið 1982; 68: 5:152). 10. Á hverju ári fær L. í. til umsagnar ýmis frumvörp og reglugerðartillögur. Stjórnin leitar pá gjarnan til þeirra lækna, sem hún telur pekkja til mála og biður pá um aðstoð við gerð umsagnar. Á þessu ári hafa m.a. verið gefin álit og samdar breytingartillögur við eftirtalin Iög, lagafrumvörp og reglugerðir: Læknalög, reglugerð um starfsemi heilsugæzlustöðva, staðgreiðslu opinberra skatta, frumvarp til laga um málefni fatlaðra, frumvarp til laga um tóbaksvarnir, frumvarp til laga um lyfjadreif- ingu, pingsályktunartillögu um ávana- og fíknilyf, pingsályktunartillögu um könnun á lækningamætti jarðsjávar við Svartsengi. Á sl. ári samdi nefnd, skipuð af heilbrigðismála- ráðherra, tillögur að reglugerð um flokkun sjúkra- húsa. L. í átti ekki fulltrúa í nefndinni og tillögurnar voru ekki sendar L. í. til umsagnar. Á hinn bóginn sendu stjórnir læknaráða sjúkrahúsanna í Reykjavík L. í. tillögurnar ásamt umsögnum sínum um pær. Tillögurnar voru ræddar á sameiginlegum fundi stjórna L. í. og L. R. Þó að ekki hafi verið beðið um umsögn læknafélaganna, sendu félögin sameiginlegt álit til heilbrigðismálaráðherra. Gerð var athuga- semd við, að stéttarsamtök lækna voru ekki höfð með í ráðum um samningu tillagnanna og að tillögurnar gera ráð fyrir strangi miðstýringu, sem gerir minnstu tilfæringu innan stofnunar að máli ráðherra. Var sérstaklega mótmælt 12. gr. peirra, sem hljóðar svo: wGöngudeildir skulu reknar við öll deildaskipt sjúkrahús. Þar á að sinna sérhæfðum forrannsóknum þeirra sjúklinga, sem leggjast eiga inn á sjúkrahúsið, eftirmeðferð peirra sjúklinga, sem dvalist hafa á sjúkrahúsinu og sérhæfð meðferð önnur, sem ekki getur farið fram á heilugæslustöðv- um.« Um þessa grein í bréfi L. í. og L. R.: wTólftu grein tillagnanna má skilja svo, að með henni eigi að þurrka út alla sjálfstæða starfsemi lækna í landinu. Stjórnirnar mótmæla þessari stefnu og munu berjast gegn henni með öllum tiltækum ráðum.« 11. í síðustu ársskýrslu var gerð grein fyrir viðbót- arbyggingu við skrifstofuhúsnæði læknasamtakanna og hvernig fyrirhugað væri að innrétta hana. Þessum framkvæmdum er nú lokið. Aðstaða öll á skrifstof- unni hefur stórlega batnað, ekki aðeins fyrir starfs- fólk félaganna, heldur einnig fyrir stjórnir peirra, svo og nefndir og aðra þá, sem kjörnir eru til starfa á vegum læknafélaganna. Útgáfustarfsemi a. Læknablaðið kemur nú reglulega út, 10 tölublöð

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.