Kraftur - 01.06.2005, Page 19
Námskeið sem virkar
Sjálfsstyrkingarnámskeiöið er einstaklega vel
heppnaö framtak sem hjálpaði mér mikið. Að
geta setið í svona hóp og deilt reynslu sinni
með öðrum sem hafa fengið krabbamein og
lært af reynslu þeirra um leið er ómetanlegt.
Við höldum stundum að við séum ein um
reynslu okkar og stundum er erfitt að deila
henni með aðstandendum og vinum. Þrátt fyrir
að þeir séu allir af vilja gerðir til að hjálpa og
styðja mann er stundum eins og það sé erfitt
að útskýra fyrir þeim hvað maður er að ganga
i gegnum. Á námskeiðinu gafst mér tækifæri
til tala um þessa hluti við fólk sem skildi mig
og ég lærði af þeim um leið, auk þess sem ég
iærði mikið af öllu fagfólkinu (sálfræðingur,
hjúkrunarfræðingur, næringarfræðingur o.fl.)
sem kom til okkar og gaf okkur gagnlegar
leiðbeiningar.
Sjúkraþjálfun nauösynleg
Þegar ég byrjaði i sjúkraþjálfunininni var ég
gangandi beinagrind, Ég var búin að missa
alla vöðva og var rétt rúm 43 kg. Ég var mjög
þreklítil og gat ekki setið nema að hafa kodda
undir mér. Með dyggri aðstoð Marjolein,
sjúkraþjálfarans míns, náði ég að byggja upp
vöðvana og öðlast þrek aftur. Hún var með mig
i einstaklingsmeðferð sem mér fannst alveg
frábært þvi að hún fylgdi mér i gegnum allar
æfingarnar. Hún passaði upp á að ég gerði þær
rétt þannig að ég misbeitti ekki likamanum en
um leið hvatti hún mig áfram svo að ég lagði
alltaf örlitið meira á mig í hvert sinn samtímis
því sem hún gætti þess að ég ofreyndi mig
ekki. Ég þakka henni fyrir að vera komin aftur
með þrek og vöðva og vera rúmum 10 kg þyngri
en þegar ég byrjaði.
Aðdáun og þakklæti efst í huga
Þegar mér bauðst fyrst að fara á
endurhæfingardeildina fyrir fólk sem greinst
hefur með krabbamein, var ég ekki alveg viss
hvort það væri eitthvað sem ég þyrfti á að
halda. Ég fór eiginlega meö hálfum huga í
heimsókn þangað, hitti Ernu og sá aðstöðuna
og eftir þá heimsókn var ég til i að prófa.
Ég vissi alveg að ég þyrfti nauðsynlega á
sjúkraþjálfuninni að halda en ég var ekki viss
um hvort iðjuþjálfunin væri nokkuð fyrir mig.
Ég held að mér hafi fundist þetta vera hálfgert
dútl sem ég hefði ekki lengur áhuga á þrátt
fyrir að hafa áður fyrr haft gaman af þvi að
mála og búa til hluti. í dag þá sé ég hvað ég
hafði gjörsamlega rangt fyrir mér og vanmat
starfið sem er unnið þar.
Ég heid ég muni aldrei geta þakkað
nógsamlega öllu þessu yndislega fólki sem
vinnur á endurhæfingardeildinni fyrir það sem
það hefur gert fyrir mig til að hjálpa mér til að
komast aftur út i lífið. Ég dáist að starfi þess
og eldmóði við þröngar aðstæður en um leið
svíður mér sárt að sjá hvað fólki er skorinn
þröngur stakkur og hvað starf þess er oft
vanmetið.
Það sem endurhæfing
hefur upp á að bjóða:
Iðjuþjálfun:
-Einstaklingsviðtöl
-Listasmiðjur
-Fræðslu og sjálfsstyrkingar-
námskeið
Sjúkraþjálfun:
-Einstaklingstimar/
sogæðameðferð
-Hópleikfimi
-Vatnsleikfimi (Grensás)
-Gönguhópar
Hólmfríður Kr. Agnarsdóttir
45 ára,
Grafarvogi
Það fyrsta sem mér datt í hug með iðjuþjál-
funina var einhvers konar föndur en núna
merkir þetta mun meira en það. Núna merkir
iðjuþjálfun félagsskap og skemmtilegt hand-
verk. Það fylgir því ákveðið frelsi að vera með
fólki þar sem maður getur látið allt flakka og
þarf ekki að passa hvað maður segir varðandi
veikindin og annað.
Fólkiö sem skiptir máli
Ég var mest i tréútskurði og fannst það of-
þoðslega gefandi og skemmtilegt. Ég var lika
í Listasmiðjunni og prófaði meðal annars að
mála myndir með akrillitum sem var rosalega
gaman. Sjálfsstyrkingarnámskeiðið fannst
mér einnig frábært og mjög nauðsynlegt.
Félagsskapurinn og vináttan sem varð til á
námskeiðinu og eftir það er alveg ómetanlegt
og gaman að segja frá því að við höldum ennþá
hópinn. Sjúkraþjálfunin hefur einnig mjög
mikið að segja því að hún byggir bæði upp
þrek og úthald og ekki veitti af i minu tilfelli.
Ég var líka með svo fráhæran sjúkraþjálfara.
Bjargaði geðheilsunni
Iðjuþjálfunin hjálpaði mér félagslega og að rifa
mig upp andlega. Það er trúlega alltaf hægt
að breyta og bæta en ég var rosalega ánægð
með allt og mér finnst unnið kraftaverk þarna
hjá Ernu á hverjum degi. Ef ég ætti að breyta
einhverju held ég að það þyrfti að stækka
aðstöðuna svo að allir kæmust að sem þurfa og
vilja. Mér finnst að þetta ætti að vera fastur
liður fyrir alla sem þurfa að ganga í gegnum
meðferð. Það væri því kannski betra að ná
þessari starfsemi út af sjúkrahúsinu og í annað
umhverfi en þó þannig að það yrði ekki dýrara
svo að allir ættu þess kost að koma og vera
með. Að geta verið með í þessu frábæra starfi
sem fer fram í iðju- og sjúkraþjálfuninni var
alveg ómetanlegt fyrir mig og ég held að það
hafi hreinlega bjargað geðheilsu minni.
1 9