Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2007, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2007, Side 8
Öldungadeildarþingmaðurinn John McCain byrjaði þegar í júní síð- astliðnum að ráða sér aðstoðarmenn og undirbúa jarðveginn. Á síðasta ári eyddi hann sem nemur rúmum 25 milljónum króna til að undirbúa kosningarnar sem haldnar verða í nóvember árið 2008. Á sambærileg- um tíma fyrir síðustu kosningar, í lok árs árið 2002, hafði einungis einn vongóður frambjóðandi, John F. Kerry, byrjað að undirbúa kosninga- baráttuna og hafði þá greitt rétt um 286 þúsund krónur, hundrað sinnum minna en McCain nú. Fjölbreytt starfsmannahald Forval flokkanna er haldið fyrr en áður í nokkrum ríkjum. Í Iowa, New Hampshire og Suður-Karólínu munu báðir flokkar velja frambjóðendur strax í janúar á næsta ári. Baráttan er hins vegar þegar hafin. Í minnstu ríkjunum greiða frambjóðendur á bilinu 3,5 til 14 milljónir fyrir yfirlit yfir skráða flokksmenn sem hafa at- kvæðisrétt. Í stærri ríkjum margfald- ast þessi tala. Þá er eftir að greina markhópinn og finna út hvernig er best að ná til hans, með aðstoð mark- aðsfræðinga. Þá eru ráðnir fjölmiðla- menn til að koma frambjóðandanum á framfæri í almennum fjölmiðlum en líka til að gera heimasíður fram- bjóðendanna að litlum fjölmiðli þar sem ræðum verður sjónvarpað og útvarpað með nýjustu tækni. Tímaþjófur Til þess að eiga fyrir launum fólksins og öðrum reikningum þurfa frambjóðendurnir að fara í viða- mikla fjársöfnun. Veislurnar eru þegar byrjaðar, þar sem frambjóð- andinn fer á fjörurnar við fjársterka aðila. Allt þetta tekur gífurlegan tíma frá heimilislífi og öðrum störfum og flestir munu ekki einu sinni fá út- nefningu til að taka þátt í aðalslagn- um. Öldungadeildarþingmaðurinn Evan Bayh tilkynnti í síðasta mán- uði að hann hygðist ekki taka þátt, álagið væri einfaldlega of mikið. „Morgunverðarboð til að safna, svo nokkur símtöl, þá söfnun í hádeg- isverðarboði, nokkur símtöl og svo kvöldverðarboð með styrktaraðil- um og þá er ennþá tími til að hringja nokkur símtöl á vesturströndina,“ sagði hann í samtali við Washington Post. Of snemmt að spá Ýmsar spár eru komnar fram og sýnist sitt hverjum. Flestir telja að John McCain berjist við Rudy Giul- iani um tilnefningu repúblikana og Barack Obama og Hillary Clinton keppi um hylli demókrata. Hins veg- ar er ennþá febrúar 2007 og rúmt ár í að úrslit fáist úr þeim slag, hvað þá úr forsetakosningunum sjálfum, sem fara fram þann 4. nóvember 2008. Þangað til er ekki einungis eitt ár og níu mánuðir, heldur einnig ótalin YouTube-myndbönd, hneykslismál og skítslagir, í bland við kosningalof- orð og kossa á barnskinnar. föstudagur 9. febrúar 20078 Fréttir DV erlendarFréttir ritstjorn@dv.is Gerið góð kaup, mörg húsgögn undir kostnaðarverði, full búð af nýjum vörum á tilboði. Útsala 10-70% afsl. 39.900 kr 13.500 kr Frá 16.900 kr 34.000 kr Fyrsti síminn frá Apple, iPhone byltingarkennda símtækið sem apple setur á markað síðar á árinu. Það var vel við hæfi að Steve Jobs, forstjóri Apple-tölvurisans, skyldi hringja fyrsta símtalið með iPhone- símtækinu til Jonathans Ivy aðal- hönnuðar, þegar þetta nýjasta tæki Apple var kynnt. Þeir tveir eru að margra mati krafturinn að baki við- snúningi í rekstri Apple síðasta ára- tuginn. Steve Jobs er holdgervingur breytinganna og sá sem kastljósið beinist að á meðan Ivy hefur haldið sig til baka. Það undrar engan að Jonathan Ivy sé talinn einn af áhrifamestu hönn- uðum okkar tíma. Hann á heiðurinn af útliti iMac-tölvanna, sem hann umbylti með litríkum hætti fyrir tíu árum, og iPod-tónlistarspilarans. Ástæðan fyrir vinsældunum er ekki síður útlitið en notagildi tækjanna og síðast en ekki síst hversu auðveld þau eru í notkun. Jonathan Ivy er fertugur Englend- ingur sem lærði hönnun í heima- landinu. Eftir námið stofnaði hann lítið fyrirtæki í London og meðal við- skiptavina var Apple-tölvufyrirtæk- ið sem var þá í mikilli krísu. Ivy þáði þrátt fyrir það starf hjá Apple og flutti til Bandaríkjanna. Honum leiddist og það var ekki fyrr en Steve Jobs, stofn- andi þess, sneri til baka til að reisa það úr öskustónni að hjólin fóru að snúast hjá Ivy. Í kjölfar hinna góðu undirtekta sem nýju iMac-tölvurn- ar fengu var Ivy hækkaður í tign og gerður að yfirmanni allrar hönnun- ar. Hann stóðst pressuna eins og vin- sældir iPod sýna og ekki er útilokað að hann verði næsti forstjóri Apple. kristjan@dv.is Jonathan Ivy er afkastamikill hönnuður: Hönnunin í forystu Glæponar í London Þriðjungur Lund- únabúa hefur orðið fyrir barðinu á ein- hvers konar glæpum á síðustu tólf mánuð- um. Borgin þykir hættulegasta höfuðborg í Evrópu, samkvæmt könnun sem Gallup í Evrópu gerði fyrir blaðið Spiegel. Fast á hæla London fylgja Tallinn og síðan Amsterdam en í Lissabon í Portúgal er öruggast að búa, samkvæmt könnuninni. 35 þús- und íbúar 20 Evrópuborga tóku þátt í könnuninni en Reykjavík var ekki með í úrtakinu. Illa við sam- gönguyfirvöld Vega- og gatnamálastjórar í Bretlandi búa sig nú undir það versta eftir að sjö bréfasprengj- ur hafa borist þeim undanfarnar þrjár vikur, þar af ein á dag fyrri hluta þessarar viku. Almenning- ur hefur einnig verið aðvarað- ur um að hafa varann á. Enginn hefur þó lýst ábyrgðinni á hendur sér, jafnvel ekki samtök sem hafa opinberlega gagnrýnt samgöngu- yfirvöld á öllum stigum. Enginn hefur slasast alvarlega af völdum sprengjanna. Geimfarar í geðrannsókn Bandaríska geimferðastofn- unin NASA ætlar í framtíðinni að senda verðandi geimfara í sálfræðirannsókn áður en þeir eru ráðnir og hafa reglulegt eftirlit með geðheilsu þeirra. Þetta er gert eftir að afbrýði- semi í ástum setti geimfarann Lisu Nowak svo úr jafnvægi að hún réðst á konu sem hún taldi keppinaut sinn um hylli annars geimfara. Hún er ákærð fyrir morðtilraun og sætir nú geðrannsókn á vegum NASA. Búist er við að fjárútlát frambjóðenda í kringum forsetakosningarnar í Bandaríkjunum nái áður óþekktum upphæðum í þetta skiptið. Fyrir utan gríðarlegt mannahald reyna frambjóðendurnir að nýta nýjustu tækni og vísindi í sína þágu. Meira en millj- arður dollara í kosningabaráttu Þó að enn sé ár þangað til repúblikanar og demókratar velji sér forsetaframbjóðendur eru vongóðir stjórnmálamenn þegar bún- ir að eyða hundruðum þúsunda Bandaríkjadala. Kosningabar- áttan byrjar mun fyrr en fyrir síðustu kosningar og ávísanirnar sem búið er að skrifa eru langtum hærri en fyrir fjórum árum. Búist er við að frambjóðendur fari í fyrsta skipti upp fyrir milljarð Bandaríkjadala í þessari kosningabaráttu. Rudy Giuliani Nýtur mikillar lýðhylli fyrir störf sín sem borgarstjóri New York þegar ráðist var á tvíbura- turnana árið 2001. George W. Bush Með eitt af mörgum börnum sem hann hampaði þegar hann barðist fyrir endurkjöri árið 2004. Hann situr í embætti til 20. janúar 2009 þegar nýr forseti verður settur inn í embætti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.