Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2007, Side 29
föstudagur 9. febrúar 2007 29DV Sport
Carlos Queiroz, aðstoðarmað-
ur Sir Alex Ferguson hjá Manchest-
er United, hefur látið hafa eftir sér
að félagið muni gera allt til að halda
Cristiano Ronaldo hjá Manchester
United og hann líkir Cristiano Ron-
aldo við engan annan en Michael
Jordan.
„Ég hef séð marga leikmenn á
mínum ferli og ég trúi því að á næsta
áratug muni Cristiano Ronaldo hafa
sömu þýðingu fyrir fótboltann í Evr-
ópu og Michael Jordan hafði fyr-
ir NBA-deildina. Strákurinn býr yfir
ótrúlegum hæfileikum og ég hef
aldrei séð annað eins.
Hann hefur frábæra tækni, er
sterkur, er í góðu hlaupaformi og
hefur mikla sköpunargleði. Auk þess
er hann með frábært hugarfar á æf-
ingum. Ronaldo mun vera stjarna
næstu tíu árin,“ sagði Queiroz í sam-
tali við portúgalska blaðið A Bola.
Ronaldo hefur farið á kostum á
þessari leiktíð og vakið áhuga hjá
spænsku risunum Barcelona og Real
Madrid. Þrálátur orðrómur hefur
verið uppi um að hann muni fara til
Spánar næsta sumar en Queiroz segir
að Manchester United sé með áform
um að bjóða honum nýjan samning,
en núverandi samningur Ronaldos
við félagið gildir til ársins 2010.
„Manchester United er með klára
stefnu í leikmannamálum og leik-
maður þarf ekki endilega að vera á
síðasta ári sínu á samning til að fá
boð um nýjan. Það eru okkar áform
með Cristiano Ronaldo.“
Ronaldo var fyrirliði Portúgals í
æfingaleik gegn Brasilíu á þriðjudag-
inn og samkvæmt ummælum hans
eftir þann leik virðist framtíð hans á
Old Trafford vera óráðin.
„Á þessari stundu er ég eingöngu
að hugsa um að æfa vel á hverjum
degi. Ég veit ekki hvað ég mun gera
eða hvar ég mun spila á næstu sex
mánuðum. Það eina sem ég veit er
að ég vil halda áfram að spila vel og
bæta mig á hverjum degi,“ sagði Ron-
aldo á blaðamannafundi eftir leik
Portúgals og Brasilíu.
dagur@dv.is
Aðstoðarþjálfari United sparar ekki stóru orðin þegar kemur að Cristiano Ronaldo
Líkir ronaLdo við MichaeL Jordan
Cristiano Ronaldo
Hefur farið á kostum með
Manchester united í vetur
og var fyrirliði portúgalska
landsliðsins gegn brasilíu á
þriðjudaginn.
George Gillett yngri var orðinn vel
stæður árið 1984 og átti 22 dagblöð
og átta sjónvarpsstöðvar. 1985 keypti
hann Vail Associates og Bever Creek
og gerði brekkur þeirra að vinsæl-
ustu skíðasvæðum Bandaríkjanna.
1999 var Gillett yngri kosinn einn af
100 áhrifamestu mönnum allra tíma
í skíðaheiminum af Ski-tímaritinu og
árið 2005 var hann tekinn inn í skíða-
og brettafrægðarhöllina í Colorado.
Bæði David Moores stjórnarformað-
ur, sem verður heiðursforseti félags-
ins til lífstíðar, og Rick Parry, sem
mun halda áfram að starfa fyrir fé-
lagið, segja þetta tilboð það rétta fyr-
ir framtíð félagsins.
Vonar að Liverpool verði aftur
stórveldi
Magnús Ólafsson er einn harðasti
stuðningsmaður Liverpool og hon-
um líst vel á hina nýju eigendur.
„Ég hef beðið eftir því að einhver
komi með fjármagn inn í félagið, því
að við vorum ekki samkeppnisfærir
eins og staðan var og ég horfi björt-
um augum á þetta. Liverpool vantar
fleiri góða leikmenn, þar eru alltof
margir miðlungsleikmenn sem eru
ekki færir um að halda merki félags-
ins á lofti.
Liverpool hefur lengi verið í eigu
sömu fjölskyldunnar og Bretarnir
halda töluvert í gamlar hefðir, en nú
er komnir nýir eigendur og ég vona
að Liverpool verði aftur þetta stór-
veldi sem það var. Þetta er stórklúbb-
ur og hefur unnið allt sem hægt er að
vinna og á svo sannarlega skilið að
vera við toppinn.
Því miður ganga íþróttir út á pen-
inga, en það er ekki allt að geta keypt
allt sem til er. Það verður að kaupa
rétt og stilla upp rétta taflinu. Reading
til dæmis er í sjötta sæti þrátt fyrir að
vera með lítil fjárráð.”
Tvö önnur félög eru í eigu Banda-
ríkjamanna sem hafa nú ekki ver-
ið þekktir fyrir fótboltaáhuga sinn.
Manchester United og Aston Villa.
„Auðvitað er sárt að sjá á eftir
þessum liðum í hendur útlendinga,
ég hefði bara viljað hafa þetta áfram
enskt eins og þetta hefur alltaf ver-
ið en tímarnir breytast og mennirn-
ir með og maður verður bara að taka
þátt í því, “ segir Magnús.
Hef oft bölvað Benitez
Liverpool hefur alltaf haldið í
gömul gildi og gamlar hefðir. En árið
1979 braut Liverpool blað í sögu Eng-
lands. Japanska rafeindafyrirtækið
Hitachi samdi við Liverpool og aug-
lýsti framan á búningum félagsins.
Reyndar mátti liðið ekki spila með
auglýsinguna í þeim leikjum sem
sýndir voru í sjónvarpi! Með sölunni
má segja að Liverpool sé komið í það
nútímaumhverfi sem samkeppnisfé-
lögin, Chelsea, Manchester United
og Arsenal séu nú þegar í.
„Þessi gamla hefð er liðin, þetta
er orðinn svo breyttur heimur,” segir
Magnús. „Við verðum bara að horfast
í augu við það að peningarnir ráða,
nú er bara spurning um hver á mestu
peningana og hver getur keypt bestu
leikmennina. Svo þarf réttan fram-
kvæmdastjóra til að stilla upp liði. Ég
er ekki alveg búinn að taka Rafa Ben-
itez í sátt, eins og til dæmis á móti Ev-
erton, það var ekkert nýtt að gerast.
Vantar einhverjar hugmyndir inn
á völlinn. Ég hef oft bölvað honum
bölvuðum kallinum,“ segir Magnús
og hlær.
Magnús flaggar Liverpool-fánan-
um í hvert sinn sem liðið leikur og
viðurkennir að ef hann hefði núm-
erið hjá Benitez, þjálfara Liverpool,
þá væri hann í stöðugu sambandi við
hann. En hann segir að röddin frá
litla Íslandi sé mjóróma.
„Benitez hefur kvartað undan því
að geta ekki keypt leikmenn, en ég
vil hafa leikmenn sem þekkja enska
boltann. Ég er ekki hrifinn af þessum
leikmönnum sem koma að sunnan.
Enski boltinn er svo sérstakur. Ger-
ard Houlier keypti til dæmis helvít-
is þvælu bara, ég var ekki hrifinn af
því hvernig hann stjórnaði þessu.
En það er vonandi að Liverpool fari
núna á skrið, allavega eru mögu-
leikarnir fyrir hendi. Vonandi verð-
ur þetta félaginu til góða því það á
það svo sannarlega skilið,“ segir hinn
geðþekki stuðningsmaður Liverpool
Magnús Ólafsson.
benni@dv.is
Manchester United, Chelsea, Aston Villa, Fulham, Portsmouth,
West Ham og nú Liverpool. Öll þessi lið eru nú í eigu erlendra
fjárfesta. Þeir Tom Hicks og George Gillett yngri gengu frá kaup-
unum á þriðjudag en heildarverðmæti samningsins er 219 millj-
ónir punda. Tom Hicks á fyrir Texas Rangers í NHL-deildinni og
er dyggur stuðningsmaður George Bush forseta. Hicks keypti
meðal annars réttinn að Dr. Pepper og 7up drykkjunum á 100
milljónir dala árið 1985 en seldi tíu árum síðar á tvo og hálfan
milljarð dala. Hann tapaði hins vegar 1,2 milljörðum dala á inter-
netbólunni árið 1999.
Liverpool var í vikunni
selt til bandarískra auðkýf-
inga, Toms Hicks og
George Gillett yngri. Ekki
eru allir Englendingar sátt-
ir en Liverpool er sjöunda
liðið sem erlendir fjárfest-
ar eignast í landinu.
Bandarísk innrás
á anfieLd road
Nýju eigendurnir tom
Hicks og george gillett
yngri stilla sér hér upp
á anfield road, en þeir
hyggjast leggja 215
milljónir punda í
byggingu á nýjum velli.
Komið í hendur nýrra eigenda
eitt frægasta fótboltamerki
sögunnar hefur nú verið selt til
bandaríkjanna. Heildarverðmæti
yfirtökunnar er 470 milljónir
punda eða um 63 milljarðar króna.
íþróttaMoLar
Messi sToRKaR
BaRCa
Lionel Messi vill fá
leyfi frá barcelona
til að taka þátt í HM
undir 20 ára. Mótið
fer fram í júní og júlí
og ef argentínumenn
komast alla leið gæti
Messi spilað sjö leiki. fjórum dögum
síðar byrjar Copa america og er líklegt
að Messi verði valinn í a-landsliðið. Messi
hefur misst af 14 síðustu leikjum barce-
lona og eru ekki miklar líkur á að hann
fái leyfi til að taka þátt í þremur sumar-
keppnum á tveimur árum.
GaRi URaNGa úT
TíMaBiLið
gari uranga, 26 ára leik-
maður real sociedad,
mun væntanlega verða
frá út tímabilið eftir að
hafa meiðst á hné. ur-
anga var borinn af velli
gegn sevilla um síðustu
helgi og eftir röntgenmyndatöku kom
í ljós að hnéð á uranga er rjúkandi rúst.
Hann mun fara í aðgerð sem fyrst og
verður eins og fyrr segir líklega frá í allt
að níu mánuði.
PiRes fúLL úT í
WeNGeR
robert Pires sagði í
viðtali við L’equipe að
þegar arsene Wenger
ákvað að skipta honum
út af í úrslitaleiknum í
Meistaradeildinni hefði
það verið versta stund
ferilsins. „Ég hélt að þetta væri eitthvert
grín þegar ég sá fjórða dómarann
setja númer 7 á spjaldið. Ég hefði tekið
einhvern annan út af. Þetta var verra en
deilur mínar við landsliðþjálfara frakka
og verra en þegar ég meiddist 2002 og
2006.
WiLKiNsoN
fyRiRMyNd oWeNs
Jonny Wilkinson,
rúgbíhetja englendinga,
er orðinn ein helsta
fyrirmynd Michaels
Owen. Wilkinson var frá
vegna meiðsla í þrjú ár en
um síðustu helgi lék hann
stórt hlutverk með rúgbíliði englendinga
sem lagði skota. Owen hefur ekkert
leikið með Newcastle á þessu tímabili,
eftir að hafa meiðst með enska
landsliðinu á móti svíum á HM í sumar.
Hann segir að það hafi verið frábært að
sjá Wilkinson spila því það hafi veitt sér
innblástur í langri leið að bata.
93 MiLLjóNiR
HoRfðU á sUPeR
BoWL
Leikur Indianapolis
Colts og Chicago bears
í super bowl um síðustu helgi er þriðji
stærsti sjónvarpsviðburður sögunnar í
bandaríkjunum. 93,2 milljónir manna
horfðu á leikinn en aðeins lokaþátturinn
af M*a*s*H og super bowl árið 1996
eru áhorfshærri. auglýsingar skipa
stóran sess í super bowl og vestanhafs
eru flestir sammála um að bud Light-
auglýsingin hafi verið sú besta í hálfleik,
en 30 sekúndna auglýsing kostaði 2,6
milljónir dollara.
faVRe HeLdUR
áfRaM
brett favre, sem sló
í gegn í myndinni
there’s something
about Mary sem skartaði ben stiller og
Cameron diaz í aðalhlutverkum, ætlar að
halda áfram að spila amerískan fótbolta.
búist var við að favre, sem þrisvar
hefur verið valinn besti leikmaður NfL-
deildarinnar, myndi tilkynna að hann
ætlaði hætta í boltanum eftir glæsilegan
feril. en eftir að hafa leitt green bay
Packers til fjögurra sigurleikja í röð undir
lok tímabilsins fann favre hungrið á ný
og ætlar að taka eitt tímabil í viðbót.
sTjöRNUdóMaRaR
Michael Jordan og dom-
inique Wilkins, tveir af
frægustu troðslumeist-
urum Nba-deildarinnar,
munu dæma troðslu-
keppnina í stjörnuleikn-
um sem fram fer 17.
febrúar. aðrir sem verða
í dómnefndinni eru þeir Julius erving,
Kobe bryant og Vince Carter sem allir
hafa unnið troðslukeppnina. Þátttakend-
ur í keppninni eru þeir dwight Howard
hjá Orlando, gerald green hjá boston,
tyrus thomas frá Chicago bulls auk
meistarans Nates robinson sem er hjá
New York Knicks.
flaggar þegar Liverpool spilar Magnús
Ólafsson er einn harðasti stuðningsmaður
Liverpool hér á landi og þótt víðar væri
leitað.