Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2007, Blaðsíða 47
DV Helgarblað föstudagur 9. febrúar 2007 47
Sakamál
Ákærður fyrir vændiskonumorðin
Steven Wright, hefur verið ákærður fyrir morðin á fimm
vændiskonum í Ipswich, seint á síðasta ári. Þær Gemma Adams,
Tania Nicol, Anneli Alderton, Paula Clennell og Annette Nicholls
fundust allar afar illa leiknar og skók málið bresku þjóðina, þar
til Wright var loks handtekinn þann 18. desember síðastliðinn.
Hjúkka
seldi barn
Lögreglan í Kirgisistan
handtók hjúkrunarkonu ný-
verið fyrir tilraun til að selja
sveinbarn á rúmar fjöru-
tíu þúsund íslenskar krónur.
Lögreglumaður sem starfaði
á laun leitaði til konunnar þar
sem orðrómur var uppi um að
viðskipti með börn tíðkuðust
á spítalanum. Orðrómurinn
reyndist á rökum reistur því
konan bauð honum barnið til
sölu. Sagði hún væntanlegum
kaupanda að móðir barnsins
væri dáin. Hið rétta var móð-
irin hafði yfirgefið barnið, en
samkvæmt tölum Sameinuðu
þjóðanna búa áttatíu prósent
barna í Kirgisistan undir fá-
tæktarmörkum.
Ákærurnar birtar
Lisa Marie Nowak
ásamt lögmanni
sínum fyrir rétti í
Orlando á flórída.
Bandaríski geimfarinn Lisa Marie
Nowak á yfir höfði sér lífstíðarfang-
elsi fyrir tilraun til mannráns og
morðs. Nowak er sögð hafa ætlað
að ræna geimfaranum Colleen
Shipman og myrða hana en báðar
höfðu þær átt í ástarsambandi við
Bill Oefelein, flugstjóra Discovery-
geimskutlunnar. Nowak óttaðist
samkeppnina við Shipman um hylli
flugstjórans og ók því tæplega
1.400 kílómetra leið, frá Houston í
Texas til Orlando í Flórída, og sat
fyrir Shipman á bílastæði við
flugvöll. Nowak sprautaði piparúða
á Shipman, en hún náði að komast
undan og gerði öryggisvörðum
viðvart. Nowak var handtekin
skömmu síðar á strætisvagnastöð.
Nowak var ákærð fyrir árás og
tilraun til mannráns og úrskurðaði
dómari að hún fengi að ganga laus
gegn 15.500 Bandaríkjadala
tryggingu. Við leit í bíl Nowak fann
lögregla hins vegar hníf, stálkylfu
og gúmmíreimar. Þá fundust
hárkolla og riffill í ruslatunnu
skammt frá strætisvagnastöðinni
þar sem hún var handtekin.
Lögreglu þótti því ljóst hver ætlun
Nowak var. Henni voru birtar nýjar
ákærur, nú fyrir tilraun til mannráns
og morðs. Dómari úrskurðaði
Nowak í gæsluvarðhald. Nowak
sem er gift og þriggja barna móðir
neitar ásökununum.
Dýrkeyptar ástir í geimnum:
Hugðist myrða keppinaut sinn
Deborah Gardner var heillandi
og lífsglöð ung bandarísk kona
sem starfaði sem kennari á veg-
um hjálparsamtaka á Kyrrahafseyj-
unni Tonga á miðjum áttunda ára-
tugnum. Deborah var vinsæl meðal
nemenda og samstarfsfélaga og lík-
aði vistin í Tonga vel.
Deborah var ákaflega falleg kona
og átti sér marga karlkyns aðdá-
endur í hópi hjálparstarfsmanna
á svæðinu. Einn þeirra var Dennis
Priven. Hann var kennari við sama
skóla og Deborah og lagði sig fram
um að vera við stofuna hennar þeg-
ar kennsludegi lauk til að geta fylgt
henni heim. Þetta fór fljótlega í
taugarnar á Deboruh. Dennis gerð-
ist ágengari með tímanum en þrátt
fyrir það þáði hún einu sinni boð
hans um að snæða kvöldmat heima
hjá honum. Það fór þó ekki eins og
Dennis hafði vonast til því hún hafði
engan áhuga á nánari kynnum. Hún
sótti fljótlega eftir þetta um annað
starf innan hjálparsamtakanna til
að komast fjarri honum, enda var
hann farinn að sitja um hana öllum
stundum.
Eitt laugardagskvöld var efnt
til skemmtunar meðal hjálpar-
starfsmanna. Deborah og Dennis
mættu bæði. Deborah var áberandi
í veislunni, ekki bara vegna þess
hve glæsileg hún var heldur einnig
vegna ölvunar. Hún þáði fylgd heim
á leið með karlkyns vini sínum sem
endaði með því að hún gisti næt-
urlangt heima hjá honum. Dennis
hafði veitt þeim eftirför og var ljóst
hvað gerst hafði.
Fimm dögum síðar lét Denn-
is til skarar skríða. Hann hélt heim
til Deboruh um það leyti sem hún
var við það að skríða upp í rúm.
Hann réðist að henni með hníf en
hún streittist á móti eins og brot-
in húsgögn báru síðar vitni um.
Hann hafði hana að lokum undir
og veitti henni djúp sár með hnífn-
um. Nokkrir unglingspiltar sem áttu
leið hjá heyrðu öskrin og þustu í átt
að húsinu. Þegar þeir komu þar að
mætti þeim karlmaður með mátt-
vana konu í fanginu og alblóðuga.
Hann lét hana falla á jörðina þegar
hann sá þá, tók til fótanna og hvarf
út í nóttina. Drengirnir hlúðu að
Deboruh og var hún flutt á spítala.
Tilraunir til að bjarga lífi hennar
báru engan árangur enda var hún
með tuttugu og tvö stungusár á lík-
amanum. Síðaðsta orð hennar var:
„Dennis.“ En þrátt fyrir að enginn
vafi léki á sekt Dennis slapp hann
við fangelsisvist enda var það að-
standendum hjálparsamtakanna
og bandarískum yfirvöldum mikið
kappsmál að ekkert fréttist af mál-
inu. Dennis var ákærður en kvið-
dómur í Tonga taldi hann geðsjúk-
an og sýknaði hann. Dennis var því
fluttur á geðsjúkrahús í Bandaríkj-
unum þaðan sem hann var síðar
útskrifaður. Hann var ekki sóttur til
saka fyrir morðið á Deboruh og býr
nú í New York.
kristjan@dv.is
Dennis Priven, starfsmaður bandarískra hjálparsamtaka í
Tonga, myrti unga samstarfskonu sína á hrottafenginn hátt
í október árið 1976. Vitni sáu Priven alblóðugan bera fórn-
arlambið af vettvangi meðan líf hennar fjaraði út. Gleraugu
morðingjans og skór fundust á vettvangi en kviðdómur í Tonga
sýknaði hann á grundvelli geðveiki. Bandarísk yfirvöld og að-
standendur hjálparsamtakanna lögðu allt kapp á að þagga
málið niður og var Priven sendur heim. Bandarískir geðlækn-
ar töldu Priven hvorki geðveikan né hættulegan og útskrifuðu
hann. Dennis Priven afplánaði því aldrei refsingu fyrir verkn-
aðinn.
Morðinginn dennis Priven gaf sig fram daginn eftir að deborah gardner fannst
myrt. Priven játaði aldrei verknaðinn en var engu að síður ákærður fyrir morðið.
Kviðdómur sýknaði hann sökum geðveiki. Priven var sendur til bandaríkjanna en
geðlæknar þar töldu enga hættu stafa af honum og útskrifuðu hann.
Fórnarlambið síðustu augnablik
deboruh gardner hafa verið hræðileg.
dennis Priven stakk hana ítrekað með
hnífi og fundust að minnsta kosti 20
djúp sár á líkama hennar.
Bandarísk bannhelgi
Brenndi
misnotuð
börn sín inni
Ung móðir í Bandaríkjun-
um brenndi tvö börn sín inni á
heimili þeirra eftir að upp komst
að faðirinn hafði beitt eldra
barnið, fjögurra ára dreng, kyn-
ferðislegu ofbeldi. Yngra barnið
var nokkurra mánaða gamalt.
Að sögn nágranna fjölskyldunn-
ar varð húsið fljótlega alelda og
heyrðist þá drengurinn kalla
á mömmu sína. Hún brást við
með því að loka hurðum þannig
að ekki heyrðist í barninu. Hún
hvarf svo af vettvangi án þess að
nágrannarnir gætu nokkuð gert
til hjálpar börnunum. Báðir for-
eldrarnir voru handteknir stuttu
síðar. Reiknað er með að faðirinn
fái fjögurra ára fangelsi fyrir kyn-
ferðisofbeldið en móðirin á yfir
höfði sér lífstíðarfangelsi.
27 ár fyrir
miltis-
brandsgabb
Fertugur síbrotamaður,
Charles E. Fuller frá Phoenix í
Bandaríkjunum, var í vikunni
dæmdur í 27 ára fangelsi fyrir að
senda saksóknara í máli gegn
sér umslag sem grunur lék á í
upphafi innihéldi miltisbrand.
Duftið í umslaginu reyndist
skaðlaust, en eftir hrinu miltis-
brandsmála þar í landi árið 2002,
eru mál af þessu tagi litin afar
alvarlegum augum í mörgum
fylkjum.