Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2007, Page 56
föstudagur 9. febrúar 200756 Helgarblað DV
Ný plata
frá Arctic
Monkeys
Önnur plata bresku indírokksveit-
arinnar Arctic Monkeys kemur út
23. apríl og mun heita Favourite
Worst Nightmare. Strákarnir í Arctic
Monkeys skutust upp á stjörnuhimin-
inn í janúar 2005 þegar platan What-
ever People Say I Am, That‘s What I‘m
Not kom út. Platan varð söluhæsta
frumraun í sögu Bretlands og skutu
þeir meðal annars sjálfum Bítlunum
ref fyrir rass. Alex Turner, forystu-
sauður sveitarinnar, hefur sagt að
Favourite Worst Nightmare verði þó
nokkuð frábrugðin fyrri plötunni.
Chinese
Democracy í mars
Á heimsíðu ræflarokkaranna í guns
N‘ roses er greint frá því að platan Chin-
ese democracy muni koma út 6. mars.
sennilega hefur engin plata í tónlist-
arsögunni fengið jafnmarga útgáfu-
daga sem ekki hafa staðist og þessi.
upptökur á plötunni hófust árið 1994
en stuttu seinna leystist sveitin upp. axl
hefur síðan verið að berjast við að koma
plötunni út og virðist svo vera að nú sé
komið að því en án allra upprunalegu
meðlima sveitarinnar sem hafa alla tíð
verið á móti útgáfunni.
Með eigin
fatalínu
Þrátt fyrir að komast í kast við lögin í
næstum hverri viku finnur rapparinn dMX
sér ávallt tíma til þess að græða pening.
Nú er rapparinn kominn í tískubransann
og stefnir á að framleiða eigin fatalínu.
alvöruföt, fyrir alvörufólk, segir í tilkynn-
ingu sem rapparinn gaf út fyrir skemmstu,
en í henni kom einnig fram að mikil
áhersla yrði lögð á litríka boli, gallabuxur
og skyrtur. Þá mun fatalína dMX einnig
eiga að höfða til kappakstursaðdáenda
og ökumanna. dMX þarf samt eflaust að
koma sínum málum hjá hinu opinbera á
hreint, áður en hann kynnir evrópubúum
fatalínuna, en rapparinn var handtekinn
fyrir að keyra bíl með útrunnið ökuskír-
teini fyrr í vikunni.
Tónlistarmaðurinn Prince hefur verið gagnrýndur mikið fyrir
atvik á Super Bowl-tónleikunum:
Prince sagður vera
með dónaskap
Eins og frægt er var úrslitaleikur
NFL-deildar Bandaríkjanna, Super
Bowl, á sunnudaginn. Það var tón-
listarmaðurinn Prince sem kom
fram og skemmti í hálfleik, en löng
hefð er fyrir því að fá þekkta tónlist-
armenn til að skemmta þá og hafa
meðal annarra Paul McCartney, Just-
in Timberlake og Janet Jackson kom-
ið þar fram á undanförnum árum.
Nú hafa margir kvartað sáran und-
an tónleikum Prince og segja hann
hafa sýnt íþróttinni og aðdáendum
sínum óvirðingu. Á tónleikunum var
skuggamynd af söngvaranum varp-
að á tjald og leit þá gítar hans út fyr-
ir að vera nokkurs konar reðurtákn.
Prince tók alla sína þekktustu slagara
á tónleikunum og var það í þekktasta
laginu, Purple Rain, sem umdeilda
atvikið átti sér stað. Talsmaður NFL-
deildarinnar, Greg Aiello, segir að
deildinni hafi ekki borist nein form-
leg kvörtun um tónleika Prince enda
sé það fásinna að kvarta undan jafn
smávægilegum atburði. „Við virðum
auðvitað allar skoðanir fólks, en það
þarf mikið ímyndunarafl til þess að
gera tónleikana að einhverju deilu-
máli, þetta var nú bara gítar,“ segir
Aiello í viðtali við daglaðið the New
York Daily News. Prince hefur ekki
tjáð sig neitt um málið. dori@dv.is
Umdeilda atvikið
Þegar skuggamynd
af söngvaranum
var varpað á tjald
brá mörgum. en
skuggamyndin fór
víst fyrir brjóstið á
einhverjum.
Prince tók alla helstu
slagara sína á super bowl,
á annars umdeildum
tónleikum.
Tónlistarmaðurinn Pétur Ben
spilaði í Kaupmannahöfn á mið-
vikudaginn. Sérlegur útsendari
DV var á tónleikunum og
skemmti sér konunglega.
Kynnir sig fyrirDönum
Pétur sló á létta strengi milli laga
Þessar stúlkur kunnu vel að meta það.
Fullt út úr dyrum
Pétur ben hélt stutta tónleika í
verslun 12 tóna í Kaupmannahöfn.
Pétur Ben
einn og óstuddur á sviðinu.
Tónlistarmaðurinn Pétur Ben hefur gert víðreist um Danmörku í vik-unni. Á þriðjudag spil-aði hann á tónleikum í Álaborg, í Kaupmanna-
höfn á miðvikudag og í Árósum í
gærkvöld. Platan hans, Wine for
My Weakness, hefur fengið mjög
góða dóma í dönskum fjölmiðl-
um undanfarið. Það var því ekki
undra að vel var mætt á tónleik-
ana í Kristjaníu í Kaupmannahöfn
í fyrrakvöld en íslenska tónlistar-
félagið Beatless Propaganda stóð
fyrir þeim.
Pétur bauð upp á einfaldari út-
gáfur af lögum sínum enda einn
á sviðinu með kassagítar. Það
kom þó aldeilis ekki að sök enda
er hann mjög flinkur gítarleikari
og krafturinn sem einkennir flest
lög plötunnar komst vel til skila.
Undir lokin tók Pétur svo lögin
Break on Through eftir Doors og
Michael Jackson-slagarann Billie
Jean, sem tónleikagestir kunnu
vel að meta.