Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2007, Qupperneq 57

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2007, Qupperneq 57
Sviðin jörð á Rósenberg Kántríhljómsveitin Sviðin jörð leikur lög af plötunni Lög til að skjóta sig við á Café Rósenberg um helgina. Tónleikarn- ir hefjast klukkan 22, bæði föstudags- og laugardagskvöld. Hljómsveitina skipa þeir Freyr Eyjólfsson, Magnús Ein- arsson, Hjörtur Howser, Einar Sigurðs- son og Ragnar Sigurjónsson. Meðlim- ir Sviðinnar jarðar lýsa tónlistinni sem tregafullri kántrítónlist um dauða- drykkju og almennt vonleysi. Á plötunni Lög til að skjóta sig við eru 13 frumsam- in lög með textum eftir Davíð Þór Jóns- son um eymd, sorg og þjáningu. Abbababb frumsýndur Söngleikurinn Abbababb eftir Dr. Gunna verður frumsýndur í Hafnar- fjarðarleikhúsinu á sunnudaginn kl. 17. Næstu sýningar eru svo helgina eftir. Það er María Reyndal sem leik- stýrir verkinu en doktorinn sjálfur sér um tónlistina. Meðal leikenda eru Atli Þór Albertsson, Álfrún Örnólfsdóttir og Sigurjón Kjartansson. Miðasala er hafin og hægt að nálgast allar nánari upplýsingar á heimsíðu sýningarinnar, abbababb.is. Rottweiler í Eyjum XXX Rottweilerhundar ætla að bregða sér til Vestmannaeyja á laug- ardag og halda tvenna tónleika. Báðir tónleikarnir fara fram á Prófastinum og er það Dj Danni Deluxe sem hitar lýðinn upp. Fyrri tónleikarnir eru fyrir 18 ára og yngri og hefjast klukkan 17. Miðaverð er 1000 krónur við inngang. Húsið er svo opnað klukkan 23 fyrir seinni tónleikana og er hægt að kaupa miða á 1000 krón- ur í forsölu á Lundanum en annars 1500 krónur við inngang. DV Helgarblað FÖSTuDAGuR 9. FEBRúAR 2007 57 BuBBi Gerir Ég er að fara að gera plötu á næstunni með Mín-us, mínus Þröstur og Krummi það er að segja,“ segir tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens. Bubbi sem var valinn söngvari ársins á Íslensku tónlistarverðlaun- unum ekki alls fyrir löngu er að fara að vinna að gerð plötu með þeim Bjarna Magnúsi Sigurðs- syni, Birni Stefánssyni og Frosta Logasyni úr hljómsveitinni Mín- us. Bjarni Magnús og Björn hafa áður leikið með Bubba en Frosti kemur nýr inn. Mikill aðdáandi Mínuss „Bjarni og Bjössi spiluðu með mér í Þjóðleikhúsinu á sínum tíma,“ segir Bubbi og talar um að það hafi verið kveikjan að sam- starfinu. Bæði Bjarni og Björn voru hæstánægðir með samstarf- ið þegar DV tók viðtal við þá fé- laga á þeim tíma og töldu grund- völl fyrir frekara samstarfi sem nú er raunin. „Ég hef líka alltaf verið mikill aðdáandi Mínuss,“ segir Bubbi en Mínus hefur gert það gott undan- farin ár og þá sérstaklega með plötunni Halldór Laxness sem fékk frábæra dóma hér heima sem og erlendis. Þeir félagar þykja allir færir hljóðfæraleikar- ar og var Björn valinn fjórði besti trommari heims af lesendum rokktímaritsins Metal Hammer síðasta sumar. Ný plata er síðan væntanleg frá Mínusliðum í sum- ar en þeir luku nýlega við upptök- ur í Los Angeles. Alvöru rokkplata „Þetta verður bara rokkplata, ef svo má að orði komast,“ segir Bubbi um þá tónlist sem þeir fé- lagar koma til með að leika. DV hafði heimildir fyrir því að fjór- menningarnir myndu jafnvel snúa sér að gamla góða pönkinu en Bubbi segist ekki geta stað- fest það. „Þetta er nú ekki kom- ið á neinn rekspöl, þannig, og því erfitt að segja nákvæmlega hver útkoman verður eða þá hvenær,“ segir Bubbi að lokum. Samstarf Bubba og Mínusliða verður án efa ferskur blær inn í ís- lenskt tónlistarlíf þar sem mætast einn reynslumesti og farsælasti tónlistarmaður landsins og fersk- ustu ungu rokkhundar Íslands. asgeir@dv.is plötu með mínusliðum Bubbi Morthens Gerir plötu með þremur meðlimum Mínuss. Nýja hljómsveitin Bandið hefur ekki hlotið nafn ennþá. Dylan neitar að hafa átt í ástarsambandi við fyrirsætuna Edie Sedgwick, þrátt fyrir vísbendingar um annað: Bob neitar ástarsambandi Kvikmyndin Factory Girl var frumsýnd vestanhafs fyrir jól og er væntanleg til Íslands. Kvikmynd- in fjallar um fyrirsætuna Edie Sedg- wick, sem vann náið með listamann- inum Andy Warhol og var honum mikill innblástur. Myndin hefur valdið miklu fjaðrafoki, en aðeins nokkrum dög- um fyrir frumsýningu hótaði tón- listarmaðurinn Bob Dylan að höfða mál á hendur framleiðanda henn- ar. Í myndinni kemur fram að Bob hafi átt í ástarsambandi við Edie og er ýjað að því að Bob beri ábyrgð á dauða hennar, en eftir að sam- vistum þeirra lauk fór Edie að nota heróín og að lokum svipti hún sig lífi. Segir Bob að frjálslega sé far- ið með staðreyndir í myndinni og neitar hann alfarið að hafa átt í ást- arsambandi við Edie. Málum lauk þannig að nafn Dylans er ekki notað í myndinni heldur er hann einfald- lega kallaður „tónlistarmaðurinn“. Það er leikarinn Hayden Christian- sen sem fer með hlutverk tónlistar- mannsins. George Hickenlooper, leikstjóri Factory Girl skilur ekkert í Dylan og segir það alveg klárt mál að hann sé ein af aðalpersónum myndarinn- ar. „Við köfuðum ítarlega í líf Edie og Bob Dylan spilaði stóra rullu í lífi hennar. Meira að segja bróðir hennar sagði okkur að hennar mesti missir hefði verið Bob Dylan,“ seg- ir George og hneykslast á framkomu Dylans. Ennfremur segir leikstjórinn að í myndinni hafi samband Dylans og Edie verið fegrað mikið og því ætti Bob að fagna, en ekki öfugt. Það hef- ur löngum verið sagt að plata Bobs, Blonde on Blonde, fjalli að miklu leyti um Edie, en þar má finna mörg textabrot sem tengjast fyrirsætunni. Bob Dylan Stendur fast á sínu og segist aldrei hafa átt í nánu sambandi við Edie Sedgwick. Factory Girl Fjallar um líf fyrirsætunnar Edie Sedgwick og samskipti hennar við listamenn- ina Andy Warhol og Bob Dylan. Bubbi Morthens og þrír meðlimir hljómsveitarinnar Mínus hyggjast gera plötu saman á næstu misserum. Bubbi segir að þar verði rokk í fyrirrúmi. Kynnir siG fyrir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.