Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2007, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2007, Síða 10
neytendur fimmtudagur 26. apríl 200710 Neytendur DV Sjoppur Svindla Neytendasamtökin hafa lokið við að kanna verð í 64 sjoppum og bensínstöðvum á höfuðborg- arsvæðinu til þess að fylgjast með verðbreytingum í kjölfar lækkunar virðisaukaskatts á matvælum, þar með talið á sæl- gæti og gosdrykkjum. Samtök- in könnuðu verð á 300 vöruteg- undum og valda niðurstöðurnar vonbrigðum, en aðeins sex sjoppur skiluðu virðisauka- skattslækkuninni að fullu. 28 sjoppur á höfuðborgarsvæðinu fá einkunnina ófullnægjandi frá samtökunum. Þá kemur fram að óbreytt verð er ennþá í fimm sjoppum á höfuðborgarsvæð- inu. Verslanirnar sem um ræðir eru Grandakaffi, Aðalhornið, Sælgætis- og vídeóhöllin, Sölu- turninn Bæjarhrauni og Trisdan á Lækjartorgi. Neytendasamtök- in krefjast þess að þeir sem ekki hafa skilað lækkuninni geri það strax. Mundu! Það er algengt að letur á kassakvittunum hverfi með tímanum, svo þær verða ólæsilegar. Ef um kaup er að ræða sem skipta miklu máli getur verið ráðlegt að taka ljósrit af kvittuninni og geyma hana á stað þar sem hún nuddast ekki saman við annan pappír eða efni. Komi Sér að efninu Ögmundur Jónasson hvetur fyrirtæki til þess að fjalla um kjarna málsins í auglýsingum sínum, svo sem um verð og gæði þeirrar þjónustu sem þau bjóða. Í gestapistli sínum á heimasíðu talsmanns neytenda, talsmadur. is, segir Ögmundur að neytend- ur vilji heyra um lána- og vaxta- kjör, verð á þjónustu og vörum, en það sé ekki raunin því þau leggi fyrst og fremst áherslu á að skapa sér jákvæða ímynd með því að tengja sig við jákvæð verk- efni. Pistil Ögmundar má lesa í heild sinni á fyrrgreindri vefsíðu. Olíuverð hefur hækkað upp á síðkastið og kostar lítri af bensíni víða 118 krónur í sjálfsafgreiðslu. Ólafur Klemensson, hagfræðingur í Seðlabankanum, spáir áfram- haldandi hækkun. Sé miðað við að meðalakstur á ári sé 20.000 kílómetrar, kostar bens- ín 472.000 krónur á ári fyrir bíl sem eyðir 20 lítrum á hundraði. Álögur hins opinbera eru um það bil 55 prósent af smásöluverðinu. miKil ánægja Mikil ánægja er meðal neyt- enda með kvörtunarþjónustu Neytendastofu, þetta kemur fram í könnun sem stofnunin lét gera nýlega. Könnunin var send til 40 stærstu viðskiptavina þjónustunnar og samanstóð hún af tíu spurningum með fimm svarmöguleikum. Svarhlutfall var 58 prósent og kemur fram að yfirgnæfandi meirihluti svarenda var ýmist mjög ánægður eða frekar ánægður með starfsemi kvörtunarþjónustunna Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað að undanförnu, eftir að hafa lækkað fyrir nokkru og kost- ar bensínlítrinn víða rúmlega 118 krónur í sjálfsafgreiðslu. Sé mið- að við að bensínlítrinn kosti 118 krónur, fara um það bil 55 prósent af smásöluverðinu í opinber gjöld, en föst álagning ríkisins á hvern bensínlítra er 42,23 krónur, óháð verði hverju sinni. Virðisauka- skattur leggst síðan ofan á álögur ríkisins og smásöluverðið. Álögur hins opinbera eru því í heildina um það bil 65 krónur af 118 krón- um. Innkaupsverð olíufyrirtækja á olíu eru 30 prósent af smásölu- verðinu, eða um það bil 35 krónur á hvern lítra. Samkvæmt upplýs- ingum frá Seðlabanka Íslands eru álagningar fyrirtækjanna um það bil 15 prósent af heildarverðinu og fá olíufyrirtækin því rúmlega 17 krónur í sinn hlut fyrir hvern seld- an lítra. Árið 1999 var reglum um álög- ur ríkisins breytt úr ákveðinni prósentu í fasta krónutölu. Þetta var gert til þess að koma í veg fyr- ir að olíuverð hér á landi hækkaði enn frekar, þegar heimsmarkaðs- verð hækkaði. Þannig eru álögur ríkisins hlutfallslega minni þegar heimsmarkaðsverð á olíu er hátt, en meiri þegar verðið lækkar. Hálf milljón á ári í bensín Sé miðað við að meðalakstur á hvern bíl séu 20.000 kílómetrar á ári, er bensínkostnaður á bíl sem eyðir tíu lítrum á hundraði í blönd- uðum akstri, um það bil 235.000 krónur á ári. Á bíl sem eyðir fimmt- án bensínlítrum á hundrað kíló- metrum, kostar um það bil 355.000 krónur að keyra sömu vegalengd. Sé miðað við að bíll eyði tuttugu lítrum á hundraðið, líkt og marg- ir stærri fólksbílar og jeppar gera, kostar 472.000 krónur að keyra sömu vegalengd, sé áfram mið- að við að lítri af bensíni kosti 118 krónur. Verð hækkar áfram Ólafur Klemensson, hagfræð- ingur í Seðlabanka Íslands telur að heimsmarkaðsverð á olíu muni áfram fara hækkandi, þótt ekki sé gert ráð fyrir mikilli hækkun. Hvað veldur því að heimsmarkaðsverðið hækkar? „Í fyrsta lagi er það vegna þess að olíubirgðir hafa minnkað í Bandaríkjunum og það er ennþá mikil eftirspurn eftir olíu í Kína og öðrum hraðvaxtarmörkuðum. Þá eru Opec-ríkin miklu nær því að ná markmiðum sínum í framleiðslu, en yfirleitt hafa þau farið fram fyr- ir þau mörk sem þau hafa ákveðið sjálf,“ segir hann og heldur áfram: „Það undirliggjandi pólitíska og hernaðarlega ástand sem ríkir í olíuframleiðsluríkjum við Persa- flóa og í Miðausturlöndum, hefur einnig áhrif. Það þarf ekki mikið út af að bregða til þess að verð- ið hækki, nýlega voru fréttir af því að skæruliðar hefðu ráðist á olíu- hreinsunarstöð í Eþíópíu og drepið kínverska starfsmenn hennar. Við það hækkaði verðið einnig.“ Hann segir það einnig algengt að olíuverð hækki á þessum tíma ársins. Heildsalar eru að birgja sig upp fyrir mjög aukna notkun yfir sumartímann, bæði í Evrópu og Bandaríkjunum. „Spár gera ráð fyrir því að verðið muni hækka um 5 til 6 prósent á næstu misserum.“ Leyfilegar fullyrðingar á umbúðum matvæla verði teknar saman: Skýrari reglur Umhverfisstofnun kynnti í gær nýjar Evrópureglur um fullyrðing- ar í merkingum matvæla, sem taka gildi í Evrópusambandinu þann 1. júlí næstkomandi, enn er ekki ljóst hvenær þær taka gildi hér á landi. Í þrettándu grein reglugerðarinn- ar er aðildarlöndum ætlað að safna saman fullyrðingum sem þau óska eftir að koma á lista yfir leyfilegar fullyrðingar á matvælaumbúðum í framtíðinni. Frestur til þess renn- ur út í janúar á næsta ári og verða samþykktar reglur birtar í janúar árið 2010. Núgildandi eru strangar reglur um svo kallaðar næringafræðilegar fullyrðingar á umbúðum sem boðn- ar eru til sölu, en þær eru meðal annars fullyrðingar um að varan sé sykurskert, fituskert eða trefja- rík. Á vef Umhverfisstofnunar segir til dæmis að til þess að mega kalla matvöru orkuskerta, þurfi að skerða orkuna í vörunni um 25 prósent svo hún geti löglega talist orkuskert. Í fréttatilkynningu frá Umhverf- isstofnun segir að mikilvægt sé fyr- ir íslenskan iðnað og innflytjendur matvara frá löndum utan Evrópu- sambandsins að fá tækifæri til að koma á framfæri þeim fullyrðing- um sem þeir óska eftir að nota. Umhverfisstofnun mun því safna saman óskum á Íslandi og koma þeim á framfæri við Evrópusam- bandið, jafnvel þótt reglugerðin verði ekki komin í gildi hér á landi á þeim tíma sem hún tekur gildi í Evrópu. verð hækkar á næstu mánuðum Valgeir Örn ragnarsson blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is Dýr dropinn innkaupsverð á olíu er um það bil 30 prósent af smásöluverðinu. ríkið tekur 55 prósent í sinn hlut, miðað við núgildandi verð. seðlabanki Íslands gert er ráð fyrir áframhaldandi hækkun á olíu. Umbúðir Strangar reglur gilda um hvað má fullyrða á umbúðum matvæla.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.