Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2007, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2007, Blaðsíða 30
fimmtudagur 26. apríl 200730 Síðast en ekki síst DV Sandkorn Alvöru sjóböðum fyrir alvöru Ís- lendinga í Nauthólsvíkinni með Sjósundfélagi Íslands eða þá sjó- baði í nýja sjópottinum í Laugar- dalslaug fyrir þá sem leggja ekki í fimm gráðurnar. Hvort tveggja er þó hollt og gott og hressandi. Það er fátt jafnuppörvandi og nýja brumið sem er farið að láta á sér kræla svona á fyrstu dögum vorsins. Svo er grasið líka farið að grænka. Um helgina væri tilvalið að skella sér í gönguferð í næsta skógi og anda að sér vorilminum og byrja strax að hlakka til sumarsins. Þeir sem ekki nenna í bílferð út fyrir bæ- inn geta þess í stað farið í göngutúr um nágrenni sitt og skoðað gróð- urinn lifna við í húsagörðum og al- menningsgörðum. Um helgina er spáð allt að 20 stiga hita á Austurlandi. Við mælum með því að gefa skít í dagatalið, grafa upp útilegudótið í geymsl- unni, dusta af því rykið og pakka sér niður í útilegu. Það er frekar flott að geta sagt frá því að hafa far- ið í útilegu í apríl! Það er ekki seinna vænna en að fara að koma sér í form eftir að hafa lagst í híði um langan og dimman vetur. Við mælum með því að hefja nú þegar undirbúning fyrir Reykja- víkurmaraþonið, sem fram fer í lok sumars, hvort sem ætlunin er að hlaupa skemmtiskokk eða alvöru maraþon. Byrjið samt rólega svo harðsperrurnar drepi ykkur ekki. Við mælum með... ...Vorferð út í náttúruna ...Sjóböðum ...útilegu live reykjavík Sú saga flýgur nú fjöllum hærra að Live Earth-tónleikar verði haldnir hér á landi í júlí og kæt- ast þá margir tónlistarunnendur. Al Gore og aðrir skipuleggjend- ur tónleikanna munu hafa horft hýru auga til Miklatúns eftir vel heppnaða tónleika Sigur Rósar þar síðasta sumar. Getgátur um hvaða erlendu tónlistarmenn munu koma fram á tónleikunum munu fara á fullt á næstunni, en miðað við Live Aid-tónleikana sem haldnir voru árið 2005, má telja nær öruggt að hópur af er- lendum stórstjörnum muni koma fram, ef af tónleikunum verður. opna á laugardag Nýjar hipstera-verslanir munu opna á Laugaveginum um helg- ina í gömlu húsakynnum stuttermabola- verslunarinnar Ósóma og á hæðunum fyrir ofan. Ráðgert er að opna húsið á laugardag og mun plötu- snúðurinn knái DJ Na- talie, opna plötubúð í anda gömlu Hljómalindar, þar sem tónlista- runnendur geta komið og grúskað í plötum. Þá munu „second hand,“ búðirnar Elvis og Spútnikk opna verslanir í sama húsi. mjóddin reið X-inu Í auglýsingum útvarps- stöðvarinnar X-ins 977 að undan- förnu hafa þeir félagar gert grín að lögum á Íslandi um að bannað sé að kaupa bjór í matvöruverslun- um á meðan slakað sé á löggjöf- um um vændi. Ekki eru allir á eitt sáttir við þessa herferð, því aug- lýsingin: „Bannað að kaupa bjór í matvöruverslunum, en leyfilegt að kaupa mellu í Mjóddinni,“ fór mikið fyrir brjóstið á forsvars- mönnum verslunarkjarnans í Mjódd og eftir kvörtun þeirrar síð- arnefndu tók X-ið auglýsinguna úr spilun. á túr Á bloggsíðunni vallarinn.blog- spot.com, segir Valdís Þor- kellsdóttir einn trompetleikara Bjarkar, frá ævintýrum sínum og upplifun á heimstónleikaferð þeirra sem nú er nýhafin. Björk og föruneyti eru nú á ferð um Bandaríkin og lýsir Valdís í máli og myndum því sem ung stúlka upplifir í heimstónleikaferð með einni skærustu tónlistarstjörnu heims. Björk valdi eins og frægt er orðið hóp ungra íslenskra hljóðfæraleikara til þess að koma með sér á tónleikaferð. ...HeilSuátaki veðrið ritstjorn@dv.is föStudagurfimmtudagur 4 4 7 4 2 4 4 7 7 7 7 6 9 8 9 13 10 8 3 7 8 6 4 3 4 2 2 2 5 7 11 2 5 11 9 8 7 17 10 9 4 8 9 9 Mánudaginn 30. apríl verður haldinn galadansleikur í Ís- lensku óperunni. Veislustjóri og einn af skipuleggjendum kvöldsins er söngvarinn dav- íð guðmundsson, sem segist hafa fengið hugmyndina eftir að hafa verið í námi í Vínar- borg þar sem mikil hefð er fyrir slíkum hátíðarböllum. ÓPERUBALL AÐ EVRÓPSKUM SIÐ Mánudaginn 30. apríl verður haldið söngvaraball í íslensku óper- unni. Þetta er í annað skipti sem slík- ur dansleikur fer fram hér á landi en venja hefur skapast fyrir galadans- leikjum af þessu tagi erlendis. Davíð Ólafsson söngvari er veislustjóri og einn af skipuleggjendum ballsins en hann lærði söng í Vínarborg og var á þeim tíma duglegur að sækja böll af þessu tagi. „Okkur langaði bara til þess að nýta Óperuna til þess að breyta og bæta íslenska skemmtana- menningu. Skemmtanalífið hér er nefnilega í rauninni mjög einhæft,“ segir Davíð. „Fyrirmyndin kemur frá Vínarborg þar sem Óperuball- ið í keisarahöllinni er einn af stærri viðburðum ársins. Þar koma saman þjóðhöfðingjar og viðskiptamenn sem skemmta sér fram á nótt með söng og dansi,“ segir veislustjórinn. Stéttlaus galadansleikur Ballið í Óperunni er opið fyrir alla og kostar einungis þrjúþúsund krón- ur inn og gefa allir söngvarar vinnu sína. „Þetta er galaball sem byrjar með fordrykk milli klukkan átta og níu og við taka svo glæsilegir tónleik- ar með skemmtiatriðum og glæsileg- um söngatriðum. Erlendis eru böll- in stéttaskipt og haldið er sér ball fyrir hverja stétt. Þetta verður hins vegar algjörlega stéttlaust ball og er öllum frjálst að mæta.“ Davíð segir ballið hafa heppnast einstaklega vel í fyrra og ákveðið hafi verið að bæta við miðafjöldann í ár. „Við viljum líka bara minna á að það er markað- ur fyrir svona galadansleik á Íslandi, fólk hefur svo gaman af því að klæða sig í sparifötin, hitta annað fólk og dansa á sviðinu í Óperunni við und- irleik strengjasveitar og stórsveitar.“ fólk þekkir böllin erlendis frá Davíð segir útlendinga og marga sem búsettir hafa verið erlendis mæta á ballið, en þeir þekkja svona dansleiki erlendis frá. „Þetta er Óp- eruball að evrópskum sið og við ger- um alltaf hlé á dansleiknum til að vera með tónlistaratriði, svo erum við líka með opið bæði uppi og niðri í Óperunni svo oft hefur myndast stemning fyrir því að fólk sé syngj- andi í hverjum krók og kima húss- ins.“ Á dansleiknum á mánudaginn verða sérstakir heiðursgestir söngv- araparið Sieglinde Kahmann og Sigurður Björnsson sem voru með- al ástsælustu söngvara þjóðarinnar. „Við munum fara aðeins yfir glæstan feril þeirra hjóna áður en dansleik- urinn hefst.“ Það er veitingastaður- inn Sólon sem sér um vínveitingar en eftir að dansleikurinn hefst verða kokkar sem útbúa og selja pinnamat meðan á dansinum stendur. „Það er aldrei sitjandi kvöldverður á svona böllum. Þetta er náttúrulega fyrst og fremst dansleikur,“ segir Davíð, sem lofar glæsilegum galadansleik með flottum söng og skemmtiatriðum. Miðasala fer fram í Óperunni eða í síma 511 4200. davíð ólafsson söngvari og veislustjóri lofar flottu balli. dansleikurinn í óperunni mikið var um dýrðir á dansleiknum í fyrra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.