Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2007, Blaðsíða 15
DV Sport fimmtudagur 26. apríl 2007 15
Sport
Fimmtudagur 26. apríl 2007
sport@dv.is
joe cole skoraði eina markið í meistaradeild evrópu í gær. chelsea er því
í vænlegri stöðu fyrir seinni leikinn á anfield í næstu viku. bls 16
SKAUTAFÉLAG REYKJAVÍKUR FAGNAÐI ÍSLANDSMEISTARATITLI Í ÍSHOKKÍ Í GÆR
Landsliðsmaðurinn David Nugent gæti farið frá Preston komist liðið ekki upp um deild:
Framtíð DaviD NugeNt óljós
Það kom mörgum á óvart þegar
Steve McClaren valdi David Nugent
í enska landsliðið fyrir skemmstu.
Mörgum brá í brún að leikmaður
í Championship deildinni, oftast
nefnd enska fyrsta deildin, skyldi
fá kallið stóra. Þar fékk hann skráð
mark á sig í fyrsta landsleiknum
gegn Andorra en sumir vilja meina
að hann hafi stolið markinu frá Jerm-
aine Defoe.
Samningur Nugent rennur út eft-
ir næsta tímabil og sagði þessi 21. árs
gamli framherji að hann vildi spila í
úrvalsdeildinni sem allra fyrst en tók
þó skýrt fram að helst vildi hann gera
það með Preston.
„Ég hef sagt við umboðsmann
minn að ef við förum upp, þá vil ég
skrifa undir nýjan samning við Prest-
on. Það er öruggt. En ef við verðum
áfram í Championship þá gæti ég þurft
að fara til að huga að mínum eigin ferli.
Ég vil spila vikulega á móti þeim bestu,
þar á ég heima og ég vil gera það með
Preston,“ sagði Nugent.
Nugent vonast einnig eftir fleiri
tækifærum með enska landsliðinu
sem leikur gegn Brasilíu í vígsluleik
Wembley og Eistlandi í undankeppni
EM.
„Það er alltaf möguleiki að ég verði
aftur valinn, Wayne Ronney er í banni
gegn Eistlandi og Michael Owen verð-
ur hugsanlega ekki orðinn klár í slag-
inn þannig möguleikarnir eru fyrir
hendi. Ef ekki, þá hlakka ég til verkefn-
anna með 21. árs liðinu.“
Hann hefur skorað 17 mörk í ár
með Preston og hefur vakið athygli
stóru liðanna í ensku úrvalsdeildinni.
Sheffield United bauð í hann í janúar
glugganum en því boði var umsvifa-
laust sent aftur til föðurhúsana.
Preston er í harðri baráttu um að
komast upp um deild. Þegar tveir leikir
eru eftir í fyrstu deildinni þá hefur liðið
81 stig og eru í fjórða sæti, sem gefur
rétt á að leika í umspili um laust sæti
í deild þeirra bestu. WBA og Úlfarn-
ir hafa stigi minna en Preston, síðan
koma Southampton, Stoke, Colchest-
er og Sheffileld Wednesdey öll í seil-
ingarfjarlægð. benni@dv.is
Þjófur david Nugent er hér við það að
pota boltanum yfir marklínuna eftir skot
Jermane defoe.
MARK
COLE
SKILUR
LIÐIN AÐ
NBAAllt um leiki næturinnar í NBA