Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2007, Page 27
Segist saklaus
Leikarinn Sylvester Stallone hefur
afhent dómstólum í Ástralíu gögn
frá læknum vegna kæru fyrir að flytja
ólögleg efni inn í landið, þekkta tegund
af sterum sem kallast Human growth
hormone. Sylvester var sjálfur ekki
viðstaddur réttarhöldin en fulltrúar
hans hafa skilað inn gögnum sem eiga
að sanna að læknir hafi skrifað upp á
efnin. Lögfræðingur kappans segir að
unnið sé í að fá málið fellt niður, en ef
Sylvester verður fundinn sekur á hann
yfir höfði sér himinháa sekt.
„Þetta er auðvitað risaviðburð-
ur,“ segir Kristinn Bjarnason annar
eiganda Flex Music um komu Dub-
fire úr Deep Dish til landsins 16.
maí næstkomandi. Dubfire er betri
helmingur íransk-ameríska raftón-
listardúettsins Deep Dish en hann
er skipaður þeim Ali „Dubfire“ Shir-
azinia og Sharam Tayebi. Dubfire
spilaði á Íslandi fyrir rúmu ári síðan
og þá einnig í boði Flex Music.
Partur af Global Underground
„Kvöldið er kynning á nýjum disk
frá Dubfire í Global Underground
seríunni sem ber nafnið Taipei,“
segir Kristinn sem er einnig þekkt-
ur undir nafninu Ghozt þegar hann
þeytir skífum. „Þeir hjá Global Und-
erground munu líka auglýsa kvöldið
í Bandaríkjunum og munu standa
fyrir hópferðum hingað til lands,“ en
Deep Dish eru með vinsælli plötu-
snúðum í heimi og eru í sjötta sæti
á heimslista plötusnúða. Auk þess
hlutu þeir félagar Grammy-verð-
laun fyrir remixið eða endurhljóð-
blöndunina af laginu Thank You
með bresku tónlistarkonunni Dido.
Þá hafa Deep Dish remixað lög fyrir
listamenn á borð við Justin Timber-
lake, Tima Maas, Depeche Mode og
Madonna.
„Það verður einnig kynning á nýj-
ast drykknum frá Vífilfell sem heitir
Beep,“ og segir Kristinn að nafnið sé
skírskotun til þess að ekki sé leyfi-
legt að auglýsa bjór hér á landi.
Sasha aftur í vetur
Aðspurður um tónleikahald Flex
í sumar segist Kristinn ekki geta
staðfest neitt ennþá þar sem við-
ræður séu ennþá í gangi: „Hins veg-
ar get ég sagt frá því að Sasha mun
spila aftur á Íslandi næsta vetur,“
segir Kristinn en Sasha hefur einu
sinni spilað áður á Íslandi en tvisv-
ar afboðað komu sína á síðustu
stundu.
„Forsalan fer fram í 12 tónum,“
segir Kristinn en verðið er 2.000
krónur. „Það verðum svo ég, Brun-
heim og Danni BigRoom frá Akur-
eyri sem hitum upp,“ segir Kristinn
að lokum og hvetur fólk til að láta
þennan viðburð ekki framhjá sér
fara. asgeir@dv.is
Hljómsveitin The Rapture kem- ur til með að halda tónleika á
Íslandi þann tuttugasta og sjötta júní á skemmtistaðnum NASA við
Austurvöll. Það er Herra Örlygur sem sér um að flytja þessa bandarísku
pönkrokkara til landsins en þeir hafa átt marga smelli að undanförnu
sem heyrst hafa á helstu útvarpsstöðv- um landsins. Hljómsveitin kemur
frá New York og er þessa dagana á vor- tónleikaferðalagi með hljómsveit-
inni Shiny Toy Guns. The Rapture spil- ar blöndu af post-pönki í bland
við dansvæna elektrótóna og hefur gef- ið út tvær plötur í fullri lengd. Sú
fyrri heitir Echoes og kom út árið 2003 og seinni platan kom út í fyrra.
Echoes fékk mjög góða dóma gagnrýn- enda og var meðal annars kosin
plata ársins af þekktu veftímariti. Lög á borð við Get Myself Into It og
titillag nýútkominnar plötu sveitarinn- ar, sem heitir Pieces of the People
We Know, hafa notið mikilla vinsælda svo búast má við hörkustemningu
á NASA í júní þegar strákarnir stíga á svið.
Spiderman 4
árið 2011
Leikkonan Kirsten Dunst hefur látið
hafa það eftir sér að hún muni leika í
fjórðu kvikmyndinni um Köngulóar-
manninn og að myndin muni koma út
árið 2011. Dunst er um þessar mundir
í London vegna frumsýningarinnar á
Spiderman 3, en hún segir að vilji sé
fyrir hendi hjá öllum aðstandendum
myndarinnar til þess að gera fjórða inn-
leggið. „Ég, Tobey og Sam Raimi erum
öll tilbúin svo ég hef fulla trú á því að
mynd fjögur verði gerð, en það verður
þó ekki fyrr en eftir fjögur ár sem hún
verður klár.“
Bandarísku rokkstrákarnir í The Rapture ætla að halda tónleika á NASA í júní:
The Rapture á leið á klakann
The Rapture Spilar á NASA 26. júlí.
Pönkrokkarar The Rapture spilar
seinnitíma pönk af bestu gerð.
Flex Music Heiðar Hauksson, Björn Kristinsson og Kristinn Bjarnason bjóða Íslending-
um upp á Deep Dish.
DEEP DISH
SNÚA AFTUR
Deep Dish Sharam og
Dubfire hafa meðal
annars hlotið
Grammy-verðlaun.
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
MIÐASALA Á
FRAKKLAND
Á EKKI
MÖGULEIKA
EIN SVAKALEGASTA
HROLLVEKJA TIL
ÞESSA. ENN MEIRA
BRÚTAL EN FYRRI
MYNDIN.
SÓLIN ER AÐ DEYJA.
ER HÆGT AÐ BJARGA HENNI?
MAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR MEÐ
SÚPERSTJÖRNUNUM HALLE BERRY
OG BRUCE WILLIS
VINKONA HENNAR ER MYRT OG EKKI
ER ALLT SEM SÝNIST.
HVE LANGT MYNDIR ÞÚ GANGA?
ÞEIR ERU MÆTTIR
ALLS EKKI FYRIR
VIÐKVÆMA! STRANGLEGA
BÖNNUÐ INNAN 18 ÁRA
SHOOTER kl. 5.50, 8 og 10.15 B.I. 16 ÁRA
PERFECT STRANGER kl. 8 og 10.10 B.I. 16 ÁRA
ÚTI ER ÆVINTÝRI ÍSLENSKT TAL kl. 6
HILLS HAVE EYES 2 kl. 6, 8 og 10 B.I. 18 ÁRA
PERFECT STRANGER kl. 5.30, 8 og 10. 30 B.I. 16 ÁRA
SUNSHINE kl. 8 og 10.10 B.I. 16 ÁRA
THE SCIENCE OF SLEEP kl. 8 og 10 B.I. 7 ÁRA
ÚTI ER ÆVINTÝRI ÍSLENSKT TAL kl. 6
TMNT kl. 6 B.I. 7 ÁRA
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
HILLS HAVE EYES 2 kl. 5.50, 8 og 10. 10 B.I. 18 ÁRA
HILLS HAVE EYES 2 SÝND Í LÚXUS kl. 5.50, 8 og 10. 10
PERFECT STRANGER kl. 5.30, 8 og 10. 30 B.I. 16 ÁRA
SUNSHINE kl. 10.10 B.I. 16 ÁRA
MR. BEAN´S HOLIDAY kl. 5, 7 og 9
ÚTI ER ÆVINTÝRI ÍSLENSKT TAL kl. 3.45
TMNT kl. 4 og 6 B.I. 7 ÁRA
SCHOOL FOR SCOUNDRELS kl. 3.40
Betri helmingur
Grammy-verðlauna-
hafanna í Deep Dish
mun snúa aftur til
Íslands 16. maí í boði
Flex Music