Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2007, Side 32
Prestastefna haldin á Húsavík felldi
í gær tillögu 42 presta og guðfræðinga
sem lagði til að Þjóðkirkjan færi þess
á leit við Alþingi að það samræmdi
hjúskaparlög og lög um staðfesta
samvist þannig að vígslumönnum
þjóðkirkjunnar og skráðra trúfélaga
yrði heimilt að annast hjónavígslu
samkynhneigðra. Tillagan var felld
með 64 atkvæðum gegn 22.
Þess í stað var samþykkt með 43
atkvæðum gegn 39 að prestar gætu
vígt fólk í staðfesta samvist.
Séra Guðmundur Karl Brynjars-
son, sóknarprestur í Lindakirkju, var
einn þeirra sem greiddi atkvæði gegn
tillögunni um hjónavígslu samkyn-
hneigðra. „Afstaða mín gagnvart þessu
máli er bundin samvisku minni og
trú. Ég hef þrátt fyrir að hafa ígrundað
þetta mál og reynt að skoða það með
opnum hug, alltaf staðið frammi fyr-
ir því að Guð skapaði karl og konu og
þannig er það bara. Hins vegar vil ég
taka það fram að ef fólk af sama kyni
býr saman, þá er ekki hægt annað en
að óska því velfarnaðar. Kirkjan hefur
hins vegar ekkert með að blessa sam-
vistir þess.“
Hrafnhildur Gunnarsdóttir,
varaformaður Samtakanna ‘78, segir
niðurstöðuna vera í takt við það
sem hún átti von á. „Það er ljóst að
Þjóðkirkjan ætlar að halda áfram að
mismuna okkur, en við gefumst ekki
upp. Það er eðlilegt að það taki langan
tíma, þegar maður er að breyta stefnu
sem hefur ríkt í mörg hundruð ár.
Okkar kröfur hafa alltaf verið skýrar
og verða það áfram. Við förum fram á
fullt jafnrétti og ekkert minna en það.“
Sigurður Árni Þórðarson, prestur í
Neskirkju, var einn þeirra sem greiddi
tillögunni atkvæði sitt. „Ég tel að það
sé tími kominn til að Þjóðkirkjan
opni fyrir hjónavígsluathöfn
með hliðstæðum hætti eins og
gagnkynhneigðir hafa. Þessi hópur
sem fór fram með tillöguna gerði sér
fullkomlega grein fyrir því að það væri
ekki sjálfgefið að hún yrði samþykkt.
Ég tel að það sem kom út úr þessu hafi
verið gríðarlega fín umræða og ég er
stoltur af því hvernig prestastefnan
meðhöndlaði þessa umræðu. Hún
var góð, heiðarleg og nauðsynleg og
var hópnum til mikils lofs.“
Jóhannes Geir Sigurgeirsson verður,
gegn vilja sínum, settur af sem
stjórnarmaður Landsvirkjunar á
aðalfundi í dag. Páll Magnússon,
fyrrverandi aðstoðarmaður Valgerðar
Sverrisdóttur og bæjarritari í Kópavogi,
tekur við formennskunni.
Jón Sigurðsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, er sagður eiga upp-
tökin að formannsskiptunum en sagt
er að mest sé óánægjan hjá Siv Frið-
leifsdóttir heilbrigðisráðherra og Jó-
hannesi Geir. Heimildir DV herma að
Siv hafi hjólað í Jón á fundi ráðherra
flokksins í fyrradag en flestir innan
flokksins þekkja hug hennar til Páls
Magnússonar eftir kapphlaup þeirra
árið 2005. Þá reyndi hvort þeirra um
sig að styrkja stöðu sína innan flokks-
ins. Skemmst er að minnast valda-
baráttu í Framsóknarkvennafélaginu
Freyju í Kópavogi árið 2005. Þar komu
eiginkona Páls og fleiri konur, sem
tengjast honum og Árna Magnússyni
bróður hans, við sögu og fjölmenntu
á fundinn til að ná völdum. Þá var tal-
ið að bræðurnir hygðust styrkja stöðu
sína á kostnað Sivjar. Stuðningskonur
Sivjar kærðu framkvæmd fundarins til
laganefndar flokksins sem úrskurðaði
fundinn ógildan. Úr varð að stuðnings-
konur Páls stofnuðu nýtt félag fram-
sóknarkvenna í Kópavogi þar sem Val-
gerður Sverrisdóttir var heiðursgestur.
Aðalheiður Sigursveinsdóttir, eigin-
kona Páls, er núverandi aðstoðarmað-
ur Valgerðar Sverrisdóttur.
Margir innan Framsóknarflokksins
eru ósáttir við framgöngu Sivjar í mál-
inu og andstöðuna við Jón sem þyk-
ir hafa tekist vel upp við að greiða úr
ágreiningi meðal þingmanna. Eins eru
margir þeirra sem DV ræddi við sam-
mála um að formannsskipti hafi verið
tímabær þar sem Jóhannes Geir hafi
setið í stjórn Landsvirkjunar í tólf ár og
gegnt formennsku í tíu ár. Í nýjum lög-
um um Landsvirkjun, sem tóku gildi í
fyrra, er tekið fram að skipa eigi í stjórn
Landsvirkjunar á árlegum aðalfundi.
Jóhannes Geir var fyrst valinn í
stjórn Landsvirkjunar árið 1995 þegar
hann féll af þingi. Þá hafði hann verið
þingmaður Framsóknarflokksins í eitt
kjörtímabil.
Jóhannes Geir hefur vitað að
formannskipti væru á döfinni frá því
fyrir áramót. Lengi hefur staðið til að
skipta um stjórnarformann og voru
menn þegar farnir að ræða það við
upphaf þessa kjörtímabils.
Flestir framsóknarmenn munu
sáttir við að Páll taki við stjórnarfor-
mannsstólnum þar sem hann hefur
átt sæti í samninganefndum fyrir ís-
lenska ríkið við bæði Alcoa og Norsk
Hydro.
Fimmtudagur 26. apríl 2007 n Dagblaðið vísir stofnað 1910
Fréttaskot
5 1 2 7 0 7 0
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast 5.000 krónur.
Að auki eru greiddar 10.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
Þannig er hægt að fá 15.000 krónur fyrir besta fréttaskot mánaðarins.
Laugavegur 53b • 101 Reykjavík • 5 11 3350 • www.hereford.is
HerefordBorðapantanir í síma 511 3350
2 fyri
r 1 á
drykk
jum
hússi
ns 17
-19
Íslenska nautakjötið
klikkar ekki.
Notum eingöngu sérvalið
íslenskt nautakjöt á
Hereford steikhúsi
Þeir sjá um sína
Framsóknarmennirnir...
SIV ALLT ANNAÐ EN SÁTT
MEÐ VEGTYLLU PÁLS
Páll Magnússon verður skipaður stjórnarformaður Landsvirkjunar í dag:
tekið til í garðinum Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri kynnti vorhreinsunarátak í Reykjavík með því að taka til í garði sínum
og næsta nágrenni. Sjálf vorhreinsunin hefst á laugardag og stendur yfir í viku. Þá eru borgarbúar hvattir til að hreinsa til í görðum
sínum og fá aðstoð við að fjarlægja garðúrgang.
Kveikt í bílflaki
Lögreglan á Suðurnesjum
þurfti enn og aftur að sinna út-
kalli eftir að kveikt hafi verið í
bílflaki. Í gærkvöldi barst henni
tilkynning um logandi bíl í
Garðinum og allar vísbendingar
benda til þess að kveikt hafi verið
í bílnum. Engin vitni hafa gefið
sig fram vegna atburðarins og
lögreglan leitar vísbendinga til að
grípa þann seka. Þetta er í fimmta
sinn á stuttu tímabili sem kveikt
er í númerslausum bílum á Suð-
urnesjum.
Eru lengur
í leikskólanum
Viðvera barna á leikskólum er
sífellt að lengjast. Flest eru þau að
minnsta kosti 8 klukkustundir á dag
í leikskólanum og aðeins fjórðung-
ur barnanna er með styttri viðveru.
Algengara er að drengir hafi langa
viðveru heldur en stúlkur. Leik-
skólabörn hafa aldrei verið fleiri en
í ár og var ríflega 2 prósenta aukn-
ing milli ára. Rúmlega 17 þúsund
börn sækja leikskóla og af þeim er
tæpur fimmtungur á einkarekn-
um leikskólum. Af heildarfjöldan-
um eru nærri 8 prósent leikskóla-
barnanna með annað tungumál en
íslensku sem móðurmál. Aukning
meðal pólskumælandi barna eru
tæp 500 prósent.
Óbreytt ástand Varaformaður
Samtakanna ‘78 segir niðurstöðuna ekki
hafa komið sér á óvart.
Prestastefna felldi tillögu um hjónavígslu samkynhneigðra:
Áfram mismunað eftir kynhneigð
Móðir drepur
tölvufíkla
Cynthia Lord frá Alaska, sem
myrti þrjá syni sína, verður vænt-
anlega ekki dæmd fyrir verknaðinn
vegna geðveilu.
Ef vafi leikur á geðheilsu morð-
ingja skilgreina flest ríki Bandaríkj-
anna geðveiki sem skort á hæfileik-
anum til að greina á milli þess sem
er rétt og rangt. Í Alaska eru reglurn-
ar stífari þar sem morðinginn þarf
að trúa því að fórnarlambið sé ekki
mennskt. Lord sagði meðal annars í
yfirheyrslum að hún hafi séð djöfull-
eg skilaboð á matvöruupplýsingum
og í sjónvarpi og hún hafi drepið tvo
þeirra er þeir spiluðu tölvuleiki.
Ökuníðingur stal
sálmabók
Í gærmorgun handtók lögreglan
á Selfossi mann á fertugsaldri eftir
eftirför sem hófst á Krísuvíkurvegi
í Selvogi. Lögreglan var að svipast
um eftir sendibifreið sem hafði verið
stolið í Keflavík þar síðustu nótt.
Maðurinn flúði lögregluna þegar
lögreglumenn gáfu honum merki
um að stöðva. Hann var að lokum
króaður af við Óseyrarbrú í Ölfusi.
Hann náðist eftir að hann reyndi
að stinga lögreglu af á hlaupum.
Stuttu síðar kom annar maður sem
honum tengdist og var sá einnig
handtekinn.
Í bílnum fundust meðal annars
biblía og sálmabók sem tilheyrðu
Krísuvíkurkirkju auk glugga- og
hurðakarma.
DV MYND stEFÁN
HjörDís rut sigurjÓNsDÓttir
blaðamaður skrifar: hrs@dv.is
siv Friðleifsdóttir Hjólaði í formann
flokksins þegar hann tilkynnti að Páll yrði
stjórnarformaður.
Keyrði próflaus
Ungur ökumaður var stöðvað-
ur af sérsveitarmönnum á Suður-
nesjum í gærkvöldi. Um var að ræða
hefðbundið umferðareftirlit og kom
þá í ljós að viðkomandi ökukmað-
ur ók réttindalaus. Hann hafði áður
verið sviptur ökuleyfi vegna um-
ferðalagabrota og því á hann von á
myndarlegri fjársekt fyrir vikið.