Læknablaðið - 15.09.1984, Side 13
BRIJFEN 600mS
Nýr styrkleiki
Pegar skjótt þarf að lina verk og bólgur, þá er Brufen 600
góður valkostur. Sé Brufen 600 tekiö á fastandi
maga fæst hámarksblóðþéttni eftir 45 mínútur og
greinileg verkjastillandi áhrif töluvert fyrr. Stærri
skammtur og hærri blóðþéttni tryggir besta klíníska svörun.
Þolið er einstakt, jafnvel í stórum skömmtum.
Blóðþéttni ibuprofens eftir að gefinn hefur
verið annars vegar 400 mg og hins vegar 600 mg skammtur.
ibuprofen
upphafleg framleiðsla The Boots Company PLC
Umboðsmaður: Hermes H/F Háaleitishraut 19, Reykjavík.
Eiginleikar: Ibuprófen er bólgueyöandi lyf mcö svipaöar
verkanir og asetýlsalisýlsýra. Helstu áhrif eru
bólgueyöandi-, verkjastillandi- og hitalækkandi verkun.
Lyfið frásogast hratt eftir inntöku og helmingunartími í
blóöi er u.þ.b. 2 klst. Um 60% útskilst í þvagixn 40%
með galli í saur. Próteinbinding í plasma er um 90%.
Abeiulingar: Bólgueyðandi og verkjastillandi lyf, ætlaö,
til notkunar við liðagigt, þegar asetýlsalisýlsýra þolist
ekki. Lyfiö má einnig nota sem verkjalyf eftir minni
háttar aðgerðir, t.d. tanndrátt.
Frábendingar: Lyfið er ekki ætlað vanfærum konum.
Lyfið skal ekki notað, ef lifrarstarfsemi er skcrt.
Aukaverkanir: Ofnæmi (útbrot). Meltingaróþægindi svo
sem niðurgangur og ógleði. Lyfið skal nota með varúð
hjá sjúklingum með tilhneigingu til magasárs eöa sögu
um slík sár. Lifrarbólgu hefur verið lýst af völdum lyfsins
(toxiskum hepatitis).
Milliverkanir: Getur aukið virkni ýmissa lyfja svo sem
blóðþynningarlyfja og krampalyfja.
Skammtastcerdir handa fullordnum: Sjúkdómseinkenni
og lyfjasvörun ákvarða hæfilegan skammt hjá hverjum
einstaklingi. Skammtar eru venjulega 600-2(X)0 mg á dag
og ekki er mælt með stærri dagsskammti en 2400 mg.
Hæfilegt er að gefa lyfið 3-4 sinnum á dag í jöfnum
skömmtum. Morgunskammt má gefa á fastandi maga til
að draga fljótt úr morgunstiröleika. Við nýrnabilun þarf
aö ntinnka skammta.
Pakkningar: Töflur 600 mg: 30 stk., KXIstk.