Læknablaðið - 15.09.1984, Blaðsíða 41
LÆKNABLAÐID
231
áberandi fleiri en hjá konum, 9,7 % og 4,5 % á
móti 6,0% og 2,4%. Frá árinu 1974 voru
aðalbreytingarnar þær að hlutdeild lyfseðils
sem úrlausnar lækkaði úr 60 % í 41,4 % og
veruleg fjölgun varð á klínískum skoðunum
eða úr 17,7 % í 24,1 %.
Eftirtaldar tegundir úrlausna voru sérstak-
lega kannaðar: rannsókn á stofu (28), sent í
rannsókn (29), tilvísun (30), og innlagnarum-
sókn (31). Á könnunartímanum fóru 716 rann-
sóknir fram á stofu og 492 atriði voru rann-
sökuð annars staðar eða alls 1208 rannsóknir.
Tilvísanir til sérfræðinga voru 203 og fengu
þær alls 186 manns. Einnig voru útfylltar 120
innlagnarumsóknir fyrir alls 115 manns á
rannsóknarsvæðinu.
Tafla VII sýnir að hlutfall þeirra sem fengu
rannsókn og tilvísun sem úrlausnir var nánast
hið sama árið 1981 og 1974, eða 10,2% og
2,6 % á móti 10,3 % og 2,7 %, en hlutfall
þeirra er fengu innlagnarumsókn lækkaði úr
2,0 % í 1,6 %. Meira var þó sent í rannsókn á
síðara könnunartímabilinu en því fyrra. Sé hins
vegar heildarfjöldi úrlausna borinn saman við
fjölda samskipta, kemur í ljós að hlutdeild allra
þessara úrlausna hefur minnkað. í töflum VIII,
og X kemur fram að rannsóknum á hver 100
samskiþti fækkaði úr 19,6 í 16,9, tilvísunum úr
3,1 í 2,8 og innlagnarumsóknum úr 2,3 í 1,7.
4.4 Vinnutími Iækna
Einn þáttur rannsóknarinnar var könnun á
vinnutíma lækna og skiptingu hans eftir
starfsþáttum. Upplýsingar bárust alls frá 48
læknum af 58 eða 82,8 % þeirra sem þessi
úrvinnsla nær til. í töflu XI kemur fram að
meðalvinnutími þeirra var 49,4 klukkustundir,
þar af 24,8 tímar í viðtöl á stofu, 4,9 í
símaviðtöl, 6,2 í sjúkravitjanir, 6,4 í skriftir og
skýrslugerð, 4,0 í lestur fagrita, og 3,0 í
lyfjaafgreiðslu. Meðalvinnutími reyndist þann-
ig tæplega einni klukkustund styttri en árið
1974. Hvað snertir skiptingu vinnutíma eftir
einstökum starfsþáttum var einkum um að
ræða tvær breytingar. Annars vegar hefur hlut-
deild vinnu vegna viðtala á stofu aukist úr
45.4 % árið 1974 í 50,2 % 1981, og hins vegar
hefur hlutur skrifta og skýrslugerðar minnkað
Tafla V. Hlutfallsleg skipting samskipta við heilsugæslu eftir meginástæðu og aldri á rannsóknar-
svæðinu 16.-22. október 1981.
Karlar
Aldur
Ástæða samskipta 0-14 15-44 45-64 65-74 75 + Alls (1974)
01 Smitsjúkdómar 9,3 7,4 3,3 2,0 2,1 6,6 12,7
02 Æxli 0,6 0,6 1,2 2,0 1,3 0,8 0,3
03 Ofnæmi, innk., nær 1,3 2,2 1,6 2,4 1,3 1,7 1,2
04 Blóð- eða blóðm.sjd 0,4 0,5 0,6 0,8 0,9 0,5 0,4
05 Geðsjd., taugav 0,5 4,2 8,4 3,3 8,6 3,8 5,7
06 Taugasjd., skynf 6,7 4,4 4,9 6,1 11,2 5,9 4,6
07 Hjarta- og æðasjd 0,5 3,2 17,3 20,8 14,2 6,8 7,9
08 Öndunarfærasjd 14,9 12,1 11,2 12,7 9,4 12,8 13,6
09 Meltingarfærasjd 3,2 6,4 4,5 7,8 4,3 4,9 5,8
10 Pvagvega- eða kynfærasjd 1,8 2,5 2,8 3,7 3,3 2,5 2,3
11 Pungun, barnsburðarv — — — — — — —
12 Húðsjúkd 4,0 5,4 5,5 5,3 2,6 4,7 3,8
13 Stoðv.- eða hreyfingarf. sjd 2,0 14,7 13,9 15,1 9,0 9,7 10,5
14 Ýmis eink., elli 0,5 0,3 0,6 1,6 15,0 1,6 2,5
15 Slys, eitr., áverki 7,6 20,0 11,6 6,1 5,2 12,0 11,1
16 Ungbarnaeftirlit 12,9 — — — — 4,6 2,5
17 Önnur heilsuvernd 30,5 6,8 5,5 2,9 1,3 14,2 3,9
18 Félagslegar ástæður — 0,3 0,6 0,8 0,9 0,3 0,6
19 Annað 1,0 5,7 2,6 2,4 1,3 2,9 2,6
Vantar 2,3 3,3 3,9 4,1 8,2 3,5 7,9
Samtals (%) 100,0 100,0 100,0 100,0 100,0 100,0 100,0
Tala samskipta 1.091 1.011 509 245 233 3.089 2.033