Læknablaðið - 15.11.1985, Blaðsíða 29
LÆKNABLAÐIÐ 1985;71:301-21
301
ÁRSSKÝRSLA LÆKNAFÉLAGS ÍSLANDS
starfsárið 1984-1985
INNGANGUR
Skýrsla þessi nær yfir tímabilið frá 16. júlí
1984 til 21. ágúst 1985.
Alls greiddi 631 læknir árgjald árið 1984.
Þar af greiddi 491 fullt árgjald, en 140 hluta
árgjalds. Læknar á skrá, komnir yfir sjötugt
og/eða hættir störfum, voru 53 í árslok, en
þeir greiða ekki árgjöld.
Árgjaldið 1984 var kr. 10.500.00 og hluti
svæðafélags þar af kr. 1.500.00. Innheimt
árgjöld samsvöruðu 569 heilum árgjöldum og
skiptust þau þannig milli svæðafélaga:
Læknafélag Reykjavíkur 435, Læknafélag
Vesturlands 24, Læknafélag Vestfjarða 11,
Læknafélag Norðvesturlands 13, Lækna-
félag Akureyrar 49, Læknafélag Norðaustur-
lands 9, Læknafélag Austurlands 12 og
Læknafélag Suðurlands 16.
Vorið 1985 útskrifaðist 51 kandidat frá
Iæknadeild Háskóla íslands, en 43 árið áður.
Eftirtaldir læknar hafa ársskýrslu: látist frá síðustu
Aðalsteinn Pétursson f. 07.09.33 d. 09.01.85
Einar Guttormsson f. 15.12.01 d. 12.02.85
Jón G. Nikulásson f. 30.12.97 d. 01.11.84
Kristjana P. Helgadóttir f. 05.08.21 d. 08.11.84
Kristján Jóhannesson f. 23.09.09 d. 26.07.85
Kristján Sveinsson f. 08.02.00 d. 23.05.85
Þórður Þórðarson f. 06.11.04 d. 10.03.85
AÐALFUNDUR L. í. 1984
Aðalfundur Læknafélags íslands árið 1984
var haldinn á ísafirði 24. og 25. ágúst.
Fundinn sátu eftirtaldir fulltrúar:
Frá Lœknafélagi Reykjavíkur: Árni B
Stefánsson, Guðmundur I. Eyjólfsson,
Gunnar I. Gunnarsson, Haukur S. Magnús-
son, Lúðvík Ólafsson, Pétur Lúðvigsson, Stef-
án B. Matthíasson, Viðar Hjartarson, Vigfús
Magnússon, Þórður Harðarson, Þórður Þór-
kelsson og Þorkell Bjarnason.
Frá Lœknafélagi Vesturlands: Sigurbjörn
Sveinsson.
Frá Lœknafélagi Vestfjarða: Samúel J.
Samúelsson.
Frá Læknafélagi Norðvesturlands. Sigur-
steinn Guðmundsson.
Frá Lœknafélagi Akureyrar: Brynjólfur Ing-
varsson, Hjálmar Freysteinsson og Júlíus
Gestsson.
Frá Lœknafélagi Norðausturlands: Ingimar
S. Hjálmarsson.
Frá Læknafélagi Austurlands: Stefán Þór-
arinsson.
Frá Læknafélagi Suðurlands: Arnór Egils-
son.
FráFÍLÍS: Sveinn Magnússon.
FÍLÍB, FÍLÍNA og FÍLÍÞý sendu ekki
fulltrúa.
Úr stjórn Læknafélags fslands sátu fundinn:
Þorvaldur Veigar Guðmundsson, formaður,
Halldór Steinsen, varaformaður, Kristján
Eyjólfsson, ritari, Jón Bjarni Þorsteinsson,
gjaldkeri, Kristófer Þorleifsson, Finnbogi
Jakobsson og Ólafur Z. Ólafsson meðstjórn-
endur. Haukur Þórðarson var erlendis.
Einnig sátu fundinn Páll Þórðarson, fram-
kvæmdastjóri læknafélaganna og Friðrik
Karlsson, framkvæmdastjóri Domus Med-
ica.
Gestir voru: Matthías Bjarnason, heil-
brigðisráðherra, Páll Sigurðsson, ráðuneyt-
isstjóri, Ólafur Ólafsson, landlæknir, Sig-
urður S. Magnússon, verðandi forseti lækna-
deildar, Jón H. Alfreðsson, formaður Sér-
fræðingafélags lækna, Ólafur F. Mixa, for-
maður Félags íslenzkra heimilislækna,
Margrét Oddsdóttir frá Félagi ungra lækna og
Pétur I. Pétursson, héraðslæknir Vestfjarða.
í byrjun fundar flutti heilbrigðisráðherra
erindi og kom víða við. Hann ræddi í upphafi
um niðurstöður nefndar um læknaþörf á
íslandi til aldamóta. Síðan fjallaði hann um
framkvæmdir á sviði heilbrigðismála og um
fjárframlög til þess málaflokks í væntanlegu
fjárlagafrumvarpi fyrir árið 1985.
Þá gerði ráðherra fjölda starfsmanna í
heilbrigðisþjónustu að umræðuefni og ræddi
að lokum um greiðsluhlut sjúklinga.