Læknablaðið - 15.11.1985, Blaðsíða 52
314
LÆKNABLAÐIÐ
birtingar eru í Læknablaðinu og Fréttabréfi
lækna. Með bréfi, dags. 11. júní sl., óskaði
stjórn félagsins eftir áliti Siðanefndar á þessu
tvennu. Svar hefur ekki borist.
STARFSMATSNEFND
hélt 7 fundi á árinu 1984 og lagði mat á
starfsaldur 16 sérfræðinga og ákvað launastig
48 aðstoðarlækna.
ORÐANEFND
í síðustu ársskýrslu kom fram, að Orðanefnd
læknafélaganna hefur tekið til starfa á ný og
vinnur nú ötullega að undirbúningi að
íðorðasafni lækna.
Við vinnu sína styðst nefndin fyrst og
fremst við Gould’s Medical Dictionary. í
marz í vetur gaf nefndin út fjölritað sem
handrit, í litlu upplagi, stafkaflann A í
íðorðasafninu. Síðan boðaði nefndin til al-
menns fundar til að kynna verkið. Einnig
hefur nefndin leitað eftir gagnrýni og ábend-
ingum fráeinstökumlæknum. Með nefndinni
starfar Magnús Snædal, cand. mag. Magnús,
sem einnig er starfsmaður íslenzkrar
málnefndar, hefur sýnt íðorðasafninu sérstak-
an áhuga og reynst nefndinni góður ráðgjafi.
Gerð íðorðasafns og í framhaldi af því
útgáfa orðabókar kostar mikið fé, og hafa
L.í. og L.R. lagt fram talsvert fé til að standa
undir kostnaði. Ljóst er, að félögin hafa ekki
bolmagn til að standa undir þessu verki. Var
því stofnaður sérstakur orðabókarsjóður
óháður sjóðum félaganna með sérstakri
stjórn, sem hefur það verkefni að fjármagna
fyrirtækið. Á sameiginlegum fundi stjórna
L.í. og L.R. þann 21. ágúst sl. var formlega
gengið frá stofnun sjóðsins og samþykkt
eftirfarandi reglugerð fyrir hann:
Reglugerð fyrir Orðabókarsjóð L.f. og L.R.
1. Nafn sjóðsins er Orðabókarsjóður
Lœknafélags íslands og Lœknafélags
Reykjavíkur.
2. Stofnfé sjóðsins er kr. 150.000.00 frá
hvoru félagi, alls kr. 300.000.00, svo og
þau framlög önnur, sem berast sjóðnum
fyrir 1. janúar 1986.
3. Tekur sjóðsins eru vaxtatekjur, gjafafé
og annað fé, sem stjórnin aflar. Sjóðinn
skal ávaxta á hagkvæman hátt í bönkum
eða sparisjóðum.
4. Tilgangur sjóðsins er að standa straum af
kostnaði við gerð og útgáfu íðorðasafns
lækna og í framhaldi af því gerð læknis-
fræðilegrar orðabókar.
5. Stjórnir L.í. og L.R. skipa á sameigin-
legum fundi formann sjóðsstjórnar og
fjóra meðstjórnendur, alla eftir tilnefn-
ingu Orðanefndar læknafélaganna, til
fjögurra ára í senn.
6. Skrifstofa læknafélaganna skal sjá um
bókhald sjóðsins. Reikningsár sjóðsins
er almanaksárið. Reikningar sjóðsins
skulu endurskoðaðir af sama löggilta
endurskoðanda og endurskoðar reikn-
inga læknafélaganna. Skulu þeir birtir
með reikningum L.í.
7. Læknafélag íslands og Læknafélag
Reykjavíkur eiga sameiginlega höfundar-
og útgáfurétt þeirra verka, sem til
verða á vegum sjóðsins.
8. Á sameiginlegum fundi stjórna L.í. og
L.R. og sjóðsins má breyta reglugerð
þessari eða ákveða að leggja sjóðinn
niður, enda greiði 3/5 stjórnamanna því
atkvæði, sbr. þó 9. gr.
9. Eftir útgáfu lœknisfræði/egrar orðabók-
ar skv. 4. gr. skal sjóðurinn lagður niður
á sameiginlegum fundi stjórnar sjóðsins,
L.í. og L.R. Eignir hans, ef einhverjar
eru, skiptast að jöfnu milli L.í. og L.R.
10. Reg/ugerð þessi tekur gildi, þegar stjórnir
L.í. og L.R. hafa samþykkt hana.
(Samþykkt á sameiginlegum fundi
stjórna L.í. og L.R. 21. ágúst 1985).
Um skipan sjóðsstjórnar sjá nefndatal
aftar.
BÓKASAFNSNEFND
Bókasafnsmál hafa lengi verið á dagskrá L í.
og ýmsar samþykktir gerðar um að vinna að
úrbótum í þeim málum. Fyrir forgöngu L.í.
var á sl. hausti stofnuð 6 manna nefnd,
þriggja bókasafnsfræðinga og þriggja lækna.
Nefndin hélt 18 fundi. Hún kynnti sér gögn
um málið þ.á m. lög og reglur varðandi
bókasöfn og reyndi að gera sér grein fyrir,
hvar skórinn kreppir. Þá var rætt um
framtíðarþörf og hugsanlegar lausnir.
í þessu skyni ræddi nefndin við ráðuneyt-
isstjóra, forstjóra sjúkrahúsanna í Reykja-
vík og Krabbameinsfélags íslands, formann
Sambands ísl. sveitarfélaga og forseta lækna-
deildar. Þá sendi nefndin öllum heimilis- og