Læknablaðið - 15.02.1988, Blaðsíða 4
P&Ó/SlA
Nýtt íslenskt sérlyf
(ibuprofen)
Gigtar- og
verkjastillandi lyf
R,E TÖELUR; M 01 A E 01
Hver tafla inniheldur: Ibuprofenum INN 200 mg, 400 mg eða
600 mg.
Eiginlcikar: Ibuprófen er bólgueyðandi lyf með svipaðar verkanir
og acetýlsalicýlsýra. Helstu álirif eru bólgueyðandi, verkjastillandi
og hitalækkandi verkun. I.yftð frásogast hratt eftir inntöku og
helmingunartími í blóði er u.þ.b. 2 klst. Um 60% útskilst í þvagi en
40% nteð galli í saur. Próteinbinding í pktsma er um 99%.
Ábendingar: Bólgueyðandi og verkjastillandi lyf, ætlað til
notkunar við liðagigt, þegar acetýlsalicýlsýra þolist ekki. Lyftð má
einnig nota sem verkjalyf eftir minni háttar aðgerðir, t.d. tanndrátt.
Frábendingar: Lyfið er ekki ætlað vanfærum konum. Lyftð skal
ekki notað ef lifrarstarfsemi er skert.
Aukaverkanir: Ofnæmi (útbrot). Meltingaróþægindi svo sem
niðurgangur og ógleði. Lyftð skal nota með varúð hjá sjúklingum
með tilhneigingu til magasárs eða sögu um slík sár. Lifrarbólgu
hefur verið lýst af völdum lyfsins (toxiskum hepatitis).
Milliverkanir: Getur aukið virkni ýmissa lyfja svo sem
blóðþynningarlyfja og krampalyfja.
Skammtastærðir handa fullorðnum: Sjúkdómseinkenni og
lyfjasvörun ákvarða hæfilegan skammt hjá hverjum einstaklingi.
Skammtar eru venjulega 600-2000 mg á dag og ekki er mælt með
stærri dagskammti en 2400 ntg. Hæfilegt er að gefa lyfið 3-4
sinnum á dag í jöfnum skömmtum. Morgunskammt má gefa á
fastandi maga til að draga fljótt úr morgunstirðleika. Við nýrnabilun
þarf að minnka skammta.
Skammtastærðir handa bömum: Venjulegir skammtar eru
20 mg/kg líkamsþunga á dag, geftð í 3-4 jöfnum skömmtum.
Börnum, sem vega innan við 30 kg, skal eigi gefa meira en
500 mg á dag.
Pakkningar:
Töflur 200 mg: 30 stk; 100 stk.
Töflur 400 mg: 30 stk; 100 stk.
Töflur 600 mg; 30 stk; 100 stk.
LYFJAVERSLUN RÍKISINS Borgartúni 6, 105 Reykjavík Sími: 91-623900/610010