Læknablaðið - 15.02.1988, Blaðsíða 38
60
LÆKNABLAÐIÐ
Tafla II sýnir meðaltannafjölda þeirra, sem engar
höfðu brýr, auk þess sem hún greinir tannafjölda
og brúarliði þeirra er höfðu föst tanngervi.
Brúarliðir og krónur skiftust milli tanna eða
tannstæða eins og sést i myndum 7 og 8.
Með lausa tannparta voru alls 17*% úrtaksins (88).
Skifting var þannig að 5% (26) voru með part í
efri góm, 6,4% (33) í neðri góm og 5,6% (29)
höfðu parta í báðum gómum. Að gervitönnum
meðtöldum þýðir þetta, að 64,5% (333) voru með
laus tanngervi í munni. Tenntir í öðrum gómi
voru tæp 15% (76) af úrtakinu. í ljós kom, að
þeir voru allir utan einn tannlausir í efri gómi.
Tafla III sýnir skiftinguna milli eigin tanna,
lausra tannparta, heilgóma (gervitanna) og
algjörs tannleysis í tölum og hundraðshlutum.
Tannleysingjar. Eins og að framan greinir voru
tannleysingjar 201, sem er tæp 39% hópsins. Að
meðaltali urðu þessir menn tannlausir liðlega 38
ára gamlir í efri góm, en nokkru eldri, eða rétt
rúmlega fertugir þegar þeir misstu tennur neðri
góms. Sé úrtakið flokkað með áratugar millibili í
þrennt og athugað hvenær menn urðu tannlausir,
kemur í ljós að munurinn er verulegur hvað efri
góm varðar og enn meiri í neðri góm. Þar munar
Tafla II. Meðalfjöldi tanna hjá þeim sem voru með og
ánfastra tanngerva.
Efri gómur Neöri gómur Báöir gómar
Tenntir án fastra tanngerva . 8,3 10,1 18,4
Tenntir með föst tanngervi.. 10,0 11,5 21,5
Meðalfjöldi tanngerva (4,4) (3,0) (7,4)
Tafla III. Tennur, tannleysi og laus tanngervi. Gefin er
tíðni hvers þáttar í hundraðshlutum, en fjöldi
einstaklinga innan sviga.
Efri gómur
Neðri- gómur Eigin- tennur Tann- partur Heil- gómur Tann- leysi Samtals
Eigin- 34,8 4,7 8,3 0,4 48,2
tennur (179) (24) (43) (2) (248)
Tann- 1,4 5,6 5,0 — 12,0
partur (7) (29) (26) (0) (62)
Heil- 0,4 0,4 38,4 — 39,2
gómur (2) (2) (198) (0) (202)
Tann- — — 0,4 0,2 0,6
leysi (0) (0) (2) (1) (3)
Sam- 36,6 10,7 52,1 0,6 100
tals (188) (55) (269) (3) *(515)
* Einn svaraði ekki spurningunni.
liðlega 20 árum á því hve menn á sextugsaldri
urðu seinna tannlausir en hinir, sem voru á
áttræðisaldri. Sjá myndir 9 og 10.
Á töflu IV má sjá aldur gervitannanna. Þar
kemur m.a. í Ijós, að meira en 22% efri góma og
21% þeirra neðri eru yfir 20 ára gamlir. Elstu
gervitennurnar voru 53ja ára, en meðalaldur
gervitanna, sem voru í notkun var 12,6 ár í efri
Fjöldi
Tannsæti (F.D.I.).
Mynd 7. Fjöldi einstakra efri góms tanna annað hvorl
með krónur eða sem hluti af brú.
Fjöldi
Tannsæti (f.D.I.).
Mynd 8. Fjöldi einstakra neðri góms tanna, sem báru
krónur eða voru sem hlutar af brú.
% Tannlausir
Aldur vid tannmissi
Mynd 9. Efri kjálki: Tannleysi I hundraðshlutum á
tilteknum aldursskeiðum.