Læknablaðið : fylgirit - 01.09.1987, Side 12
4
SAMANBURÐUR Á OPSONlNSTYRK OG FLÉTTULEYSANDI VIRKNI KOMPLIMENTKERFISINS.
Guóraundur jóhann Arason, Susan Harkin og Helgi Valdiraarsson. Rannsóknastofa í
Ónæmisfræói, Landsspitalanum, Reykjavik.
1 heilbrigóum einstaklingum sér komplimentkerfió um aó hindra útfellingu
mótefnaflétta (PIP: prevention of immune precipitation) eða aó öörum kosti
leysa þær upp eftir útfellingu (SOL: solubilization). Fyrri eiginleikinn
(PIP) er háóur klassiska ferli komplimentkerfisins, en-sá seinni (SOL) styöst
vió styttri ferilinn. Máttur komplimentkerfisins til aö leysa upp mótefna-
fléttur og halda þeim í lausn var mældur i 29 einstaklingum með skerta
opsoninvirkni og borinn saman vió samsvarandi gildi frá 70 heilbrigðum
einstaklingum. Marktæk samsvörun reyndist vera milli opsonínstyrks og gilda
fyrir PIP og SOL, svo og milli PIP og SOL innbyrðis. Samsvörunin er þó ekki
algjör, því vissir einstaklingar hafa einangraöan opsoningalla án tilsvarandi
lækkunar í PIP eöa SOL. Þessar nióurstöóur benda til aö "prímer" orsök
opsoníngalla geti verió aó hluta óháó komplimentkerfinu, og eru í samræmi viö
nýlegar brezkar athuganir á blóöborinni 70-80 kd. sameind sem viróist geta
ræst styttri feril komplimentkerfisins eftir bindingu viö örverur.
5
NÝ ELISA AÐFERÐ TIL AÐ MÆLA VIRKNI KOMPLlMENTKERFISINS TIL
AÐ LEYSA UPP OG KOMA 1 VEG FYRIR ÖTFELLINGU Á MÓTEFNAFLÉTTUM. Susannah
Harkin og Helgi Valdimarsson. Rannsóknastofa Háskólans í ónæmisfræöi,
Landspitalanum.
Talið er aó komplimentkerfið geti torveldað uppsöfnun mótefnaútfellinga
i æöaveggi. Þessi virkni er talin vera skýringin á því hvers vegna
sjúklinga meó veiklaða komplimentþætti hættir til aö fá
mótefnafléttusjúkdóma (immune complex diseases). Handhægum og stöðluóum
aöferöum til að mæla þessa starfsemi komplímentkerfisins i sjúklingum hefur
ekki veriö lýst. Slikar mælingar gætu þó gefiö upplýsingar um tilhneigingu
manna til aö fá mótefnafléttusjúkdóma eftir sýkingar og önnur áreiti
framandi efna (t.d. lyfja).
Alkaliskur fosfatasi (AP) var tengdur við Keyhole Limpet Haemocyanin (KLH).
Mótefni gegn AP var sióan notað til að mynda mótefnafléttur, sem falla út
úr lausn þegar jafnvægi (equivalence) myndast milli AP-KLH og mótefnis.
Þaö magn af AP sem helst i lausn viö þaö aö sermi er bætt út i, gefur
upplýsingar um "upplausnarvirkni” kompliments í hlutaðeigandi sermi.
Þannig er annars vegar unnt aó mæla hæfni komplimentkerfisins til aö leysa
upp fléttubotnfall, sem þegar hefur myndast (solubilization, SOL) og hins
vegar virkni þess til aó koma í veg fyrir aö fléttur falli út (prevention
of inmiune precipitation, PIP) . Þessi próf, sem eru það næm aö þau geta
greint skort á C4B i einstaklingum meö eðlileg C4A gildi, hafa verið
stööluö fyrir kliniska notkun.
12