Læknablaðið : fylgirit - 01.09.1987, Síða 19
1
Erindi
MJAÐMARBROT ELDRI BORGARA I REYKJAVlK. Brvn]ólfur Moqensen. Grétar 0,
Róbertsson oq Slgurvelg Pétursdóttir.
Auklnn fjöldl sjúkllnga með mjaðmarbrot (brot á lærleggshálsl og lærhnútu)
jafnvel umfram f jölgun aldraðra, veldur mjög míklu vandamáll og vaxandl álagl á
bæklunardelldlr 1 hlnum vestræna heiml. óttast marglr, að upp úr aldamótum
verða bæklunardelldlr fullar af sjúklingum með mjaðmarbrot og ekki hægt að sinna
öðrum sjúkltngum. Þótti ástæða, af pessum sökum, að gera könnun á tíðni
mjaðmarbrota i Reykjavik, frá 1965-84 og að spá um fjölda mjaðmarbrota árið
2000. Kom i IJós, að f jöldl brotanna fyrstu fimm árin (1965-69) var 218, meðan
1980-84 voru brotin orðln 489. tliðað við spár um fólksf jölda i Reykjavik um
aldamót verða brotin um 750 á 5 ára timabili um aldamót. Brotum á lærleggs-
hálsi hjá konum og körlum hefur ekki fjölgað umfram fjölgun aldraðra, meðan
brotum á lærhnútu virðist hafa fjölgað, bæði hjá konum og körlum, umfram f jölgun
aldraðra. Heildar legudagaf jöldinn hefur ekki aukizt, þrátt fyrir stóraukinn fjölda
mjaðmarbrota og hefur meðallegutiminn farið úr 90 i 40 daga á sjúkling á tima-
bllinu. Nauðsynlegt er að breyta heildarstefnu i meðferð sjúklinga með mjaðmar-
brot ttl pess að geta slnnt vaxandi pörf i framtiðlnni, ef ekkt á að draga saman
seglin á öðrum sviðum, t.d. gerf 11 iða-aðgerðum.
2
LÍFSLENGD GERFiLIÐA. Brvnjóifur Moaensen. Slysadelld Borgarspitalans.
Fyrstu gerfiðliðaaðgerðlrnar voru gerðar fyrlr aldamót. Notaðir voru háifliðir úr
harðviði eða fílabeini, en árangurinn að vonum lélegur. Það er fyrst i kringum
1960 pegar Sir John Charnley innieiddi beincement og skálar úr hígh molecular
weight polyethylene, að árangurinn varð góður, að pvi er virtíst. i dag er svo komið,
að fáar aðgerðir hafa skilað jafn góðum heildar árangri og gerfiliðaaðgerð i mjöðm.
Það má búast vlð, að með nútíma tækni megi fá 90% góðan árangur hjá sjúklingum,
sem eru 60 ára ogeldri, meðan iangtimaárangurinn er verri hjá ungum, par sem
meira reynir á liðinn. Helztu stutttímavandamálin eru sýkingar (] %) og liðhlaup
(2%). Langmesta langtima vandamálið er aftur á móti los á öðrum eða báðum gerfl-
liðahlutunum. Mjög ör próun á sér stað og má búast við, að með meírí pekkíngu og
nýrri tæknl, megi bæta langtimaárangurinn, sérstaklega hjá peim, sem yngri eru.
19