Innsýn - 01.03.1974, Blaðsíða 3

Innsýn - 01.03.1974, Blaðsíða 3
Ólík tungumál munu ekki hindra samræöur1 þeirra sem hittast á þessu hafi; ekki munu þjóö- ernistilfinningar heldur spilla sambúö; og landhelgis- deilur veröa þar óþekkt fyrir- bæri. Þeir sem safnast saman á þessu umrædda hafi, munu verða uppteknir af stórfenglegri og mikilvægari hugsunum en þeim sem fýlgja slíkum hlutum. Hugir þeirra munu verða uppfyllir af ’fögnuði og ólvsanlegri^hamingju, og þessi gleði mun brjótast fram í fögrum, samstilltum og voldugum lofsöng. Sá lofsöngur mun beinast ac Konungi konunganna, Bjargi aldanna, Höfundi og fullkomnara trúar okkar - til Jesú Krists, dýrlegustu persónu alheimsins, Þakklæti þeirra jarðarbúa sem munu fyrir náð Guðs, sitt eigið val og staðfestu og hina ómetanlegu fórn Frelsarans, standa á þessu hafi í lok núverandi mannkýnssögu, mun vart eiga sér nokkur takmörk. Þær tilfinningar sem fram að þeim tíma munu hafa bærzt í brjóstum þeirra, munu verða sem skuggi samanbornar við'þær tilfinningar sem þá munu streyma um vitund þeirra, því að allir sem í lok stórfenglegustu geim- ferðar veraldarsögunnar, standa á glerhafinu (Op. 15,2.) og í áður óþekktri hrifningu taka undir í söng Móse og söng Lambsins, munu verða gagntekntr af þeirri unaðslegu hugsun, að þessi atburður mun marka áþreif- anleg og örugg endalok þjóninga, sorgar og dauða og um leið upphaf óviðjafnanlegrar framtíðar þar sem plánetan Jörð verður aftur meðlimur í samstilltum og órjúfanlegum alheimi og þar sem jarðarbúar munu eiga hamingjurík samskipti við ófallnar verur og fá um alla ókomna framtíð að skyggnast inn í, skilja og njóta hluta sem nú eru þeim leynd.ardomar. AH. mnsýn

x

Innsýn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Innsýn
https://timarit.is/publication/992

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.