Innsýn - 01.03.1974, Blaðsíða 23

Innsýn - 01.03.1974, Blaðsíða 23
Hjónin Helga Guðmundsdóttir og Brynjar Halldórsson, Ytri- Njarðvík, eignuðust telpu 1. febrúar s.l. Hér er um myndar- legustu hnátu að ræða, enda 14 1/2 mörk að þyngd og 53 cm á lengd. Þau eiga 5 ára dreng fyrir, Guðmund að nafni. INN3YN færir foreldrunum beztu hamiryjju- óskir af þessu tilefni. Knn hefur Biblíubréfaskólinn fært út kvíarnar. Að þessu sinni með nýjum námsflokki í söguformi, alls 21 kafli, og er hann sérstaklega saminn fyrir ungt fólk. Námskeiðið, sem er ókeypis, ber nafniö 1 BLÖMA LIFSINS og er hér I rauninni um bráðskemmtilega og viðburðarrlka sögu að ræða. Þegar hafa margir látið inn- rita sig í þetta námskeið. Blaðið hvetur alla, eldri sem yngri, til að endurnýja kynni sín við Bók bókanna á þennan hátt. Sjá nánar auglýsingu á baksíðu blaðsins. Kkki er ráð nema í tíma sé tekið, segir máltækið. Undirbúningur að ungmennamótinu £ sumar er því hafinn, þar sem nýskipuð móts- nefnd hefur þegar hafið störf. Nefndina skipa Árni Hólm frá Ár- nessöfnuði, Gunnar Sigurðsson frá Reykjavíkursöfnuði, Erla Guð- mundsdóttir frá Suðurnesjasöfnuði, Jóhann E. Jóhannsson frá Vest- mannaeyjasöfnuði, og æskulýðs- leiðtoginn, Steinþór B. Þóröarson. Mótstíminn er ákveðinn 21.-28. júlí. Nefndin hefur þegar komið auga á heppilegan mótsstað, en endanleg ákvörðun um mótsstaðinn verður birt í næsta blaði. ímis áform eru á prjónunum til að gera mótið fjölbreytilegt og skemmti- legt. Fylgist vel msð nánari fréttum í INNSYN af undirbúningi mótsnefndar, og leggjum öll kapp á, að sumarleyfin okkar nái að minnsta kosti yfir mótstímann, I sumar er áformað að starfrækja sumarbúðir á Hlíðardalsskóla. Verða þæx' fyrir 10-12 ára börn, og er áformað að hafa tvo hópa. Fyrri hópurinn b.yrjar dvöl sína 1.8, júní, en hinn seinni 2.júlí. Er hér um að ræða 12 daga dvöl í hvort sinn. Nánari upplýsingar verða gefnar í næsta blaði. Nokkur ungmenni hafa verið mjög áhugasöm um að innrita félaga slna til þátttöku I hinum nyja námsflokki Biblíubréfaskólans. Til dæmis hefur einn mennta- skólanemandi innritað yfir 30 skólafélaga sína. FRÁ NEWBOLD Enskunám og sumarleyfi á Newbold College I Englandi fara mjög vel saman. Sumarnárnskeiðið verður frá 2. júlí til 31. júlí n.k. Tækifæri gefast til ferðalaga vlða um Suður-England. Skólinn er skammt frá London. Skrifið eftir upplýsingum til: Dr. A.J. Woodfield Summer School Director Newbold College, Berks., England. Í9 innsýn

x

Innsýn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Innsýn
https://timarit.is/publication/992

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.