Innsýn - 01.03.1974, Blaðsíða 7

Innsýn - 01.03.1974, Blaðsíða 7
A&ventístar a r SJO Eftir STEINÞÓR ÞÓRÐARSON Sjöunda-dags aöventistar hafa aö sjálfsögöu sjöunda dag vikunnar í heiðri sem hvíldar- dag. Þann dag ganga þeir ekki að venjulegum störfum, heldur halda kyrru fyrir samkvæmt fjórða boðorði Guðs. Af þessari ástæðu hafa ýmsir álitið, að átilokað væri fyrir aðventista að stunda sjómennsku, þar sem nútíma fiskveiðar virðast kref- jast þess, að þær séu stundaðar alla daga, þegar gefur á sjó, án tillits til hvíldardaga. Og þó hafa aðventistar skrifað merkan kafla í sjósóknarsögu þjóðarinnar, sem rétt er að vekja athygli á, ekki síst vegna yngri meölima safnaðarins, en sumir þeirra hafa varla stigið fæti á skipsfjöl um ævina. Ritstjóri blaðsins fór því á stúfana ný- lega og hafði tal af ymsum sjo- mönnum safnaðarins fyrr og síðar. Hann vildi gjarnan öðlast meiri innsýn í þessa viðleitni safnaðar- meðlima til sjálfsbjargar og öflunar tekna í þjóðarbúið. Eftirfarandi upplýsingar eru engan veginn tæmandi, enda r.áðist ekki í alla þá, sem frætt gætu lesendur um sjómennsku aðventista. Einnig ber að taka ártöl og aðrar tölur með varúð þar sem sumir heimildamanna treystu sér 'ekki til að full- yrða nákvæmlega um slík atriði í sumum tilvikum. Það sem hér fer á eftir er byggt á upp- lýsingum frá Sveinbirni Einars- syni, Magnúsi Helgasyni, Guð- steini Þorbjörnssyni, Inga Sig- urðssyni, Þórði Stefánssyni, ðlafi önundarsyni og Þorsteini Sigurðssyni. Þegar O.J.Olsen, þáverandi forstöðumaður safnaðarins á íslandi, kom til Vestmannaeyja árið 1923 létu nokkrir sjómenn þar sannfærast um gildi þess boðskapar er hann kynnti þeim. Það ár gerðust þeir Sjöunda-dags aðventistar, og ári síðar var söfnuður stofnaður í Vestmanna- eyjum. Strax bar á erfiðleikum með atvinnu fyrir sjómenn safnaðarins, þar sem hvíldardagshelgihald þeirra takmarkaði sjósóknarmögu- leika þeirra. Olsen hvatti þa viðkomandi aðila til að stofna félag um útgerð. 7 innsýn

x

Innsýn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Innsýn
https://timarit.is/publication/992

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.