Innsýn - 01.09.1977, Blaðsíða 3

Innsýn - 01.09.1977, Blaðsíða 3
Steinþór Þórðarson 3 frá ritstiórninnri ”En þetta er svona” ."En þetta er svona'" Ég stóð fyrir framan hóp af ungu fólki, táningum, og virti fyrir mér andlit þeirra. Einlægnin og ákaf- inn leyndu sér ekki. Þau meintu það sem þau sögðu. Og af því að þeirra hjart- ans sannfæring var sú, að þetta væri svona, þá hlyti að vera í lagi, og réttlæt- anlegt, að sjá það og heyra. Við vorum að ræða sjón- varpsþátt nokkurn, sem hef- or verið á skjánum að undanförnu. Ég hafði gagn- rýnt viss atriði, sem ég var ekki r neinum vafa um, að væru eyðileggjandi fyrir hverja þá sálu, sem gerði sér far um að lifa sig inn í þau, jafnvel þótt slíkt gerðist daglega á meðal fólks. Mannvonska, manndráp, framhjáhald hjóna, slægð og sviksemi af hvaða tagi sem er, allt eru þetta raun- verulegir og mjög svo tíðir atburðir á meðal okkar mannanna. En hvort sem um er að ræða raunverulega atburði, eða aðeins eftirlíkingar þeirra, hafa þeir óhjákvæmi- lega áhrif á alla þátttak- endur, jafnvel þótt þeir séu aðeins áhorfendur eða áheyrendur. Og þegar inn í atburðarrásina er fléttað synd af ýmsu tagi, hljóta hugsanir áhorfenda (og áheyrenda) að snúast um hið sama. Því meira sem áhorfendur dvelja við slíkt efni, því mengaðra hlýtur hugarfar þeirra, og jafn- vel líferni, að verða.

x

Innsýn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Innsýn
https://timarit.is/publication/992

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.