Innsýn - 01.09.1977, Síða 4

Innsýn - 01.09.1977, Síða 4
«1 Það er skiljanlegt að óharðnaðir unglingar átti sig ekki á þessari hættu, sérstaklega ef þeir hafa vanist því, að foreldrar þeirra hafa tamið sér slíkt tómstundaefni. Og ekki er við öðru að búast, en að hinir ungu taki sér í munn sömu útskýringar og hinir eldri nota, til að réttlæta áhuga þeirra á því, að lifa sig inn í atburðarrásina á skjánum, i kvikmyndinni, í bókinni, í tímaritinu, o.s.frv. Sem sé, "Þetta er svona.'" Hér er rétt að nema staðar til íhugunar og spyrja beinskeyttra spurninga. Er það þá full- komnlega gott og rétt að gerast óbeinir þátttakendur í atburðarrás, hversu slæm og syndsamleg sem hún kann að vera, eingöngu vegna þess, að hún er í samræmi við raunveruleikann? Þegar einstaklingur sækist eftir slíku efni, hefur hann þá ekki ánægju af því? Er þá ekki sá hinn sami farinn að eltast við syndina, að gæla við hana? Sannkristið fólk hefur löngiom talið f jarstæðu- kenndan skáldskap, þar sem imyndunaraflinu er gefinn laus taumurinn, óverjandi. Þessu er ég sammála. En sé þetta slæmt, er það þá ekki ennþá verra þegar hið illa, sem er þó raunveru- legt, eða jafnvel eftirlík- ingar þess, er orðið að eftirsóttu tómstundaefni fólks sem telur sig vera kristið? Mín persónulega afstaða í þessu máli er þessi: í stað þess að velja mér synd- samlegt sjónvarpsefni (eða annað tómstundaefni) vegna þess að "þetta sé svona," þá kýs ég að hafna hinu sama einmitt vegna þess að þetta er svonal Unga fólkið í dag er söfnuðurinn á morgun. Ef það lætur menga huga sinn og líferni með því tóm- stunda og skemmtiefni sem heimurinn þrýstir að því í dag, mun söfnuðurinn á morgun verða mengaður af synd. Hins vegar, ef æskan hafnar mengun af völdum syndarinnar og berst á móti henni, mun morgundagurinn leiða fram hreinan söfnuð. Þegar brúðgiominn kemur til að sækja brúði sína, mun hún vera hrein af allri synd.

x

Innsýn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Innsýn
https://timarit.is/publication/992

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.