Innsýn - 01.09.1977, Page 28
20
f
Kæru systkyni.
Öðru hverju er verið að
gera stórátök í útgáfu-
starfi innan safnaðarins.
Síðasta stórátak var útgáfa
Deilunnar miklu. t>að er
útgáfa þeirrar bókar sem
mig langar að ræða lítil-
lega. Ötkoma þessarar
bókar var boðuð eins og um
sjálfa endurkomu frelsara
okkar væri að ræða. Útlend-
ur maður kom í heimsókn og
sagði margar mergjaðar sög-
ur af þessari bók.
Hrifningaralda fór um
allan söfnuðinn. NÚ hefði
söfnuðurinn það vopn sem
væri öðrum vopnum beittara
og nú skyldi Satan flettur
leikbúningunum og sýndur
nakinn. FÓlkið fagnaði,
starfsmennirnir dönsuðu af
gleði þegar sú stóra stund
rann upp að bókin kæmi ut
og svo fóru allir heim og
lífið gekk sinn vanagang.
Upplag Deilunnar liggur
næstum ósnert hjá forlaginu
og Satan leikxir á alls oddi.
Deiluna miklu átti að
selja á veturna eina sér en
allar hinar bækurnar á
sumrin. Ég viðurkenni að
þessi aðferð er lxkleg til
árangurs en gallinn er sá
að það eru ákaflega fáir
sem stunda bóksölu á vet-
urna. Ég held jafnvel að
það mætti telja þá á fingr-
um annarrar handar.
Við svo búið má ekki
standa. Ef við ætlum að
færa þjóðinni þann boðskap
sem Deilan mikla inniheldur
verðvir sérhver safnaðar-
meðlimur sem vettlingi get-
ur valdið að fá sér smá-
skika til að selja Deiluna
í. Mig langar til þess að
segja frá reynslu minni og
bróður Ingvars, en við höfum
nýlega hafið sölu Deilunnar
í Keflavík. Við gerðum
aldrei ráð fyrir miklum
árangri en sáum að Deilan
varð að komast til fólksins
og við gætum með Guðs hjálp
verið milliliðir. Þar sem
við vissum að vonlaust væri
að fá fólk til að kaupa
köttinn í sekknum, gerðvim
við fjölritaða auglýsingu
sem við dreifum í húsin 3
dögum til viku áður en
við förum í þau sömu hús
til að bjóða Deiluna. Þetta