Innsýn - 01.09.1977, Side 7

Innsýn - 01.09.1977, Side 7
f 7 boðið að setjast þar niður. Það leið ekki á löngu þar til hann var farinn að segja mér sögu sína. Hann og eiginkona hans höfðu átt að- eins eitt barn, 18 ára gamla dóttur sem hafði verið nem- andi í háskólanum í Texas. Fyrir fjórum vikum hafði hún komið heim í jólaleyfi. Á leiðinni var henni boðið að gista hjá kunningjum yfir nótt en því hafnaði hún og sagði að sér finndist eitt- hvað segja sér að hún ætti að flýta sér heim. Morguninn eftir að hún kom heim kallaði móðir henn- ar á hana niður í borðstofu til að fá sér morgunverð. En þegar hún kom ekki eftir þriðja kall fór móðir hennar upp í herbergi til hennar og komst þá að raun um að hún hafði dáið í svefni. Hér sat hjá mér einmana faðir djúpt særður í hjarta sínu yfir missi dóttur sinn- ar. Hann hafði ekki enn fundið það sem hjarta hans leitaði að. Við sátum þarna og töluðum hljóðlega saman langa stund. Það voru aðeins fáeinir mánuðir síðan ég hafði sjálfur fylgt föður mínum til grafar. Fersk voru í minni mínu fyrirheit Drottins eins og til dæmis þau sem er að finna í jóh.11,25 og l.Þess. 4,13-14. Það rifjaðist líka upp fyrir mér lítil reynsla fyrir skömmu þar sem ég sat í klefa mínum i járnbrauta- lestinni þar sem hún fór skyndilega í gegnum jarðgöng ein í Nýju Mexíkó og ég óskaði þess ákaft að faðir minn hefði getað verið hjá mér til þess að njóta þess fagra útsýnis sem ég naut þarna. En allt í einu varð allt svart. Við höfóum skyndilega haldið inn í jarðgöng. Um hríð sat ég sem lamaður. Eftir all marg- ar mínútur varð skyndilega bjart á ný. Við höfðum komið út úr hinum enda ganganna og skyndilega rifjuðust upp fyrir mér orðin í l.Kor.15, 52. Þarna vorum við tveir verslxanarmenn og ræddum saman hljóðlega og skeyttum engu um glamrið i diskunum frá nálægum borðum, hávað- ann x kassa gjaldkerans,eða stöðugan klið margra radda umhverfis okkur. Þegar við skildum að lok- um tók þessi nýi vinur minn þéttingsfast í hendi mína og ég gat séð hlýju og nýja von í augum hans. 32

x

Innsýn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Innsýn
https://timarit.is/publication/992

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.