Innsýn - 01.09.1977, Side 11

Innsýn - 01.09.1977, Side 11
 11 Hinir trúföstu skírskot- uðu einnig til þeirra engla sem þegar höfðu sameinast uppreisnarhópnxmi. Þeir þrá báðu þá um að koma aftur til sín. "Hlustið ekki á LÚsifer, sögðu þeir. "Hann blekkir ykkvu:. Hann segir ykkur ekki sannleikann." Margir af fylgjendum Lúsifers íhuguðu aðvaranir hinna trúföstu engla. Þeir voru um það bil að snúa aft- ur yfir í flokk Guðs. En sumir af leiðtogxim uppreisn- ar englanna sáu hvað var að gerast, og þeir flýttu sér til aðalstöðva LÚsifers með þessar fréttir. "Lúsifer, LÚsiferT Hvað eigum við að gera? Guðs- sinnar eru að tala til margra úr okkar hópi og þeir eru að yfirgefa okkur." "Eigið þið við að okkar fylgjendur hlusti í raun og veru á þá og skipti um skoð- un?" "Já, herral Stórir hóp- ar hafa þegar látið sannfær- ast um það að við höfum á röngu að standa, og þeir vilja snúa aftur til Guðs ef þeir geti verið vissir um að Hann vilji fyrirgefa þeim." LÚsifer bjó sig til að- gerða strax. "Þetta er alvarlegt," sagði hann. " "Það lítur út fyrir að þetta sé verkefni sem ég verð sjálfur að sjá xmi." Við skulum ímynda okkur að hann hafi komið síðan að hópi engla sem höfðu rétt í þessu verið að tala um þessa hluti. "Mér hefur verið sagt að þið séuð um það bil að yfir- gefa málefni okkar. Vissu- lega eruð þið ekki svo heimskir að gefast upp' Og þar að auki mun Guð ekki taka við ykkur aftur." "Hlustið ekki á hann," sögðu hinir trúföstu englar ákafir. "Hann er að blekkja ykkur. Guð elskar sín eigin börn og hann er fús að taka við þeim aftur." "Þeir vara ykkur við því að hlusta á mig," hreytti Lúsifer út úr sér. "Hver hefur verið næstur hásætinu - þeir eða ég? Svo hver ætti að vita meira um áform Guðs - þeir eða ég? Þeir hreinlega láta sér ekki nógu annt um ykkar hag til þess að berjast fyrir réttindum ykkar eins og ég geri." Síðan breytti hann vim málróm og talaði mjúklega til þeirra. "Myndu þið trúa því að ég hafi sjálfur eitt sinn næstum því gefið allt upp á bátinn? Ég næstum því ákvað að það væri alls

x

Innsýn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Innsýn
https://timarit.is/publication/992

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.