Innsýn - 01.09.1977, Síða 31

Innsýn - 01.09.1977, Síða 31
23 **e,e*en ég er ovanur Eftir Ted Pettit Þegar þú gerðist aðvent- isti varst þú svo hamingju- samur að þú vildir segja öllum sem þú mættir frá Jesú og að hann kæmi aftur. Það getur verið að þú skiljir hvorki upp né niður þegar einhver spyr þig um þýðingu hornanna txu í 12.kap.Op- iriþerunarbókarinnar, en þú veist, já þú ert SA13NFÆRÐUR um að spádómarnir eru sann- ir. Meira að segja,gætir þú gefið frá þér bæklinga allan liðlangan daginn, og verið hlaðinn kjörorðxim eins og til dæmis "brostu - Guð elskar þig" frá hvirfli til ilja. En einn góðan veðurdag uppgötvar þú alvöru lífsins. Þarna kemur presturinn þinn til þín, brosandi út að eyrum, og segir: "ÞÚ hefur öðlast merkilega reyrslu, já stórkostlega." ÞÚ kinkar kolli, ánægður, óafvitandi um það hvert erindi prests- ins raunverulega sé. Og á meðan þú stendur þarna og kinkar kolli, heldur hann áfram og segir: "Vilt þú gefa vitnisburð þinn á æsku- lýðssamkomunni næsta hvíldar- dag? Þakka þér fyrir, ég vissi að ég gæti reiknað með þér.' " Og þarna stendur þú einn eftir gapandi eins og gull- fiskur á þurru, en loksins færðu málið á ný og þrífur í safnaðarþjón sem á leið framhjá þér og segir vió hann: "Segðu mér, hvað er vitnisburður?" "Ju, þu bara stendur upp fyrir framan nokkur hundruð manns og segir þeim allt um það hvernig þú tókst á móti Drottni." "Ég! styn ég upp. "Ég að standa fyrir framan allt þetta fólk, og tala...." "Já, já, þér mun ganga virkilega vel." Og þarna stendur þú einn eftir eins og dæmdur maður, og horfist i augu við langa viku, hræðilega martröð, sem nær fram að úrslitastund.

x

Innsýn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Innsýn
https://timarit.is/publication/992

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.