Innsýn - 01.09.1977, Page 33

Innsýn - 01.09.1977, Page 33
25 segir hún við mig "er þér sama þó ég fái mér siga rettu?" Já, ef þú reykir get ég ekkert farið að banna þér það. En hins vegar þá var mér ekkert vel við það því það var ekki leyfilegt inni á herbergjum. En sagði henni eins og var fyrst við værum í hennar herbergi þá myndi hún bera ábyrgðina á þessu. Þá segir hún mér til mik- illar undrunar "en þú ert aðventisti." "já, ég er það en hvers vegna segirðu þetta." "Jú sérðu allir þeir aðventistar sem ég þekki finnst ég vera bara eitthvað, já ekki þeim samboðin af því ég reyki og smakka vín" Svo var það eitt kvöld að við fórum út að ganga í yndislega góðu veðri. Þetta var um 11 leytið. Þá hittum við þrjá stráka og þeir fara að tala við okkur og hún þekkti þá eitthvað. Þeir voru með bjór af einhverju tagi og buðu okkur. Ég sagði nei takk en hún fékk sér. Þeir buðu okkur líka í partý og hún sagði að vió myndum athuga það. Svo á heimleiðinni fer hún að spyrja mig hvort ég vilji nú ekki koma með. En ég sagði henni eins og var að ég hefði ekki áhuga á því. Svo segir hún "þú ert ein- kennilegur aðventisti". Það kom fát á mig og ég hugsaði að nú hef ég sagt og gert eitthvað rangt svo hún missir það litla álit sem hún hefur á aðventistum. "já þú ert allt öðruvísi aðventisti en þeir sem ég hef kynnst. NÚ ert þú búin að sjá mig reykja og drekka og þú talar samt við mig ei eins og áður" "Já, hvers vegna ætti ég ekki að gera það. Ég get ekki dæmt þig en ég get frekar hjálpað þér að hætta þessu og segja þér að ég geri þetta ekki vegna þess ég veit þetta er ekki hollt og gott og ég ráðlegg þér eindregið aðhætta þessu en ég get ekki bannað neitt, þetta er aðeins ráðlegging." Það sem hefur angrað mig aðallega er hvort þessi orð mín hafa verið röng. Átti ég að gera eins og hún sagði að sumir aðventistar gerðu að snúa við henni bakinu Hef ég virkilega eyðilagt eitthvað fyrir öðrum með þeirri aðferð sem ég notaði? Hvernig á að bregðast við svona löguðu?

x

Innsýn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Innsýn
https://timarit.is/publication/992

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.