Innsýn - 01.09.1977, Blaðsíða 35

Innsýn - 01.09.1977, Blaðsíða 35
27 heimilishald, bílaþvott- ur o.s.frv.) 17 1/2 klst. Hve margir safnaðarmeð- lima okkar skyldu gefa klst á dag til að vitna fyrir Guð? Margir meðlima okkar í söfnuðinum hafa öðlast mikla blessun af því að gefa Guði tíunda hlutann af öllum tekjum sínum. En hvað um það að skila Guði tíunda hluta tímans sem hann hefur gefið okkur? Ein klst á dag er aðeins hluti af þeim tíu prósentum. Að sjálf- sögðu mundi þetta verða í viðbót við þann tíma sem við verjum til andlegrar iðkunn- ar sjálf. Það er hugsanlegt að okkur hafi yfirsést eitt- hvað sem hefði getað orðið okkxir sjálfum til mikillar blessunar bæði sem einstakl- ingum og sem söfnuði. Þeir eru mjög fáir á með- al okkar í dag sem hafa fund- ið þá ábyrgð að gefa Guði fyrir þjónustu hans prósentu af þeim dýrmæta tíma sem hann hefur gefið þeim. í preststarfi mínu hefi ég hitt hundruði leikmanna sem hafa sagt mér að það væri þeim ómögulegt að taka tíma til að vinna kristniboðs- starf fyrir Guð. Þeir skír- skota til þeirrar ábyrgðar sem þeir hafa við að ala upp börnin sín, að reyna að lifa sómasamlegu lífi, eins og nágrannarnir gera, og að halda stöðu sinni í samfél- aginu. "Ég get ekki látið endana ná saman," segja þeir. ■ÍÉg verð að sinna tveimur störfum, til að auka á tekjur mínar svo að ég geti séð fyrir þörfum fjölskyldu minnar." "Ég hefi unnið dag og nótt til að afla fjár til að sinna öllum skyldum mínum." Og svo halda þeir áfram að lifa í sama öng- þveitinu undir stöðugum þrýstingi. Þeir virðast aldrei hafa nægan tíma. Og svo er það hinn hóp- urinn. Þeir hafa tíma fyrir Guð. Þeir hafa tíma fyrir fjölskyldur sínar. Þeir hafa jafnvel tíma fyrir sjálfan sig. Guð virðist blessa þá og þeir geta látið endana ná saman. Ég þekki persónulega marga leikmenn sem hafa á árangursríkan hátt leyst vandamálið með tíma. Leiðin til þess að nota tímann hvað best er að biðja og vinna. Eftir V.W.Schoen leikmanna- ritara aðalsamtakanna.

x

Innsýn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Innsýn
https://timarit.is/publication/992

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.